Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 90

Fréttablaðið - 13.08.2022, Side 90
Það er fullt af ungum mæðrum á Íslandi sem vilja samt keppa í svona keppni þannig að ég held að þetta breyti alveg leiknum. SÆTA SVÍNIÐ Borðapantanir og nánari upplýsingar á saetasvinid.is með Siggu Kling Alla sunnudaga kl. 21.00 Skemmtilegir vinningar Frí bingóspjöld Hrikalega gaman Stærstu breytingar á Miss Uni- verse Iceland frá upphafi hafa verið kynntar og taka gildi á næsta ári. Þar ber hæst að nú mega giftar konur og mæður loksins taka þátt. Manuela Ósk Harðardóttir segist hafa beðið þessara breytinga lengi. odduraevar@frettabladid.is „Ég er búin að vera að bíða eftir þessu alveg frá því ég byrjaði með keppnina árið 2016,“ segir Manuela Ósk Harðardóttir, framkvæmda- stjóri Miss Universe Iceland, en hingað til hafa konur ekki verið gjaldgengar í keppninni nema þær væru ógiftar og barnlausar. Þetta breytist með keppninni 2023 þegar reglubreytingarnar taka gildi. Ald- urstakmarkið á milli 18 til 28 ára stendur þó óhaggað. „Að mínu mati er þetta það eina sem hefur fengið verðskuldaða gagnrýni. Að þetta sé ekki í takti við nútímann og mér hefur sjálfri fundist það. Það er auðvitað verið að taka valið af konum með þessu,“ segir Manuela. Breytir leiknum Rökin fyrir reglunum voru þau að gríðarlegt álag er á sigurvegaranum en að keppninni lokinni flytur Miss Universe til New York þar sem hún starfar fyrir Miss Universe Organiza- tion í heilt ár – og ferðast um heim- inn og sinnir alls kyns krefjandi verkefnum. „Þótt kona sé gift þá getur hún samt ferðast ein, gert það sem hún vill og sinnt þessu starfi sem er að vera Miss Universe. Mér fannst þetta alltaf svakalega úrelt,“ segir Manuela, sem segir þetta þó aðeins flóknara fyrir mæður. „Auðvitað er það öðruvísi en ef það er það sem móðir velur, að keppa í Miss Universe og sinna því starfi, þá á það alltaf að vera hennar val. Þannig að ég tek þessu fagnandi,“ segir Manuela. Hún segir breytingarnar sérstaklega mikil- vægar fyrir íslensku keppnina. „Af því að við Íslendingar erum frekar ungir þegar við byrjum að stofna fjölskyldu. Frekar en til dæmis í Bandaríkjunum þar sem íhaldssemi er meiri og fólk byrjar kannski á að mennta sig, giftir sig og fer svo að eignast börn,“ segir Manuela. „Það er fullt af ungum mæðrum á Íslandi sem vilja samt keppa í svona keppni þannig að ég held að þetta breyti alveg leiknum.“ Margar jákvæðar fyrirmyndir Margt hefur verið rætt og ritað um Leikurinn jafnaður í Miss Universe Manuela Ósk, framkvæmdastjóri Miss Universe Iceland, fagnar reglubreyt- ingunum sem hún telur mjög svo þarfar og tímabærar. MYND/ARNÓR TRAUSTI Elísa Gróa Steinþórsdóttir sigraði í Miss Universe Iceland í fyrra. MYND/AÐSEND gildi fegurðarsamkeppna. „Ég hef alltaf skilið gagnrýnina á þessar reglur. En svo er önnur gagnrýni sem ég skil ekki og ég skrifa hana alltaf á fáfræði og það er gagnrýnin að svona keppni eigi yfirhöfuð ekki að viðgangast.“ Manuela segir keppnina ekkert líka þeim sem haldnar voru fyrir nokkrum áratugum. „Þetta er búið að breytast rosalega og núna er þetta miklu meira um valdeflingu og sjálf- styrkingu. Svona pínu eins og nám- skeið fyrir konur sem vilja bæta sig og styrkja, sama á hvaða sviði það er. Og eignast vinkonur fyrir lífstíð í leiðinni.“ Manuela segist hreykin af því hve margar jákvæðir fyrirmyndir hafi komið út úr keppninni. „Og nú bætast í hópinn f leiri konur sem geta tekið þátt ef þær vilja, en það fer engin í gegnum þetta ferli án þess að læra heilan helling um sjálfa sig, jafnvel sigrast á einhverjum ótta og getur í leiðinni verið jákvæð fyrir- mynd fyrir aðrar ungar konur.“ Hún bendir á að keppendur í Miss Universe Iceland hafi sumar hverjar keppt oftar en einu sinni, þrisvar og jafnvel fjórum sinnum. „Það er vegna þess að þær fá svo margt jákvætt út úr keppninni og það skiptir þær ekki einu sinni máli hve langt þær komast. Þetta snýst frekar um vegferðina en úrslitin.“ Æðislegur hópur Keppnin í ár fer fram í Gamla bíói þann 24. ágúst. „Þetta er alltaf sama stressið, ég skil ekki hvernig ég fer að þessu!“ segir Manuela hlæjandi. „En þetta er ótrúlega jákvætt stress, ég er svo spennt. Það er í þessu eins og öllu öðru, það eru alltaf einhverjir hnútar sem þarf að leysa á síðustu stundu og ég er í því síðustu dagana,“ útskýrir Manuela. „En þessi hópur af stelpum er æðislegur. Það hefur verið draumur að vinna með þeim og við hvetjum alla til að mæta í Gamla bíó og fylgjast með þessu,“ segir Manuela, sem bætir við að vænta megi frekari breytinga á keppninni að ári. „Við ætlum að prófa ýmislegt nýtt að ári og ég hlakka til að tilkynna það þegar þar að kemur.“ n toti@frettabladid.is „Það var hún Guðný Ásberg Alfreðs- dóttir, rekstrarstjóri Sambíóanna, sem fékk þessa frábæru og fallegu hugmynd að heiðra minningu Oli- viu Newton-John með því að sýna hinu sígildu klassík, Grease, aftur á hvíta tjaldinu,“ segir Alfreð Árnason, framkvæmdastjóri Sambíóanna, sem ætla að minnast Oliviu Newton- John, hinnar einu sönnu Sandy baby, með sérstakri Grease-sýningu síðar í mánuðinum. Alfreð segir að hugmynd dóttur hans hafi strax verið fylgt eftir með því að óska eftir leyfi til að sýna myndina. „Haft var samband við dreifingaraðila myndarinnar, Park Circus, og þetta gekk hratt og örugg- lega fyrir sig.“ Byrjað verður á einni Grease-sýn- ingu föstudaginn 26. ágúst í sal 1 í Sambíóunum Álfabakka en, „ef sýn- ingin heppnast vel og eftirspurnin verður meiri munum við klárlega íhuga að bæta við sýningum,“ segir Alfreð. „Á sýningunni sjálfri hvetjum við alla til þess að taka þátt í stemning- unni með okkur, draga leðurjakkana og kjólana úr fataskápnum og setja gel eða tíkó í hárið.“ n Sandy og Danny finna aftur neistann sem kippir þeim í gír í Álfabakkanum. Sambíóin sýna Grease til heiðurs Newton-John toti@frettabladid.is Benni Hemm Hemm, Urður og Kött Grá Pje gáfu í gær út lagið Á óvart en útgáfan markar ýmis tímamót á ferlum þeirra sem að því koma. Langt er síðan heyrst hefur í bæði KGP og Urði, auk þess hafa KGP og Urður aldrei hist. Þá hefur Urður aldrei sungið á íslensku áður og síðast en ekki síst er Á óvart fyrsta rapplagið sem Benni Hemm Hemm gefur út þannig að hann kemur þarna úr nokkuð óvæntri átt og svo sannarlega á óvart. Lagið, sem kemur út undir merkjum Alda Music, er eftir Benna Hemm Hemm en textann semur hann með Atla Sigþórs- syni. n Komið á óvart Lagið kemur um margt á óvart. Benni Hemm Hemm. n Fréttir af fólki Þetta gekk hratt og örugglega fyrir sig. 50 Lífið 13. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 13. ágúst 2022 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.