Læknablaðið - 01.06.2021, Blaðsíða 48
316 L ÆK N A BL AÐIÐ 2021/107
A L Þ I N G I S K O S N I N G A R 2 0 2 1
Viðbrögð íslenskra stjórnvalda í COVID-19 hafa verið leidd af fagfólki í
heilbrigðismálum. Ekki er fyrirsjáanlegt að farsóttin hverfi úr alþjóðasamfélaginu í
bráð. Telur flokkur þinn rétt að sóttvarnalæknir leiði næstu aðgerðir eða á að breyta
áherslunum? Hvert á hlutverk löggjafarvaldsins að vera?
3. SPURNING
Fagfólkið veiti ráð og
framkvæmdavaldið beri ábyrgð
Við teljum rétt að við reiðum okkur á ráð fagfólks, þar með
talið sóttvarnalæknis, þegar kemur að aðgerðum gegn
COVID-19. Ákvarðanataka og ábyrgð hlýtur þó ávallt að
hvíla á framkvæmdavaldinu, það er ríkisstjórn og ráðherrum
hennar. Við myndum vilja sjá meira samráð við löggjafann,
það er Alþingi, en verið hefur í þessum efnum. Hlutverk
löggjafans er að koma með tillögur og veita stjórnvöldum
aðhald, m.a. með umræðum. Við teljum að öll umræða
um þessi mál sé af hinu góða. Baráttan gegn COVID-19 er
samfélagslegt verkefni. Flokkur fólksins hefur frá upphafi
stutt strangar aðgerðir í þeirri vinnu svo halda mætti smiti
innanlands í algeru lágmarki og helst útrýma því.
Meta aðgerðir, fara að lögum og tryggja efnahag
Hlutverk löggjafans er að meta þær aðgerðir sem
sóttvarnalæknir leggur til og meta hvaða áhrif þær
hafa. Tryggja verður eins vel og unnt er heilsu fólks
ásamt samspili milli heilsu og efnahags þjóðarinnar.
Hlutverk löggjafans er einnig að bregðast við tillögum
sóttvarnalæknis ef breyta þarf reglugerðum, lögum eða
öðru slíku svo aðgerðir hans nái fram að ganga og
standist lög.
Fylgja leiðsögn sérfræðinga og lögum
Stjórnvöld hafa eftirlátið sérfræðingum að stýra sóttvörnum,
sem hefur gefið góða raun og er ástæða til að fylgja áfram
þeirri stefnu að fylgja leiðsögn þeirra sem hafa náð árangri
á sviði sóttvarna hér á Íslandi. Heimildir sóttvarnalæknis
eru ríkulegar og því mikilvægt að ávallt sé stuðst við lög og
Alþingi haft með í ráðum þegar verið er að leggja álögur og
einangrun á borgara landsins. Þá er mikilvægt að skoða vel
alla kosti þegar kemur að öflun bóluefna sem krefst yfirsýn-
ar og skilnings í alþjóðlegum viðskiptum. Þar er nauðsynlegt
að hafa samskipti við sem flestar þjóðir til að tryggja að
hagsmunir Íslendinga séu alltaf í heiðri hafðir.
Engar breytingar á núverandi stefnu
Íslendingar hafa verið þeirrar gæfu aðnjótandi að aðgerðum
gegn COVID-19 hefur verið stýrt af sérfræðingum í sóttvörn-
um. Landlæknir og sóttvarnalæknir hafa staðið sig gríðarlega
vel í baráttunni við útbreiðslu COVID-19. Engar breytingar
myndu verða þar á ef Píratar væru við stjórnvölinn. Þess ber
þó að geta að sóttvarnalæknir er hvorki sérfræðingur í lög-
fræði, mannréttindum né lagasetningu. Þar tekur löggjafinn
og framkvæmdavaldið við taumunum. Það er þeirra hlutverk
að tryggja að framkvæmdin á tillögum sóttvarnalæknis sé
í samræmi við alþjóðasamninga, gangi ekki lengra en þörf
krefur til að ná markmiðinu og standist lög og stjórnarskrá.
Píratar hafa tekið það hlutverk alvarlega og lagt áherslu á að
sóttvarnir standist rýni dómstóla, þannig vöruðu Píratar rétti-
lega við því að upprunaleg útfærsla sóttkvíar hótelanna væri
ólögleg. Aðhald flokksins hefur þannig lotið að lögmæti og
ferli lagasetningar, frekar en að réttmæti þeirra tillagna sem
sóttvarnalæknir setur fram.