Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 34

Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 34
Sviðsstjóri fasteignasviðs Grundarheimilin samanstanda af þremur hjúkrunarheimilum og tengdum fyrirtækjum. Hjúkrunarheimilin eru: Grund, við Hringbraut í Reykjavík, Mörk, við Suðurlandsbraut í Reykjavík og Dvalarheimilið Ás í Hveragerði. Auk þessara heimila reka Grundar- heimilin þvottahús í Hveragerði og íbúðarfélög með húsnæði fyrir 60 ára og eldri, en íbúðirnar eru staðsettar við hlið Markar hjúkrunarheimilis. Íbúar á hjúkrunarheimilum Grundar- heimilanna eru tæplega 400 og starfa þar u.þ.b. 700 starfsmenn. Íbúðir fyrir 60 ára og eldri eru rúmlega 150 talsins. Menntunar- og hæfniskröfur: Grundarheimilin óska eftir að ráða drífandi og framsýnan leiðtoga í starf sviðsstjóra fasteignasviðs. Hlutverk sviðsins er að meta ástand fasteigna með tilliti til viðhaldsþarfa, nauðsynlegra endurbóta en auk þess er þar starfandi trésmíðaverkstæði og garðyrkjustöð. Um fullt starf er að ræða með starfsstöð í Hveragerði. Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og mannauðsmálum sviðsins • Yfirumsjón með viðhalds-, breytinga- og endurbótaverkefnum • Yfirumsjón með gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlana • Yfirsýn yfir verkefnastöðu og eftirfylgni með markmiðum • Tryggja samræmt verklag sviðsins • Leiðandi í umbótum, stefnumótun og markmiðasetningu • Ábyrgð á innkaupum, samningagerð og útboðsmálum Helstu viðfangsefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. • Háskólapróf í verk-, tækni-, byggingafræði eða sambærileg menntun. Iðnmenntun er kostur • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum • Reynsla af verklegum framkvæmdum • Þekking og reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð • Góð þekking á öryggis-, heilsu- og umhverfismálum • Góð tölvukunnátta, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti Nánari upplýsingar má finna á www.grundarheimilin.is. Sérfræðingur í aðgengismati Menntunar- og hæfniskröfur: Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir (hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225. • Mat á aðgengisgögnum og ritun matsskýrslna vegna umsókna um markaðsleyfi lyfja • Þátttaka í EES samvinnu, t.d. vísindaráðgjöf • Mat á samantekt á eiginleikum lyfja og fylgiseðla í tengslum við aðgengismat • Önnur verkefni sem heyra undir teymið/deildina Helstu verkefni og ábyrgð: Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst 2022. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests. Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í aðgengismati (e. bioequivalence). Starfið heyrir undir matsdeild á skráningarsviði sem er sú deild sem metur gögn vegna umsókna um markaðsleyfi lyfja. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er reiðubúinn að vinna áhugavert og krefjandi starf. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi. Markmið aðgengismats er að tryggja að lyf uppfylli þær kröfur sem gerðar eru varðandi aðgengi og þar með öryggi og verkun. Það felur í sér mat á umsóknargögnum sem varða framkvæmd og niðurstöður aðgengisrannsókna (e. bioequivalence studies). Aðgengi lyfs sem sótt er um markaðsleyfi fyrir er borið saman við samanburðarlyf með því að skoða helstu breytur tengdar lyfjahvörfum (AUC, Cmax,,Tmax). Í þessu felst einnig mat á gildingu aðferðar sem notuð er til að mæla sýni sem tekin eru úr þátttakendum og mat á forklínísku og klínísku yfirliti. • Meistarapróf í lyfjafræði, lyfjavísindum, líffræði eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi • Starfsreynsla sem nýtist í starfi • 3-5 ára reynsla í aðgengi lyfja eða tengdum greinum er kostur • Grunnþekking á tölfræði er kostur • Góð samskiptafærni og hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi • Nákvæm, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð • Frumkvæði, sveigjanleiki og lausnamiðaðir vinnuhættir • Mjög góð enskunnátta Lyfjastofnun er eftirsóknarverður vinnustaður sem leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Helstu hlutverk stofnunarinnar eru útgáfa markaðsleyfa og gæðamat, eftirlit með lyfjum og lækninga- tækjum, vísindaráðgjöf, verð- og greiðsluþátttaka lyfja og upplýsinga- gjöf. Hjá Lyfjastofnun starfa 86 starfs- menn af sex þjóðernum. Gildi Lyfjastofnunar eru: Gæði – Traust – Þjónusta. Nánari upplýsingar má finna á: www.lyfjastofnun.is.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.