Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 7

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Qupperneq 7
7LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021 F O R S Í Ð A Ljósmyndarinn dansar eilíflega á mörk- unum, horfir samtímis innávið og útávið. Það er ógerlegt að skilja holuna til fulls, myrkrið er ósnertanlegt. En hvilftirnar og raufirnar bjóða okkur velkomin, þyngdarafl óefnis þeirra er óviðjafnanlegt. Loforð liggur í loftinu. Um stað sem er bæði fyrir innan og fyrir utan. Í óútskýrðum draumum er ég gluggi, hið fullkomna millibil. Þessar vangaveltur skrifaði ég þegar myndir eftir mig, meðal annars myndin á forsíðunni af jöklasköpum í svart-hvítu, birt- ust í finnskri „zine“-útgáfu. Seríuna kallaði ég Holes and other latent places sem gæti útlagst Holur og aðrir óframkallaðir staðir. Myndirnar tók ég á þvælingi um Ísland, í miskæruleysislegum bíl- og gönguferðum með myndavélatöskuna meðferðis. Myndina sýndi ég í nýju samhengi í Listasavni Færeyja fyrir tæpum tveimur árum og þar var hún sett fram með stórfenglega hversdagslegum hætti: á 45 blöðum í A4 stærð sem flæddu út úr ljósritunarvél safnsins og mynduðu saman jökul í Færeyjum. Naglarnir sem festu síðurnar stóðu ásæknir út úr veggnum og gerðu myndina áleitnari, örlítið hættulegri. Skrifstofu- pappírinn og efniskennd hans átti að minna gesti á að þetta væri ljósmynd, flöt og tilbúin. Með því að hafa myndina mjög stóra reyndi ég svo að framkalla sömu tilfinningu og ég upplifði á staðnum: Að vera lítil frammi fyrir risasköpum móður jarðar sem virtust bjóða mér að skríða inn. Jökul sem opnar sig á meðan hann hverfur af yfirborði jarðar í eins- konar afturábak-fæðingu. Þannig vonaðist ég til að skapa augnablik þar sem áhorfandinn stæði í millibilinu, milli jökuls og túlkunar listamannsins á jökli og mögulegra tilfinn- inga eða tákna sem myndin kallaði fram. Listrænt ferli á ýmsar hliðstæður í getnaði, meðgöngu og fæðingu. Hugmyndir koma stundum viljandi og stundum óvænt, sumar dala uppi snemma, á meðan aðrar komast smám saman á lokastig. Fæðingin getur verið kröftug þegar verkið spýtist út eða langdregin og þurft að draga fram tangirnar. Á endanum skiptir svo litlu máli hvernig þessu öllu var farið, nýtt verk hefur litið dagsins ljós. Þetta verk, þessi mynd, er kannski ennþá að verða til þar sem hún ferðast á milli og í nýju samhengi verður lestur hennar annar. En líklega voru það alltaf hennar örlög að enda sem sköp á forsíðu Ljósmæðrablaðsins. Eigi má sköpum renna. LANDSKÖP NÁMS- OG STARFSFERILL Hallgerður er myndlistarkona og vinnur mest með ljósmyndamiðilinn í sinni sköpun. Hún er með BA í myndlist með áherslu á ljósmyndun frá Glasgow School of Art og meistaragráðu í myndlist frá Akademin Valand í Gautaborg, þaðan sem hún lauk námi 2019. Verk hennar hafa farið víða og verið sýnd meðal annars í The Photographer’s Gallery í London, Hasselblad Center í Gautaborg, í Listasafninu á Akureyri, Listasafni Færeyja, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og Listasafni Reykjavíkur. Ljós- myndabók Hallgerðar Hvassast kom út 2016 og 2018 gaf Pastel ritröð út ljóð-myndabókina Límkennda daga. Hallgerður býr og starfar í Reykjavík og það má sjá fleiri verk eftir hana á hallgerdur.com. Hallgerður Hallgrímsdóttir, myndlistarkona

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.