Læknablaðið - 01.06.2021, Side 32
300 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
F R É T T I R
„Það horfir ekkert
sérstaklega vel í dreif-
býlinu. Kannski er það
eitthvað í samfélags-
myndinni. Fólk vill ekki
þessa vaktabindingu
og það vill búa á stærri
stöðum. Samanburður
launa dreifbýlis og þétt-
býlis er ekki hagstæður fyrir landsbyggð-
ina,“ segir Jón Helgi Björnsson, forstjóri
Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. 15%
stöðugilda lækna séu leystar í verktöku.
Læknablaðið heyrði í forstjórum
sjúkrastofnana um landið og spurði um
mönnun. Samhljómur var í svörum þeirra.
Hvatinn til að starfa úti á landi væri ekki
mikill.
Gylfi Ólafsson,
forstjóri Heilbrigðis-
stofnunar Vestfjarða,
segir nýja reglugerð
heilbrigðisráðuneytisins
kveða á um að stofnanir
heilbrigðisumdæma
geri árlega starfsáætlun,
áætlun um mönnun og mönnunarþörf sem
tekur mið af þarfagreiningu. Nú sé unnið
að þessu formlega í fyrsta sinn.
Höfuðborgin heldur fast í læknana
Samanburður launa lækna eftir dreifbýli og þéttbýli er dreifbýlinu ekki hagstæður, segja forstjórar
heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni sem þurfa nú að meta þörf á mönnun samkvæmt nýrri reglugerð
heilbrigðisráðuneytisins
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Kostnaðarsamt að jafna tækifærin
„Eftir því sem launin hækka í Reykjavík
þurfum við að greiða læknum meira til
að koma hingað. Ekki endilega til að yfir-
borga heldur til að jafna,“ segir Gylfi.
„Góðir tekjumöguleikar eru í Reykjavík
fyrir lækna. Það er kostnaðarsamt að ná
kjörum hjá okkur upp í hliðstæð laun.
Nefna má að ferðadagar, sem eru kannski
hálfir dagar hér og þar, geta verið afar
kostnaðarsamir því fórnarkostnaður
lækna er svo hár,“ bendir hann á.
Stofnaður hafi verið vinnuhópur til að
skoða með hvaða hætti megi bæta kjörin á
landsbyggðinni, eins og samið var um við
gerð kjarasamningsins. Hann hafi þegar
hafið störf.
„Hópurinn á að skila tillögum að
úrbótum þann 1. okt 2021 og jákvætt að
læknar sjálfir hafi aðkomu að málinu
með þessum hætti. Ég er vongóður um
að þetta gangi vel upp. Þá hefur María
Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga,
sagt að við endurskoðun á samningi við
sérgreinalækna verði ákvæði um þjónustu
við landsbyggðina. Það er ekki búið að
formgera það en við erum vongóð um að
það verði hagfellt fyrir alla,“ segir Gylfi
og leggur áherslu á að mikilvægt sé að
landsbyggðin reiði sig ekki einvörðungu á
héraðsvitund sérgreinalæknanna sjálfra,
heldur verði hvatinn innbyggður í kerfið.
Róðurinn þyngist á landsbyggðinni
„Þetta er gömul saga og ný og stafar af
ýmsum ástæðum,“ segir Gylfi. „Eftir
því sem tækni og þekkingu fleygir fram
verða læknarnir sérhæfðari og þurfa því
stærra upptökusvæði til að þeir geti sinnt
sérgrein sinni. Þeim fækkar til að mynda
sem titla sig almenna skurðlækna,“ bendir
hann á. Því þyngist róðurinn enn á lands-
byggðinni þegar kalla eigi lækna til starfa
og afleysinga.
Díana Óskarsdóttir, forstjóri Heil-
brigðisstofnunar
Suðurlands, segir
læknaskort vandamál
og fólk sé því dekstrað
með samningum til að
koma út á land.
„Við erum þokka-
lega vel mönnuð eins
og er. Við höfum
þó áhyggjur því við
erum með lækna sem komnir eru á aldur
og vitum ekki hvað tekur við þegar þeir
hætta. Við höfum verið heppin því ungir
Greiða Hvidovre 147 danskar krónur fyrir greiningu leghálssýna
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins greið-
ir 145 danskar krónur fyrir greiningu á
hverju leghálssýni til dönsku meinafræði-
deildarinnar og 2 danskar krónur auka-
lega fyrir geymslu í lífsýnabanka. Hvert
þeirra kostar því rúmar 2987 íslenskar
krónur hjá Amager og Hvidovre sjúkra-
húsinu, miðað við miðgengi Seðlabankans
17. maí.
Samkvæmt frétt RUV 15. apríl segir
heilbrigðisráðuneytið að Landspítali hafi
metið kostnaðinn 3656 kr. á sýni en 9587
kr. á sýni þegar veirugreining leiddi
eitthvað athugavert í ljós, ólíkt því danska.
því ætla að upphæðin verði á bilinu rúm-
ar 179 milljónir íslenskra króna til 224
milljónir á samningstímanum sem nær til
ársloka 2023.
Heilsugæslan gaf verðið upp eftir að
Læknablaðið kærði ákvörðun um að leyna
því til Kærunefndar um upplýsingamál.
Heilsugæslan féllst í kjölfarið á rök Lækna-
blaðsins um að upplýsingarnar varði al-
mannahagsmuni.
Samningurinn var undirritaður 18.
febrúar 2021 en Heilsugæsla höfuðborgar-
svæðisins tók við þjónustunni af Leitar-
stöð Krabbameinsfélagsins um áramót.
Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins, segir það
nú í höndum ráðuneytisins að ákveða
hvort staðið verði við danska samninginn
eða samið við Landspítala. „Við erum til
í báða.“ Hann segir þjónustuna örugga í
höndum dönsku meinafræðideildarinnar.
„En hún gengur hægar en við hefðum
viljað sjá. Við erum því að setja mikinn
kraft í að laga það sem þarf svo að við
náum þeirri stöðu sem við teljum ákjósan-
legasta.“
Í samningnum við Hvidovre er búist
við að sýnin verði um 20-25.000 ári. Má
Jón Helgi Björnsson,
forstjóri HSN.
Gylfi Ólafsson, for-
stjóri HVEST.
Díana Óskarsdóttir,
forstjóri HSU.