Læknablaðið - 01.06.2021, Síða 46
314 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
A L Þ I N G I S K O S N I N G A R 2 0 2 1
Stoðir opinbera heilbrigðiskerfisins eru þrjár: spítalar, heilsugæslan og stofur
sérgreinalækna. Ríkið ver innan við 5% útgjalda til heilbrigðismála til þeirra
síðastnefndu. Hver er afstaða framboðs ykkar til stofureksturs sérgreinalækna? Er að
ykkar mati æskilegt að samningur sé í gildi við sérgreinalækna?
2. SPURNING
Mikilvægt að nýta sérþekkingu sérgreinalækna
Flokkur fólksins telur að mikilvægt sé að nýta þá sérþekk-
ingu sem íslenskir sérgreinalæknar búa yfir. Það er fásinna
að senda fólk í aðgerðir erlendis í stað þess að leyfa því að
fara í sömu aðgerð niðri í bæ. Hins vegar þarf að gæta þess
að hagsmunaárekstrar séu ekki til staðar. Vegna þess vill
Flokkur fólksins að ríkið gangi frá samningum við sér-
greinalækna en geri þær kröfur að sérgreinalæknar starfi
ekki samhliða fyrir hið opinbera. Þá vill Flokkur fólksins
leggja áherslu á að kostnaðargreina þá þjónustu sem sér-
greinalæknar veita og auka eftirlit með útseldri þjónustu.
Meta þarf þjónustuþörf og bjóða um land allt
Mikilvægt er að skilgreina hvaða þjónustu ríkið ætlar sér
að kaupa af sérgreinalæknum og hvaða þjónustu skuli veita
inni á háskólasjúkrahúsi. Þá er mikilvægt að samningar við
sérgreinalækna tryggi að þeir veiti þjónustu um land allt, án
þess að heilbrigðisstofnanir landshlutanna beri aukakostnað
af því. Skilgreina þarf þörfina með tilliti til eftirspurnar.
Framsóknarflokkurinn telur afar mikilvægt að ávallt liggi
fyrir samningar við sérgreinalækna. Þá er mikilvægt að
nýta þekkingu og færni til hins ýtrasta með sem lægstum
tilkostnaði og að sú þjónusta sem nauðsynlegt er að kaupa
og veita sé í fullu samræmi við áætlanir stjórnvalda. Alþingi
hefur samþykkt Heilbrigðisstefnu fram til ársins 2030, þar er
komið inn á mikilvægi þess að rétt þjónusta sé veitt á réttum
stað. Meginmarkmið Heilbrigðisstefnunnar er að allir lands-
menn eigi kost á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem tök
eru á að veita á hverjum tíma til að vernda andlega, líkam-
lega og félagslega heilsu fólks.
Skilgreina þarf hvaða þjónustu
sérgreinalæknar veita
Miðflokkurinn telur að starfsemi sérgreinalækna sé ein af
grunnstoðum heilbrigðiskerfisins. Mikilvægt er að ná sátt
um hvernig þessari þjónustu verður háttað. Skilgreina þarf
hvaða þjónustu sérgreinalæknar veita og hvaða þjónustu eigi
eingöngu að veita á fyrsta stigi heilbrigðisþjónustunnar. Skil-
greina þarf hvaða þjónusta sérgreinalækna skuli veita inni á
háskólasjúkrahúsi. Skipuleggja þarf sérfræðiþjónustu hvers
heilbrigðisumdæmis út frá þörfum íbúanna. Í því sambandi
þarf að skilgreina hvaða þjónustu sérgreinalækna er enn
hægt að veita á þeim sjúkrahúsum sem í dag eiga í vök að
verjast vegna erfiðleika við að manna stöður sérgreinalækna
og annars heilbrigðisstarfsfólks. Ein leið til að tryggja að-
gengi landsbyggðarinnar að sérfræðiþjónustu er að hlutverk
spítala landsins verði skilgreint þannig að þeim beri að sjá
heilbrigðisstofnunum landsins fyrir þjónustu sérgreina-
lækna og vinna gegn biðlistamenningu sem því miður er
vaxandi í þjóðfélaginu.
Stefna að samningum við alla sérgreinalækna
Píratar stefna að því að heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls
fyrir almenning. Aðgengi að sérgreinalæknum er þar ekki
undanskilið. Því er ljóst að Píratar stefna að samningum við
alla sérgreinalækna. Hlutfallsleg skipting milli heilsugæslu,
sjúkrahúsa og sérgreinalækna ræðst af þörf almennings fyrir
þjónustuna, ekki af Excel-skjölum heilbrigðisráðuneytisins.
Píratar eru ekki á þeirri skoðun að allt heilbrigðisstarfsfólk
verði að vera opinberir starfsmenn.