Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 24
Ég áttaði mig strax á því að ég var hrygg- brotinn, því efri og neðri hluti líkamans sneru sitt á hvað. Daniel Bandaríkjamaðurinn Daniel Hund, sem hrapaði tugi metra á fjallaskíðum á Tröllaskaga í mars, missti báða fótlegg­ ina eftir slysið og minnstu munaði að hann tapaði einnig handleggjunum. Hann og Sierra, kona hans, voru hér að fagna brúðkaupsafmæli sínu þegar örlögin gripu í taumana – og takast nú á við gerbreytt­ ar aðstæður í lífi sínu. Bandarísku hjónin Daniel og Sierra Hund, sem bæði eru á þrítugsaldri, afréðu að fara í draumaferðina til Íslands í mars á þessu ári til að fagna tveggja ára brúðkaups­ afmæli sínu. Þau eru alvön fjallamennsku og finnst fátt skemmtilegra en að taka þátt í ævintýrum við erfiðar aðstæður upp til tinda og toppa – og þegar Sierra sá ljósmyndir frá Íslandi fyrir nokkrum árum hétu þau sér því að halda hingað til lands í brúðkaupsferðina sína. En svo brast heimsfaraldurinn á með samkomuhömlum og ferða­ takmörkunum, svo nýgiftu hjónin þurftu að fresta förinni til Íslands um óákveðinn tíma. Loks rofaði til í byrjun þessa árs – og stefnan var tekin á eyjuna í norðri á tveggja ára brúðkaups­ afmælinu, beint í helstu fjallabálka Íslands á Tröllaskaganum þar sem freistandi er fyrir ofurhuga að reyna sig við þverbrattar fjallshlíðar á þar til gerðum fjallaskíðum, oft og tíðum við hrikalegar aðstæður. Ég bjóst við að deyja Hjónakornin komu sér fyrir í bústað við utanverðan Tröllaskagann um miðjan mars og voru varla búin að taka upp úr töskunum þegar óþreyj­ an knúði dyra hjá Daniel sem afréð að halda einsamall til fjalla til að athuga aðstæður í fannbreiðunum í Vermundarstaðahyrnu í Húngils­ dal, sem er einn þverdalanna sem liggja norðanvert í dalnum fram af Ólafsfirði. Veður var skaplegt, smávegis hríðargeyfa á lofti – og Daniel sóttist ferðin vel upp á hyrnuna sem er í um 750 metra hæð yfir sjávarmáli. Þar setti hann undir sig fjallaskíðin, en kveðst strax hafa fundið fyrir harð­ fenni undir skíðunum, sem varð til þess að hann missti fljótlega gripið í glerhálli hlíðinni og féll svo að segja lóðbeint niður eftir snarbrattri snjó­ rennu á milli klettabelta, kútveltist yfir hamrabelti og hrapaði þaðan niður stóra fönn uns hann stöðvað­ ist í urðarbelti í miðri hlíðinni. „Ég áttaði mig strax á því að ég var hryggbrotinn,“ segir Daniel, „því efri og neðri hluti líkamans sneru sitt á hvað.“ Og hann kveðst raunar þegar hafa orðið úrkula vonar um að nokkur maður myndi finna hann í þessu afskekkta þverhnípi þar sem hann lá í grafarkyrrðinni og gat sig hvergi hreyft. „Ég var reiður sjálfum mér fyrir að hafa farið einn til fjalla, án skíða­ félaga, svo ég bjóst bara við því að deyja á staðnum.“ Sierra, kona Daniels, beið hans niðri í bústað, en hann hafði sagst ætla að láta vita af sér klukkan tíu. En þegar hana fór að lengja eftir honum hugsaði hún í fyrstu sem svo að hann hefði ákveðið að taka sér aðra ferð niður fjöllin á skag­ anum. „Svo fór ég að hafa áhyggjur eftir því sem tíminn leið,“ segir hún, „kannski hafði hann fótbrotnað, hugsaði ég, eða að hann hefði hlotið einhverja aðra skráveifu sem tefði heimför hans,“ bætir Sierra við. „En það hvarf laði aftur á móti aldrei að mér að eitthvað alvarlegra hefði hent hann, af því hann er þaul­ reyndur skíðamaður frá unga aldri. Ég bara trúði því alls ekki.“ Allt svæði ellefu kallað út En svo fór að björgunarsveitir voru kallaðar út – og þaulvanir og heima­ vanir liðsmenn þeirra lásu rétt í aðstæður frá fyrstu mínútu. Leitar­ Missti báða fótleggina eftir skíðaslysið á Tröllaskaga Daniel hefur verið í stöðugri endurhæfingu frá því hann hrapaði á fjalla- skíðum á Trölla- skaga í mars, en með ólíkindum er að hann hafi lifað slysið af. MYND/AÐSEND svæðið væri stórt, aðstæður með erfiðasta móti, lágskýjað með þó nokkurri ofanhríð. Allt svæði 11 var því ræst út, á bil­ inu 80 til 100 manns í öllum björg­ unarsveitunum við Eyjafjörð. Aug­ ljóst var þá þegar að verkefnið væri harðsótt, enda fjalllendið á milli Ólafsfjarðar og Fljóta einstaklega erfitt yfirferðar. Daniel fannst þó að lokum um tvö leytið, fyrir harðfylgi leitar­ manna sem dreifðu sér um dal­ skorninga á milli þverbrattra og tröllslegra fjallanna. Og fyrstur á vettvang var Kári Brynjólfsson, ungur liðsmaður björgunarsveitar­ innar Dalvíkur. „Ég var á vel negldum snjósleða og snaraði mér upp eina brekkuna í Húngilsdal, sá ekki neitt en fór aftur sömu leið upp fjallið af því að leitarmenn niðri í dal töldu sig sjá eitthvað uppi í fjallinu – og ein­ mitt í seinni ferðinni sé ég að maður veifar mér af veikum mætti og hefur sennilega heyrt í vélargnýnum,“ rifjar Kári upp. Hann lagði snjósleðanum í hvelli niðri á jafnsléttu og klæddi sig í jöklabroddana áður en hann hent­ ist upp fjallið til að veita manninum fyrstu hjálp. „En urðin, sem hann lá í, var glerhál, raunar öll frosin, svo það var erfitt að fóta sig í þessum mikla bratta,“ segir Kári sem kveðst hafa átt í erfiðleikum í fyrstu með að koma einangrunardýnu utan um manninn til að draga úr hitatapinu. „Ég sá strax að hann var með meðvitund en kaldur mjög og þjáð­ ur,“ segir Kári, „en augljóst var að hann var stórslasaður,“ bætir hann við. „En ég gerði mér líka grein fyrir því að aðstæður til björgunar voru með erfiðasta móti.“ Það sem hjálpaði þó til á næstu mínútum, eftir að þyrla Landhelgis­ gæslunnar var kölluð út, var að held­ ur birti til. „Það var mér mikill léttir þar sem ég stóð þarna yfir hinum slasaða,“ segir Kári, en þar með var honum ljóst að þyrlan kæmist að öllum líkindum alla leið á slysstað. En björgunin var rétt að byrja. Fleiri leitarmenn dreif að slys­ staðnum, en svo erfitt var þar um vik í hengifluginu að koma þurfti fyrir tryggingum og línum í hjarn­ inu svo menn færu sér þar ekki að voða. Eins byrjuðu sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn að koma fyrir þreföldu línukerfi í fjallshlíðinni, svo hægt yrði að virkja varaáætlun, kæmist þyrlan ekki á slysstað, en þá yrði hinum slasaða slakað hægt og örugglega niður hlíðina í sjúkra­ börum þar sem þyrlan biði. Á meðan því verki vatt fram voru líka tveir sjúkraf lutningamenn komnir upp í urðina og gátu hafið verkjastillandi meðferð á þeim slasaða og undirbúið hann á annan hátt undir frekari lífsbjörg. Og við tók biðin langa eftir þyrlunni sem þurfti að taka eldsneyti á Akureyri. „Þetta var með því tæpasta,“ útskýrir Kári, en kveðst hafa fyllst bjartsýni þegar hann heyrði fyrstu hljóðin í þyrlunni. Og f lugmenn hennar reyndust vandanum vaxnir þegar á hólminn var komið. „Sig­ maðurinn kom niður til móts við okkur með börurnar og þar var Daniel komið fyrir með allri þeirri aðgætni sem þarf að hafa í huga þegar um svo slasaðan mann er að ræða,“ segir Kári. Líkamshitinn um 25 gráður Það er með hreinum ólíkindum að Daniel hafi lifað slysið af, ekki einasta sakir þess að hann hafi Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is  24 Helgin 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.