Læknablaðið - 01.06.2021, Qupperneq 38
306 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
V I Ð T A L
Skipti um sérgrein
Guðrún ætlaði að verða lyf- og bráðalækn-
ir en fékk klínískan leiðbeinanda á offitu-
og sykursýkismóttökunni eftir að hún hóf
sérnámið í Svíþjóð.
„Ég skipti því um sérgrein með tveggja
daga fyrirvara þegar ég frétti af lausri
stöðu hjá þeim. Hélt áfram í lyflækn-
ingum en með offitu- og sykursýki sem
undirsérgrein,“ segir hún. Hún hafi áhuga
á forvörnum.
„Mér finnst erfið tilhugsun að við
séum alltaf að meðhöndla sjúkdóma en
vinnum ekki að því að fyrirbyggja þá.“
Sérgreinin heilli enda framfarir miklar,
sérstaklega þegar litið er til sykursýki 1;
í insúlínpumpum og blóðsykursmælum.
Einnig í sykursýki 2. „Þar er lyfjaþróunin
hröð.“ Hún nærist einnig á að fylgja sjúk-
lingunum eftir og ná árangri með þeim.
Gott samband við fólk skipti þar miklu.
„Langflestir þeirra sem njóta þjónustu
offitumóttökunnar hafa mætt miklum
fordómum í heilbrigðiskerfinu. Viðmótið
hefur verið leiðinlegt og leitt að heyra það.
Fólk hefur nefnt að því finnist því í fyrsta
sinn vera mætt af virðingu á offitumót-
tökunni,“ segir hún.
„Það er dásamlegt að útskrifa einstak-
linga með breytta og bætta líðan.“ Geta
sýnt fólki breytingar á blóðþrýstingi, blóð-
fitu og -sykri. Þá sé jafnvel búið að draga
úr annarri lyfjanotkun. „Margir hugsa
um offitumeðferðir útfrá útliti. Margir
einblína á að vera í eðlilegri þyngd en í
rauninni er allt þyngdartap af hinu góða,“
segir hún.
„Útskýra þarf mikilvægi þess að setja
sér markmið sem hægt er að ná. Annars
er svo auðvelt að gefast upp. Þyngdartap
upp á 5-10% hefur heilmikið að segja.“
Nærri áratug í Svíþjóð
Guðrún flutti til Svíþjóðar 2012, lauk
sérfræðinámi í lyflækningum 2017 og
hóf sama ár störf á offitumóttökunni á
Sahlgrenska. Á heimleið?
„Við Íslendingar erum þjóðrækin.
Okkur langar heim. Ég á fjölskyldu heima
og hef ekki farið heim í tvö ár og langar
mikið að koma heim en það er gott að búa
í Svíþjóð með börn.“
Guðrún og maður hennar, Einar Hauk-
ur Óskarsson, eiga tvær dætur, 6 og 11
ára. „Þær líta á sig sem Íslendinga sem eru
tímabundið í Svíþjóð og það þótt sú yngri
hafi fæðst hér ytra.“
Guðrún er úr Mosfellsbænum en varði
bernskusumrunum í Mývatnssveit. Pabbi
hennar er prófessor í málvísindum við
HÍ og mamma talmeinafræðingur. „Þau
kenndu bæði við háskólann og smituðu
mig af kennsluáhuga,“ svarar hún spurð
um hvort hún hafi fetað í spor foreldranna.
En mun doktorsgráðan breyta lífinu?
„Maðurinn minn svarar því neitandi,“
segir hún og hlær. „Hann segir að ég
muni finna mér nýtt viðfangsefni. En ég
hugsa að ég haldi áfram með rannsóknir í
vélanámi (machine learning) og gervigreind
og skoði betur hópinn sem fór í lyfjameð-
ferðina. Skoði betur hvað skiptir máli svo
lyfjameðferðir beri góðan árangur. Það er
næst á dagskrá.“
Guðrún tók myndina af kirsuberja-
trénu sem er nú í fullum skrúða fyrir
utan sjúkrahúsið í Gautaborg.
Yfirlæknir
Sjúkratryggingar Íslands óska eftir að ráða yfirlækni í 100% starf á Réttindasviði stofnunarinnar.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi stjórnunarstarf.
Helstu verkefni yfirlæknis:
• Stjórnun læknadeildar SÍ
• Læknisfræðileg ráðgjöf vegna verkefna Sjúkratrygginga Íslands s.s. vegna
mats á gæðum þjónustu, forgangsröðun og fleira
• Ráðgjöf varðandi gagnreynda læknisfræði
• Samskipti við lækna og sjúkrahús, innanlands og utan, vegna læknismeðferðar erlendis
• Aðkoma að ákvörðunum varðandi sjúklingatryggingu og slysatryggingar (bótaskylda og
mat á miska).
Hæfniskröfur:
• Sérfræðiviðurkenning í læknisfræði
• Starfsreynsla sem sérfræðingur æskileg
• Þekking og reynsla á sviði gagnreyndrar læknisfræði æskileg
(s.s. gerð klínískra leiðbeininga)
• Reynsla af matsstörfum æskileg
• Nákvæmni í starfi, vönduð og skipuleg vinnubrögð
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi og hæfni til að starfa sjálfstætt sem og í hópi
• Jákvætt viðmót og samskiptahæfileikar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.
Umsækjendur eru beðnir um að sækja um störfin á heimasíðu Sjúkratrygginga: www.sjukra.is/starf.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Öllum umsóknum verður svarað
þegar niðurstaða um ráðningu liggur fyrir. Bæði karlar og konur eru hvött til þess að sækja um starfið.
Umsókn gildir í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands
í síma 515 0000.
Upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.sjukra.is
Umsóknarfrestur er til og með 10.06.2021