Læknablaðið - 01.06.2021, Síða 47
L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107 315
Gildandi samningar um magn, tegund og gæði
Mikilvægt er að í gildi séu samningar um heilbrigðisþjónustu
við allar heilbrigðisstéttir sem falla undir greiðsluþátttökukerfi
ríkisins, þ.m.t. sérfræðilækna. Í slíkum samningum þarf að
kveða á um magn, tegund og gæði þjónustunnar, í takti við
þarfir sjúkratryggðra. Einnig er mikilvægt að við samnings-
gerð sé tryggður jafn aðgangur allra að þjónustu, óháð félags-
legri stöðu og búsetu eða öðrum þáttum, og að rétt þjónusta sé
veitt á réttum stað í heilbrigðiskerfinu.
Sérfræðilæknum gefist færi á sjálfstæði
Þjónusta sjálfstætt starfandi sérgreinalækna byggist á göml-
um grunni, allt frá upphafsárum síðustu aldar. Mikilvægt er
að sérgreinalæknar sem sækja langt og kostnaðarsamt nám
erlendis sjái ástæðu til að snúa aftur heim að námi loknu,
þannig að nauðsynleg þekking og þjónusta verði áfram til
staðar hér á landi. Í því skyni er mikilvægt að þeim gefist
færi á að stunda sjálfstæða starfsemi og verða frumkvöðlar,
en séu ekki dæmdir til þess að vinna eingöngu innan ríkis-
rekstrarformsins
Sjálfstæðisflokkurinn telur mjög mikilvægt að samningar
náist við sérgreinalækna. Það er ekki síst ein af forsendum þess
að allir geti sótt niðurgreidda þjónustu óháð rekstrarformi og
að hér verði ekki til það sem kalla má tvöfalt heilbrigðiskerfi.
Samstarf við sérgreinalækna tryggi góða þjónustu
Samfylkingin vill að hér á landi sé rekið stöndugt og gjald-
frjálst opinbert heilbrigðiskerfi sem tryggir jafnari aðgang
allra að nauðsynlegri og góðri heilbrigðisþjónustu. Spítalar og
heilsugæsla munu ekki sinna öllum þeim verkefnum sem inna
þarf af hendi í þágu heilbrigðis þjóðar og því verður einnig að
koma til samstarf við sérgreinalækna til að tryggja góða heil-
brigðisþjónustu, auk þess sem eingöngu þeir og aðrir sjálfstæðir
rekstraraðilar sinna ákveðnum þáttum heilbrigðisþjónustu.
Stjórnvöld þurfa að axla ábyrgð á almannahagsmunum með því
að vera upplýstur og gagnrýninn kaupandi þjónustunnar. Því
vill Samfylkingin tryggja virkt gæðaeftirlit, hvort tveggja með
einkarekinni sem og opinberri heilbrigðisþjónustu og því þarf
að efla eftirlitshlutverk Embættis landlæknis til muna. Sjúkra-
tryggingar Íslands verða að auki að sinna því lögbundna hlut-
verki sínu að kostnaðargreina þau verk sem keypt eru enda leið-
ir vanfjármögnun eingöngu til þess að þjónustuveitendur verða
að minnka gæði þjónustu sem veitt er. Það þarf að tryggja jafnt
aðgengi landsmanna að sérhæfðri þjónustu með samningum
við heilbrigðisstofnanir í öllum landshlutum, bæði með stað- og
fjarlækningum.
Sjálfstætt starfandi fagfólk mikilvægur hluti af kerfinu
Sjálfstætt starfandi fagaðilar eru mikilvægur hluti af opinbera
heilbrigðiskerfinu. Viðreisn vill nýta krafta þeirra til að styðja
við ríkisrekna hluta opinbera kerfisins. Þannig getum við veitt
fjölbreytta notendamiðaða þjónustu og unnið með markvissum
hætti á þeim margþætta biðlistavanda sem hrjáir íslenskt heil-
brigðiskerfi. Markmiðið verður að vera að nýta þá fjármuni sem í
boði eru á sem hagkvæmastan máta til að tryggja gæðaþjónustu
og almennt og jafnt aðgengi að þjónustunni. Þess vegna styður
Viðreisn að samningar séu í gildi við sérgreinalækna.
Viðreisn leggur einnig áherslu á að aðgengi almennings að
þjónustu sjálfstæðra sálfræðinga verði aukið. Þess vegna lagði
Viðreisn til, og fékk samþykkt, að Sjúkratryggingar taki til
nauðsynlegrar sálfræðimeðferðar og annarrar gagnreyndrar
samtalsmeðferðar heilbrigðisstarfsmanna. Sú heimild hefur ekki
verið nýtt eða fjármögnuð af núverandi ríkisstjórn.