Fréttablaðið


Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 66

Fréttablaðið - 13.08.2022, Qupperneq 66
Elín Albertsdóttir elin @frettabladid.is Bresku sakamálaþættirnir um Veru hafa notið mikilla vinsælda hér á landi sem og í öðrum löndum. Þótt leik- konan, Brenda Blethyn, sé orðin 76 ára er hún hvergi hætt, en upptökur á tólftu seríu stendur yfir. Það eru ekki allir leikarar sem hafa nóg að gera komnir hátt á áttræðisaldur. Brenda ætlar hins vegar að halda áfram að leika morð spæjarann Veru sem heillar áhorfendur með sínu skemmtilega fasi. Vera hikar ekki við að ræða við krimmana á svolítið dulúð- legan hátt þar sem hún endar setningar gjarnan á „elskan“. Vera hóf göngu sína árið 2011 og naut strax hylli. Í fyrstu þátta- röðunum lék leikarinn David Leon aðstoðarmann hennar, Joe Ashworth. Hann tók þá ákvörðun að hætta árið 2014 en Aiden Healy varð þá aðstoðarmaður en það er Kenny Doughty sem leikur hann. Aiden hefur verið við hlið Veru síðan. Brenda Blethyn hóf leikferil sinn á sviði 27 ára en bjóst ekki við á þeim tíma að hún myndi starfa við sjónvarp eða kvikmyndir. Hún hafði leikið í vinsælum þáttum og kvikmyndum þar til hún landaði hinni einu sönnu Veru. Þrátt fyrir velgengni þáttanna viðurkenndi leikkonan fyrir stuttu að ef henni væri boðið þetta hlutverk núna myndi hún líklega þurfa að endur- skoða það. Brenda sagði í þætti Graham Norton að ef henni hefði verið sagt á fyrsta degi að hún yrði að leika þessa konu sem jafnan klæðist grænum frakka og ber undarlegan hatt á höfði í tíu ár, væri hún ekki viss hvort hún hefði tekið hlutverkinu. Brenda sagði þetta reyndar í glettnislegum tóni. Land Rover með aukatröppu Graham benti á að velgengni þáttarins væri frábær auglýsing fyrir Land Rover sem er jeppinn sem Vera ekur. „Er hann ekki yndislegur þessi bíll?“ spurði hún á móti. „Þeir þurftu að setja auka- tröppu á hliðina svo ég kæmist inn og út úr honum,“ bætti hún við og hló. Upptökur þáttanna fara fram í kringum Newcastle á Englandi og ýmiss konar landslag kemur við sögu, ströndin, bryggjan, sveitin, borgin og jafnvel vindmyllur. Brenda hafði ekki komið á Norð- austurhluta Englands áður en hún byrjaði að leika Veru. Velgengni þáttanna hefur aukið mjög komu ferðamanna á þessar slóðir. Um 7,8 milljónir horfa á hvern þátt og þeir Slóttug en vingjarnleg leysir hún morðgátur Vera, eða Brenda Blethyn, og aðstoðar- maður hennar, Aiden, leikinn af Kenny Doughty, við upptökur á nýjustu þátta- röðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Brenda Blethyn er orðin 76 ára og hefur hlotið mörg verðlaun fyrir leik sinn, meðal annars tvær tilnefn- ingar til Óskars- verðlauna. Þessi mynd var tekin af henni 2019. Land Roverinn kemur mikið við sögu í þáttunum um Veru. Þar sem leikkonan er mjög lágvaxin þurfti að setja aukatröppu á bílinn svo hún kæmist inn og út úr honum. eru meðal mest seldu bresku saka- málaþátta á alþjóðlega vísu. Þótt Brenda sé þekktust fyrir leik sinn sem Vera er hún marg- verðlaunuð leikkona. Hún hefur hlotið Golden Globe og BAFTA, var valin besta leikkonan á kvik- myndahátíðinni í Cannes, auk þess að fá tvær tilnefningar til Óskarsverðlauna sem besta leik- kona í aðalhlutverki. Hún hóf ferilinn sem leikkona á sviði en fyrsta hlutverk í sjónvarpsþáttum fékk hún árið 1984. Með fram Veru hefur hún leikið í sjónvarpsþátt- unum Kate & Koji sem notið hafa vinsælda en þeir voru fyrst sýndir árið 2020. Þetta eru gamanþættir sem fjalla um verkakonu sem rekur gamaldags kaffihús í sjávarbæ og nær sérstakri vináttu við afrískan lækni sem leitar hælis í landinu. Í leiklist í ástarsorg Brenda hefur í gegnum tíðina viljað halda einkalífi sínu fjarri sviðsljósinu. Þegar hún er ekki að vinna er hún heima með eigin- manni sínum, Michael Mayhew leikstjóra. Reyndar getur vinnu- törn hennar tekið upp í sex mánuði í hvert skipti. Brenda og Michael giftu sig árið 2010 eftir að hafa verið trúlofuð í 35 ár. Í við- tali sagði hún að tími hefði verið kominn til að binda þessa hnúta. Brenda er tvígift en fyrrverandi eiginmaður hennar fór frá henni fyrir aðra konu árið 1973, eins og hún hefur sjálf sagt. Það var ekki síst því að þakka að Brenda fór í leiklistarnám í stað þess að festast í ástarsorg. Hún innritaði sig í Guildford School of Acting. Áður en hún kláraði námið var hún komin með tilboð um hlutverk hjá London Bubble Theatre Company. Leikhúsið var í tjaldi sem ferðaðist á milli hverfa í London. Brenda er barnlaus og sagðist í viðtali ekki sjá eftir þeirri ákvörð- un sinni að eignast ekki börn. „Það þýðir ekkert að sjá eftir því, það er bara sóun á orku. Ég á yndislegar frænkur og frænda,“ sagði hún í viðtali við Radio Times. Engin tískugella Brenda viðurkennir að hafa verið hissa þegar hún las fyrsta hand- ritið af Veru og spurt sjálfa sig af hverju hún hefði verið valin í þetta hlutverk. „Mér leist ekkert á persónuna fyrst en fór fljótlega að kunna vel við hana. Ég held að áhorfendur séu hrifnir af Veru vegna þess að hún er ekki ógn við neinn. Hún gengur hvorki með varalit né er tískugúrú. Hún biður ekki um að fólk sé hrifið af henni. Reyndar held ég að áhorfendur hafi ekki verið neitt sérlega hrifnir í upphafi. En vegna þess að sam- starfsfólk Veru ber virðingu fyrir henni tel ég að áhorfendur hafi farið að gera það líka. Persónan hefur vaxið með þeim,“ segir hún. Covid setti aðeins strik í reikninginn í framleiðslu þátt- anna. Huga þurfti að tveggja metra fjarlægð milli starfsmanna við gerð þeirra og þess vegna þurfti að finna rúmgott pláss til að gera innisenur. Bretar eiga enn eftir að sjá síðari hluta elleftu þátta- raðar og sú tólfta er í upptökum og verður vonandi sýnd síðar í haust. ITV-sjónvarpsstöðin sem framleiðir Veru hefur ekki gefið upp hvenær lokaþættir elleftu seríu fari í loftið en áhorfendur bíða spenntir. Vera lauk upptökum á nýjum þáttum af Kate & Koji á föstudegi og á mánudeginum á eftir hófust tökur á Veru. Það er því nóg að gera hjá leikkonunni þótt hún ætti að vera komin á eftirlaun. Skapaði Veru Þættirnir um Veru eru byggðir á bókum Ann Cleeves, en hún hefur fengið viðurkenningar fyrir glæpa- skrif. Hún er skapari Veru Stan- hope, einnig þáttanna Shetland og The Long Vall. Sjónvarpsþætt- irnir og bækurnar hafa fangað hug milljóna aðdáenda um allan heim. Ann býr á þeim slóðum sem þætt- irnir um Veru gerast. Í bókunum er Vera með húðsjúkdóm og þolir illa að vera í sól. Þess vegna er hún allt- af með hatt sem fylgdi persónunni í sjónvarpið. Höfundurinn hefur sagt að Brenda sé mun glæsilegri en sjálfur karakterinn í bókinni, sem var með exem á fótunum og alltaf í hræðilegum sokkum vegna þess. Brenda hefur reyndar kynnst Veru svo vel að hún kaupir föt á hana þegar hún fer út að versla. Í einni slíkri verslunarferð keypti hún hinn alræmda græna hatt á markaði í Newcastle. Þægileg stígvél sem Brenda keypti sér eru nú komin í fataskáp Veru. Vinátta hefur skapast á milli Brendu og Ann Cleeves. Höfundur- inn segist heyra rödd Brendu þegar hún skrifar um Veru. Stundum hefur Brenda komið með hug- myndir að samtali sem hún telur að sé frekar í samræmi við Veru en höfundurinn sjálfur hafði skrifað. Lesendur Washington Post völdu Veru í fimmta sæti yfir vin- sælustu krimmaþætti í sjónvarpi. „Hún er komin yfir Miss Marple,“ skrifar höfundurinn, Ann Cleeves, á Twitter-síðu sína. Óhugsandi án hattsins Þegar þættir eru vel heppnaðir skiptir aðalpersónan miklu máli. Þótt Vera sé ekki tískudama er hún óhugsandi án hattsins og frakkans. Sjálfstraustið skín af henni þegar hún leysir hvert morðmálið af öðru. Klæðnaður hennar verður partur af sögunni, ekki er mögu- legt að sjá Veru fyrir sér í nýtísku dragt. Það sama var með David Suchet sem lék Hercule Poirot, hann var klæðskerasaumaður í hlutverkið, það er enginn annar ekta Poirot. Þannig geta leikarar glætt persónur sínar lífi. Brenda Blethyn er ein þessara leikara. Hún er Vera. n 6 kynningarblað A L LT 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.