Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 40

Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 40
SÉRFRÆÐINGUR Í ÚRRÆÐUM Óskum eftir að ráða drífandi og lausnamiðaðan sérfræðing til starfa á úrræðasviði VIRK. Sérfræðingurinn er í miklum samskiptum við þjónustuaðila um allt land vegna úrræða og styður við ráðgjafa og sérfræðinga VIRK varðandi úrræðakaup. Starfið felur í sér umtalsverða úrvinnslu upplýsinga, þátttöku í þróun nýrra úrræða og ákvörðunartöku varðandi framsetningu á þeim. Starfs- og ábyrgðarsvið • Umsjón og eftirlit með úrræðum og þjónustuaðilum • Samskipti og þjónusta við fjölbreyttan hóp innan og utan VIRK • Samstarf við þverfagleg teymi og öflun og miðlun upplýsinga • Úrvinnsla upplýsinga og framsetning gagna • Skráningarvinna í upplýsingakerfi VIRK • Umbóta- og þróunarstarf • Stafræn miðlun á efni • Önnur verkefni sem honum eru falin af yfirmanni Menntunar- og hæfnikröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum • Rík kostnaðarvitund • Góð tölvu- og tækniþekking • Þekking á verkefnastjórnun er kostur • Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu. VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað samfélagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar. Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á vinnumarkaði. VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður og er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum. Nánari upplýsingar um VIRK er að finna á virk.is Upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst 2022. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi uppfyllir hæfnikröfur starfsins. Við hjá Verkís leitum eftir einstaklingi í hlutverk stjórnanda ferla og umbóta á starfsstöð okkar í Reykjavík. Starfið felst í að þróa ferla og sinna umbótum til að bæta rekstur og auka gæði þjónustu við viðskiptavini. Verkefnin eru fjölbreytt og faglega krefjandi og mikilvægt er að viðkomandi geti leitt þau áfram í samvinnu við stjórnendur og starfsfólk. Starfið heyrir undir Stoðþjónustusvið og næsti yfirmaður er sviðsstjóri Stoðþjónustu. VIÐ BYGGJUM UPP SAMFÉLÖG Verkís veitir trausta ráðgjöf sem styður við upp­ byggingu sjálfbærra samfélaga. Við höfum mikla þekkingu á sviði vistvænnar hönnunar og erum leiðandi á heimsvísu þegar kemur að grænni orkuvinnslu og nýtingu jarðvarma. Við byggjum upp sjálfbær samfélög víða um heim með því að hafa sjálfbærni alltaf í huga við ákvarðanatöku – allt frá fyrstu hugmynd til förgunar. Stjórnandi ferla og umbóta Nánari upplýsingar Elín Greta Stefánsdóttir mannauðsstjóri, egs@verkis.is Áslaug Ósk Alfreðsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum, aoa@verkis.is Umsóknarfrestur er til og með 22. ágúst. Sótt er um á umsokn.verkis.is Helstu verkefni • Stefnumótun og stjórnun umbóta og ferla í tengslum við gæði, öryggi, umhverfi og verkefnastjórnun • Uppbygging og viðhald gæðastjórnunarkerfa m.a. ISO 9001, 14001 og 45001 • Stýring og innleiðing umbótaverkefna • Umsjón með fagþróunarhópi verkefnastjórnunar Menntunar­ og hæfniskröfur • Meistaragráða í verkfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi • Reynsla af umbótastarfi, þróun ferla og verkefnastjórnun • Þekking og reynsla af gæða, öryggis- og umhverfisstjórnunarkerfum • Framúrskarandi leiðtogahæfni og færni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.