Læknablaðið - 01.06.2021, Qupperneq 29
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 297
Fertug kona með hósta
og brjóstverk
• Tilfelli mánaðarins •
Haukur Kristjánsson1
Jón Gunnlaugur Jónasson2,3
Per Martin Silverborn4
Sigríður Ólína Haraldsdóttir5
Tómas Guðbjartsson3,6
Allir höfundarnir eru læknar
1Landspítali, 2meinafræðideild Landspítala, 3læknadeild Háskóla Íslands, 4hjarta-
og lungnaskurðdeild Sahlgrenska háskólasjúkrahússins, Gautaborg, Svíþjóð,
5lungnadeild Landspítala, 6hjarta- og lungnaskurðdeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Haukur Kristjánsson, haukurk@landspitali.is
Höfundar fengu samþykki sjúklingsins fyrir þessari umfjöllun
og birtingu.
Tilfellið
Hraust kona sem aldrei hafði reykt leitaði endurtekið til læknis
á þriggja mánaða tímabili vegna þurrs hósta, þyngslaverks fyrir
brjósti og vægrar mæði. Lífsmörk voru eðlileg og skoðun ómark-
verð, þar á meðal hjarta- og lungnahlustun. Hjartalínurit og tróp-
ónín T var eðlilegt en væg hækkun var á hvítum blóðkornum og
C-reactive protein (CRP) sem mældist 67 mg/L. Á röntgenmynd af
lungum sást þétting hægra megin í miðmæti (mynd 1A). Tölvu-
sneiðmynd (mynd 1B) og segulómskoðun (mynd 1C) sýndu að
um fyrirferð var að ræða. Miðmætisspeglun gaf ekki greiningu
og því var gerð ástunga á fyrirferðina í gegnum brjósthol með
aðstoð tölvusneiðmynda og eru vefjalitanir sýndar á mynd 2.
• Hver er greiningin?
• Hverjar eru helstu mismunagreiningar
og hvaða meðferð er réttast að beita?
Mynd 1. A) Röntgenmynd af lungum.
B) Tölvusneiðmynd af brjóstholi,
langsnið. C) Segulómskoðun af
brjóstholi, þversnið.
Mynd 2. A) Hematoxylin
og eosin-litun á vefjasýni úr
miðmæti. B) Sérlitun fyrir
desmín. C) Sérlitun fyrir smooth
muscle actin (SMA).
A B C