Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 45

Fréttablaðið - 13.08.2022, Page 45
Akademísk staða við lagadeild HR Nánari upplýsingar veita Eiríkur Elís Þorláksson, deildarforseti lagadeildar (eirikureth@ru.is) og Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri HR (esterg@ru.is). Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknum skal skilað á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík, jobs.50skills.com/ru/is. Umsóknarfrestur er til og með 10. september 2022. Lagadeild Háskólans í Reykjavík leitar að öflugum starfsmanni til að sinna kennslu og rannsóknum. Ráðið verður í stöðu sérfræðings, lektors, dósents eða prófessors út frá hæfismati. EFTIRFARANDI GÖGN ÞURFA AÐ FYLGJA UMSÓKNUM – Starfsferilskrá ásamt ritaskrá. – Afrit af viðeigandi prófskírteinum. – Yfirlit um fyrirhugaðar rannsóknir (research statement). – Afrit af þremur til fimm birtum ritverkum. – Yfirlit um fyrirhugaða kennslu og nálgun umsækjanda í kennslu (teaching statement). – Gögn til vitnis um árangur í kennslu. – Tilgreina að minnsta kosti tvo meðmælendur. – Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri og geta stutt umsóknina. HÆFNISKRÖFUR – Doktors- eða fullnaðarpróf í lögfræði. – Reynsla af fræðiskrifum í lögfræði. – Reynsla af kennslu á háskólastigi. – Áhugi á miðlun þekkingar til nemenda, fræðasamfélags og almennings. – Hæfni í mannlegum samskiptum. – Frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Viðkomandi mun sinna kennslu við lagadeild, stunda rannsóknir, leiðbeina nemendum í rannsóknarverkefnum og sinna tilfallandi verkefnum innan deildarinnar. Starfið veitir tækifæri til þess að hafa áhrif á þróun rannsókna og kennslu í lögfræði við háskóla sem hefur nýsköpun og frumkvöðlastarf að leiðarljósi. Háskólinn í Reykjavík Menntavegur 1 101 Reykjavík S: 599 6200 hr.is Nánari upplýsingar veita Dr. Ágúst Valfells, deildarforseti verkfræðideildar (av@ru.is) og Ester Gústavsdóttir, mannauðsstjóri HR (esterg@ru.is). Fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Umsóknum skal skilað á ráðningarvef Háskólans í Reykjavík, jobs.50skills.com/ru/is. Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2022. HÆFNISKRÖFUR – Doktorspróf í vélaverkfræði, framleiðslu- eða efnisverkfræði eða skyldum greinum. – Sérfræðiþekking á hermunarmiðaðri hönnun og þrívíddarprentun er nauðsynleg. – Reynsla af þrívíddarprentun fyrir heilbrigðistækni er kostur. – Reynsla af sjálfstæðum rannsóknum í hæsta gæðaflokki er æskileg. – Reynsla af kennslu og þróun námskeiða sömuleiðis. – Reynsla af þverfaglegu samstarfi og samstarfi við atvinnulífið er æskileg. Akademísk staða í hermunarmiðaðri hönnun og þrívíddarprentun Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík leitar að akademískum starfsmanni á sviði hermunarmiðaðrar hönnunar og þrívíddarprentunar (simulation-based design and additive manufacturing). Gert er ráð fyrir að viðkomandi verði leiðandi í rannsóknum, kennslu og samstarfi við atvinnulífið á þessum sviðum og taki virkan þátt í uppbyggingu þróunarseturs HR fyrir þrívíddarprentun. Leitað er að einstaklingi með mikinn áhuga á þverfaglegu samstarfi á sviði verkfræði og skyldra greina. Staðan getur verið allt frá lektor til prófessors, allt eftir hæfni og núverandi stöðu umsækjanda. Framgangur er háður formlegu mati samkvæmt háskólareglum. Viðkomandi þarf að vera fær um að þróa rannsóknarverkefni, fjármagna þau og ljúka farsællega. Háskólinn í Reykjavík hefur haslað sér völl sem öflugur rannsókna háskóli á alþjóðavísu. HR stenst samanburð við erlenda háskóla í fremstu röð. Fræðifólk skólans hefur náð framúrskarandi árangri og birtir niðurstöður í alþjóðlegum, ritrýndum tímaritum. Kennsla og rannsóknir við Háskólann í Reykjavík mótast af sterkum tengslum við atvinnulíf og samfélag. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, alþjóðlegt umhverfi, nýsköpun og góða þjónustu. HR er eftirsóknarverður vinnustaður og þar er lögð áhersla á fyrsta flokks aðstöðu í nærandi umhverfi, persónuleg samskipti, framsæknar kennsluaðferðir og nútímalega starfshætti. HR fagnar fjölbreytileika og mikið er lagt upp úr virðingu fyrir einstaklingum og störfum þeirra. Veitt eru jöfn tækifæri til stöðuveitinga og launa samkvæmt siðareglum og jafnréttisáætlun. Nemendur Háskólans í Reykjavík eru um 4.000 í sjö deildum. Starfsfólk skólans er 250 talsins auk fjölda stundakennara. 2022 - 2025

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.