Læknablaðið - 01.06.2021, Qupperneq 14
282 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
R A N N S Ó K N
alvarlegi fylgikvillinn var hjartadrep sem tengdist aðgerð (11,9%)
en næst á eftir komu enduraðgerðir vegna blæðingar (8,9%). Aðrir
alvarlegir fylgikvillar voru sjaldgæfari en enginn sjúklingur fékk
djúpa bringubeinssýkingu, bráðan lungnaskaða eða nýrnaskaða
sem krafðist blóðskilunar. Algengustu minniháttar fylgikvillarnir
voru nýtilkomið gáttatif/-flökt (43,8%) og væg hjartabilun
(20,8%). Þá voru 11 sjúklingar sem þurftu aftöppun á annaðhvort
fleiðruvökva (7,9%) eða gollurshúsvökva (3,0%). Tveir sjúklingar
(2%) létust innan 30 daga frá aðgerð.
Í töflu IV má sjá síðkomna fylgikvilla (> 30 dögum eftir aðgerð).
Tíu sjúklingar (9,9%) fengu meðal eða mikinn endurkominn mítur-
lokuleka á eftirfylgdartímabilinu og svipaður fjöldi þurfti innlögn
vegna langvinnrar hjartabilunar (10,9%). Fjórir sjúklingar fengu
IV) en einnig voru 83,2% sjúklinga í ASA-flokki III eða IV. Miðgildi
EuroSCORE II fyrir hópinn var 1,17 (bil 0,5-12,79).
Niðurstöður hjartaómunar fyrir aðgerð má sjá í töflu II. Þver-
mál vinstri slegils var að meðaltali 56 ± 9 mm í lok hlébils og 39
± 8 mm í lok slagbils. Þvermál vinstri gáttar var að meðaltali 45
± 7 mm og þykkt vinstri slegils 11 ± 2 mm. Tæplega þriðjungur
sjúklinga (28,7%) var með skert útfallsbrot (<60%) og um þriðjung-
ur (30,7%) með lungnaháþrýsting (>30 mmHg í slagbilsþrýstingi).
Meirihluti sjúklinga var með mikinn míturlokuleka (76,2%) og
helmingur hafði slitið lokustag (49,5%) á hjartaómun fyrir aðgerð.
Aðgerðartengdir þættir eru sýndir í töflu III. Miðgildi að-
gerðartíma var 239 mínútur (bil 127-761) en þar af var vélartími
139 mínútur (bil 60-708) og tangartími 102 mínútur (bil 49-398).
Bæði vélar- (167 mínútur) og tangartími (118 mínútur) voru
lengri ef sjúklingar gengust undir aðra hjartaaðgerð samhliða
(p=0,02). Rúmlega helmingur sjúklinga (59,4%) gekkst undir aðra
aðgerð samhliða míturlokuviðgerð en þar voru algengastar við-
gerðir á þríblöðkuloku (23,8%), Maze-aðgerð (20,8%) og kransæða-
hjáveita (17,8%). Í aðgerðinni fengu allir sjúklingar nema einn
gervihring og brottnám á hluta lokublaðs var framkvæmt hjá
82,2% sjúklinga, oftast á aftara lokublaði (96,4%). Í aðgerð reyndist
framfall á aftara (87,1%) blaði mun algengara en á því fremra
(31,7%) en 21,8% voru bæði með framfall á fremra og aftara blaði.
Gore-Tex® gervistög voru sett hjá 64,4% sjúklinga, annaðhvort til
að bæta slitin lokustög eða til að styðja við lokustög sem höfðu
lengst eða voru að öðru leyti skemmd.
Miðgildi legutíma eftir aðgerð var 8 dagar (bil 0-34), þar af
einn dagur á gjörgæslu (bil 0-10). Legutími var lengri hjá þeim
sem gengust undir Maze-brennsluaðgerð samhliða mítur-
lokuviðgerðinni (9,7 dagar) samanborið við þá sem fóru ekki í
Maze (7,1 dagur) (p=0,02). Fyrstu 30 dagana eftir aðgerð greindust
alvarlegir fylgikvillar hjá 29 sjúklingum (28,7%) og minniháttar
fylgikvillar hjá 60 sjúklingum (59,4%) (tafla IV). Algengasti
Tafla II. Helstu niðurstöður hjartaómskoðunar fyrir aðgerð. Gefin eru upp meðaltöl
með staðalfráviki eða fjöldi (%).
Heildarfjöldi (n=101)
Stærð hjartahólfa
Þvermál vinstri slegils við lok hlébils (mm) 56 ± 9
Þvermál vinstri slegils við lok slagbils (mm) 39 ± 8
Þykkt vinstri slegils (mm) 11 ± 2
Þvermál vinstri gáttar (mm) 45 ± 7
Útstreymisbrot vinstri slegils
≤30% 1 (1,0)
31-59% 29 (28,7)
≥60% 71 (70,3)
Lungnaháþrýstingur
31-55 mmHg 23 (22,8)
>55 mmHg 8 (7,9)
Mikill míturlokuleki 77 (76,2)
Slitið lokustag 50 (49,5)
Ósæðarlokuleki 13 (12,9)
Ósæðarlokuþrengsli 2 (2,0)
Tafla III. Aðgerðartengdir þættir, legutími og blæðingar eftir aðgerð. Gefinn er upp
fjöldi (%), meðaltal með staðalfráviki eða miðgildi [lægsta gildi, hæsta gildi].
Heildarfjöldi (n=101)
Bráðaaðgerð 3 (3,0)
Önnur aðgerð samtímis 60 (59,4)
Kransæðahjáveituaðgerð 18 (17,8)
Ósæðarlokuskipti 5 (5,0)
Viðgerð á þríblöðkuloku 24 (23,8)
Maze-aðgerð 21 (20,8)
Önnur aðgerð 20 (19,8)
Aðgerðartími (mínútur) 239 [127,761] a
Tími á hjarta og lungnavél (mínútur) 139 [60,708] b
Tangartími (mínútur) 102 [49,398] c
Tími í öndunarvél (klukkustundir) 12 [0,216] d
Legutími 8 [0,34]
Gjörgæsla 1 [0,10]
Legudeild 7 [0,27]
Blæðing fyrsta sólarhring eftir aðgerð (mL) 530 [0,2300]
Gervihringur 100 (99,0)
Stærð (mm) 30 ± 2
Brottnám á hluta lokublaðs 83 (82,2)
Eingöngu fremra 1 (1,2)
Eingöngu aftara 80 (96,4)
Bæði fremra og aftara 2 (2,4)
Sjúkdómsmynd í fremra lokublaði
Framfall 32 (31,7)
Þrengsli 1 (1,0)
Hvorki framfall né þrengsli 68 (67,3)
Sjúkdómsmynd í aftara lokublaði
Framfall 88 (87,1)
Þrengsli 1 (1,0)
Hvorki framfall né þrengsli 12 (11,9)
GoreTex® gervistög 65 (64,4)
Alfieri-saumur 1 (1,0)
aUpplýsingar um aðgerðartíma vantaði hjá 9 sjúklingum, bvélartíma vantaði hjá þremur sjúk-
lingum, ctangartíma hjá þremur sjúklingum, dtíma á öndunarvél hjá 13 sjúklingum og eblæðingu
fyrsta sólarhringinn eftir aðgerð hjá 55 sjúklingum.