Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 28
Ég redda
því þó ég
sjálfur geti
ekki borg-
að ein-
hverja
reikninga,
en fannst
erfitt að
bera ábygð
á afkomu
annarra.
Árni Árnason ákvað fyrir
nokkrum árum að gera til-
raun til að kveikja aftur neist-
ann sem honum fannst hafa
kulnað. Hann seldi fyrirtæki í
góðum rekstri, sneri baki við
starfi til tveggja áratuga og
settist við skriftir.
Ég er kannski fyrst að kryfja
þetta nú þegar þriðja
skáldverkið kemur út,“
segir Árni þegar við hitt-
umst daginn eftir útgáfu
bókar hans Vængjalaus, sem er
jafnframt fyrsta skáldsaga hans en
áður hafði hann gefið út tvær barna-
bækur.
„Ég skrifaði eitthvað á mennta-
skólaárunum en svo byrjaði ég bara
á því sem ég hélt að ég ætti að gera,
skráði mig í lögfræði og entist í því
námi í mánuð,“ segir hann og hlær.
Árni starfaði við markaðsmál í
um tvo áratugi en segir það hafa
verið fyrir einskæra tilviljun að
hann fór þá leið. „Eftir að hafa
hrökklast úr lögfræðinni sneri ég
aftur norður til Akureyrar og fékk
þar vinnu í plötuverslun föður vinar
míns,“ rifjar Árni upp.
„Þessi vinur minn var í Háskólan-
um á Akureyri og eftir að ég eignað-
ist kærustu fyrir norðan fannst mér
borðleggjandi að skrá mig bara í
háskólann þar,“ segir Árni og hlær.
Hann skráði sig í rekstrarfræði og
segir markaðsmálin hafa komið
til sín meðan á náminu stóð. „Eftir
útskrift fór ég að vinna hjá auglýs-
ingastofunni Góðu fólki sem þá var
stofan sem allir vildu vera á.“
Var kominn út í horn
Árni hélt svo í meistaranám erlendis
og starfaði í markaðs- og auglýs-
ingageiranum næstu ár og stofnaði
sína eigin auglýsingastofu sem hann
rak í átta ár.
„Ég hef oft sagt að ég myndi ekk-
ert endilega ráða sjálfan mig í vinnu.
Ég á erfitt með að vinna í mjög skil-
greindum ramma og mæta alltaf
og hætta á sama tíma. Ég þurfti því
eiginlega bara að gera þetta sjálfur
og stofnaði því auglýsingastofuna
Árnasynir sem átti upphaflega bara
að vera ég og einhverjir verktakar.“
Þvert á upphaflegar hugmyndir
Árna var fyrirtækið eftir nokkur
ár komið með tólf til fjórtán starfs-
menn. „Þá byrjaði hnúturinn í mag-
anum að byggjast upp,“ segir Árni
og lýsir því hvernig hann hafi verið
orðinn hálf bugaður eftir átta ár í
þeim rekstri.
„Mér fannst erfiðast að vera
ábyrgur fyrir lífi og tilveru ann-
arra. Ég redda því þó ég sjálfur geti
ekki borgað einhverja reikninga,
en fannst erfitt að bera ábyrgð á
afkomu annarra. Ég var pínu kom-
inn út í eitthvert horn. Fólkið sem
var að vinna með mér er stórkost-
legt og góðir vinir mínir en ég sjálfur
átti orðið erfitt með að vakna og
hafa mig í vinnu. Ég íhugaði hvað ég
ætti að gera og ein hugmyndin var
að minnka fyrirtækið aftur og fara
til baka í upphafið. Það var ekkert
annað sem ég gat hugsað mér að
gera, en svo kom ritlistin til mín.“
Örverpið kveikti hugmynd
Árni er giftur Kolbrúnu Björns-
dóttur og áttu þau samtals þrjú börn
þegar þau kynntust en eignuðust
saman dótturina Helenu sem nú er
tólf ára. „Það var eiginlega í gegn-
um þetta örverpi okkar sem hug-
myndin kom. Hún er pínu pabba-
stelpa og ég las fyrir hana fram eftir
aldri og svo lásum við líka saman.
Það kviknaði einhver neisti því mig
Eigum ekki að lifa í boxum
Árni ásamt Kol-
brúnu eiginkonu
sinni og dóttur
þeirra Helenu,
en báðar voru
þær honum
hvatning til að
skipta um gír.
Hvor á sinn hátt.
MYND/AÐSEND
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
langaði að skrifa fyrir hana barna-
bók á meðan hún væri enn nógu
ung til að finnast það skemmtilegt.“
Árni tók nokkra kúrsa í bók-
menntafræði meðfram starfi til að
undirbúa sig fyrir meistaranám í rit-
list, þangað sem hugurinn stefndi,
og skrifaði jafnframt barnabókina
Friðbergur forseti fyrir Helenu.
Þetta var fyrsta skáldverk Árna og
boltinn var farinn að rúlla.
„Svo komst ég inn í ritlistina og
stefni á að útskrifast nú um ára-
mótin. Námið hefur breytt lífi mínu
og ég er búinn að læra óendanlega
mikið og kynnast frábæru fólki
sem hefur haldið mér áfram á þess-
ari vegferð. Þegar ég ákvað að fara
í þessa átt þá kom löngunin til að
selja fyrirtækið. Ég fann að þetta
var það sem mig langaði að gera,
mig langaði að skrifa meira. Ég hef
auðvitað alltaf verið að skrifa í aug-
lýsingunum en það er annað að
skrifa um súkkulaði og pylsur þó
það sé vissulega gaman, en að skrifa
frá eigin brjósti.“
Geggjað að makinn sé fyrirmynd
Það er eins og gefur að skilja stór
ákvörðun fyrir f jölskyldumann
með fyrirtæki í stöndugum rekstri
að ákveða að selja allt og setjast á
skólabekk til að fara að skrifa. Árni
segist hafa fengið mikinn stuðn-
ing frá Kolbrúnu eiginkonu sinni
en sjálf breytti Kolbrún lífi sínu
á drastískan hátt fyrir nokkrum
árum síðan þegar hún hætti far-
sælu starfi við fjölmiðla til að starfa
við útivist.
„Ég var búinn að horfa á konuna
mína gjörsamlega umbylta lífi sínu
og tilveru. Ef hún hefði ekki farið
þá leið væri ég örugglega enn á
sama stað. Hún bjó til þetta hugar-
ástand inni í mér, að ég gæti kúvent
lífi mínu. Maður verður að hafa
stuðning heima en ekki er verra ef
umhverfið heima býr þetta til – það
er æðislegt. Það er neistinn. Það er
geggjað ef maki manns getur líka
verið fyrirmynd manns,“ segir Árni.
Hann viðurkennir að gamalkunn-
ur hnútur komi enn í magann. „Já,
hann kemur enn og ég fæ áhyggjur
af því að hlutirnir gangi ekki upp. Ég
er í smá ráðgjafarvinnu og hef líka
tekið að mér að framleiða og leik-
stýra auglýsingum en á endanum
ætla ég að lifa af skrifunum og ég er
ekkert feiminn við að segja það upp-
hátt. Hnúturinn er líka orðinn allt
öðruvísi, hann kemur sjaldnar og
mér finnst alltaf gaman að vakna og
hlakka til hvers einasta dags, þegar
hann kemur finn ég að ég þarf að
taka á einhverju og geri það.“
Mikilvægt að kunna að sleppa
Árni byrjaði að skrifa bókina
Vængjalaus í fyrravor og segir
sköpunarsöguna hafa verið svo-
lítið f lókna enda gerist hún bæði
árið 1996 og 2018, þræðirnir þurftu
að passa saman og þurfti hann
tvær atrennur til þess. „Hún fjallar
mikið um nostalgíu, sem er æðisleg
svo lengi sem maður hangir ekki of
mikið í fortíðinni. Við sem mann-
eskjur erum mikið að reyna að
halda í eitthvert ástand sem okkur
fannst gott en það er oft í lagi að eitt-
hvað frábært endist ekki. Það er svo-
lítið þannig með þennan sólarhring
sem söguhetjur bókarinnar upplifa
þarna árið 1996 og sagan fjallar um.
Ég held að það sé jafn mikilvægt
að kunna að sleppa góðum hlutum
og að hanga á þeim. Við getum ekki
varðveitt augnablikin í formalíni,
bara sem minningar sem við eigum
að ylja okkur við og nota til að gera
lífið betra.“
Árið 1996 var Árni 21 árs en sögu-
hetja bókarinnar er 22 ára þetta
sama ár. „Ég á rosa góðar minningar
frá þessum tíma og þykir vænt um
fólkið sem ég kynntist. Það komu
margir menntaskólavinir í útgáfu-
hófið og mér þótti vænt um það.
Maður myndar góðar tengingar á
þessum tíma en þetta er samt búið.
Maður hafði ekki áhyggjur af neinu
og það er skemmtilegt hugarástand
sem mig langaði að setja persónuna
í, aðstæður þar sem hún væri ekki
búin að kynnast lífinu en lærir ótrú-
lega mikið á þessum sólarhring, um
sjálfa sig og lífið. Sem svo klárast 22
árum síðar þegar hann gerir þetta
upp.“
Talið berst að hinni frægu mið-
aldrakrísu en Árni vill alls ekki nota
það orð yfir þær breytingar sem
hann hefur gert á lífi sínu heldur
frekar nota orð eins og lærdómsferil.
„Ég held að við eigum sífellt að
vera að skoða sjálf okkur því for-
gangsatriðin breytast. Ég var mjög
lengi mjög hamingjusamur í því
sem ég var að gera en þetta er ekki
lengur þannig að við þurfum að
vinna á sama færibandinu í 50 ár.
Við eigum ekki að lifa inni í boxum
en það er enn alltof mikið um það.
Ég veit að það er ekki hægt að gera
allt og við verðum að vera raunhæf
en það er hollt að láta sig dreyma og
endurskoða stöðuna.“
Krísa er auðvitað neikvætt orð
og Árni vill meina að það orð eigi
frekar við þegar fólk fari að leita
lausna í ytri, innantómum hlutum.
„Það er kannski miðaldrakrísa að
vita ekki hvað þú átt að gera við þig.
En að fara í góða sjálfsskoðun og
öðlast einhverja sátt innra með sér
er ekki krísa heldur sjálfsstyrking
eða sjálfsbæting. Ég finn alveg að
fólk í kringum mig er í svona pæl-
ingum – ég held að miðaldrakrísan
sé minna týpísk en hún var, þegar
hún tengdist sportbílakaupum,“
segir hann í léttum tón.
„Mér finnst það vera að aukast
að fólk sé að leita að því sem veitir
því innri ró. Fólk er kannski með
meira leyfi til þess í dag. Hér áður
fyrr þurftu menn bara að kaupa
blæjubíl því ef þeir hefðu sagt að þá
langaði í jógakennaranám hefði við-
kvæðið bara verið: Gleymdu því!“
segir hann að lokum. n
Árni Árnason seldi fyrirtæki sitt, settist við skriftir og langar aftur að vakna á morgnana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
28 Helgin 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ