Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 44

Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 44
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir lausa til umsóknar stöðu mannauðsstjóra. Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið leitar eftir öflugum stjórnanda í starf mannauðsstjóra. Mannauðsstjóri mun leiða mannauðsmál ráðuneytisins og jafnframt sinna ráðgjöf og aðstoð fyrir stofnanir ráðuneytisins eftir atvikum. Mannauðsstjóri vinnur náið með ráðuneytisstjóra, öðrum stjórnendum ráðuneytisins og forstöðumönnum viðkomandi stofnana. Mannauðsstjóri tilheyrir skrifstofu ráðuneytisstjóra. Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst nk. Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt fylgigögnum um menntun og árangur í starfi og kynningarbréf þar sem tilgreind er ástæða umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu. Nánari upplýsingar veitir Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri, 545-8100 Ráðuneytið hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Nánari upplýsingar um starfið má finna á starfatorgi Stjórnarráðsins, www.starfatorg.is Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi. • Yfirgripsmikil reynsla og þekking á mannauðsmálum. • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogafærni. • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu. • Metnaður og vilji til að ná árangri. • Skipulagsfærni. • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti. • Góð kunnátta í ensku. Mannauðsstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu Smiðir og smíðahópar Verkvit, fagmennska og vilji til verka Sótt er um störfin á: www.alfred. is Nánari upplýsingar veitir Elva Dögg Pálsdóttir mannauðsstjóri: elva@bygg.is Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. óskar eftir smiðum, smíðahópum og verktökum til að takast á við spennandi verkefni. Helstu verkefni: Mótauppsláttur og klæðningar Viðhald og breytingar Almenn smíðastörf Menntunar- og hæfniskröfur: Sveinspróf í húsasmíði Handlagni og verkvit Frumkvæði, fagmennska og sjálfstæði í vinnubrögðum JAFNLAUNAVOTTUN 2021-2024 Bygg hf. hefur mörg verkefni í farvatninu og býður upp á framtíðarstörf hjá traustu fyrirtæki með mikla reynslu. Hjá fyrirtækinu starfa um 160 manns og fjöldi undirverktaka. Bygg hf. Er þekkt fyrir traust og örugg vinnubrögð, vandaðan frágang og efndir á umsömdum afhendingartíma.Við leggjum mikla áherslu á öryggi á vinnustað og búum yfir samheldnum starfsmannahópi sem starfar af fagmennsku og metnaði.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.