Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 48

Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 48
48 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021 orðið til þess að þær hafi á endanum ákveðið að fæða án aðstoðar, til þess að koma í veg fyrir að þurfa að eiga í samskiptum við ljósmóður sem fram að þessu hefðu verið lituð neikvæðum tóni (Feeley og Thomson, 2016a). Þegar ákvörðun um að fæða án aðstoðar hafði verið tekin áttu konurnar það sameig- inlegt að upplifa pressu frá ljósmóður um að láta af ákvörðun sinni og fylgja þess í stað stöðlum heilbrigðiskerfisins um val á fæðingarstað og fæðingar- máta. Einstaklingsbundnum þörfum kvennanna var þar af leiðandi ekki mætt (Feeley og Thomson, 2016b). UMRÆÐUR - GILDI FYRIR LJÓSMÓÐURFRÆÐI Markmið ljósmæðra ætti að vera að skapa grundvöll í barneignarþjónustu til samskipta við konur sem einkennast af samvinnu, jákvæðni, skilningi og fordómaleysi, sama með hvaða hætti konur kjósa að fæða. Kjósi kona að fæða án aðstoðar er mikilvægt að samskiptin við ljósmóður í meðgönguvernd séu á þá leið að ákvörðuninni sé sýndur skilningur og að konan hljóti hlut- lausar upplýsingar frá ljósmóður um hugsanlegar afleiðingar ákvörðuninnar, byggðar á gagnreyndri þekkingu (Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997). Þannig skapast vettvangur til umræðna og stuðnings komi til þess að konan óski eftir aðstoð í fæðingu, telji hún þörf á því (Feeley og Thomas, 2016a). Það er mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk kynni sér ástæður þess að kona hafni þeirri umönnun sem henni stendur til boða, ekki síður en að leggja áherslu á að fækka þeim tilfellum sem konur upplifa fæðingu sína sem áfall (Hollander o.fl., 2017). Nýlega birtist á netinu frásögn konu sem fætt hafði án aðstoðar erlendis með alvarlegum afleiðingum fyrir barn sitt, sem lést í fæðingunni. Í fæðingunni sem hófst ekki fyrr en á 45. viku meðgöngu grunaði hana að ekki væri allt með felldu, en hún hafði óskað sér að sleppa við gangsetningu vegna meðgöngulengdar. Konan hafði haldið sig alveg utan þjónustu heilbrigðis- kerfisins og í stað þess að leita til ljósmóður leitaði hún ráða á spjallsvæði kvenna sem fætt höfðu einar, með fyrrgreindum afleiðingum (Zadrozny, 2020). Sýnir þetta hve mikilvægt það er að barnshafandi kona og ljósmóðir byggi upp samband sem einkennist af sterkum tengslum, trausti og virðingu. Hugmyndafræði ljósmóðurfræði byggir á því að veita einstaklingsbundna og heildræna þjónustu byggða á gagnreyndri þekkingu (Ljósmæðrafélag Íslands, e.d.). Niðurstöður rannsókna benda til þess að slíkt sé ekki alltaf raunin. Afleiðingin getur orðið sú að konur upplifi vonbrigði og óöryggi á meðgöngu og afþakki í kjölfarið faglega aðstoð í barneignarferlinu (Feeley og Thomson, 2016b). Meðgönguvernd þarf að veita konum með slæma fyrri fæðingarreynslu aukinn stuðning og ljósmæður þurfa að endurvinna traust kvenna sem hafa orðið fyrir slíku áfalli. Konurnar þurfa hvatningu til að búa til fæðingaráætlun sem eflir þær í að verða virkir þátttakendur í ákvarðana- töku. Sú staðreynd að konur kjósi að fæða án aðstoðar til að skapa rólegt fæðingarandrúmsloft, laust við klínískar truflanir sem geta haft neikvæð áhrif á lífeðlislegt ferli fæðingar ætti að vera ljósmæðrum hvatning til að gera betur í starfi sínu (Feeley og Thomson, 2016b). Meginmarkmið ljósmæðra sem sinna konum sem kjósa að fylgja ekki hefðbundnum leiðum í barneignarferlinu, ætti ekki að vera að þvinga þær til að fylgja klínískum leiðbeiningum heldur frekar að reyna að koma í veg fyrir að þær taki ákvarðanir sem geta haft neikvæðar afleiðingar, með upplýstri umræðu og samtali (Hollander o.fl., 2017). Ráðleggingar til ljósmæðra við innleiðingu slíks samtals eru samkvæmt Hollander o.fl. (2017) að endurhugsa áhættuorðræðu, að bera virðingu fyrir sjálfræði konunnar og fyrir því trausti sem hin barnshafandi kona hefur til lífeðlislegra fæðinga, og vera tilbúnar að veita barneignarþjónustu sem er laus við ótta eða óttastjórnun. Í ljósi þess að þeim konum sem velja að fæða án aðstoðar hefur fjölgað víða í heiminum, sér í lagi í þeim löndum þar sem tíðni inngripa í fæðingar hefur aukist, er mikilvægt að ljósmæður séu vakandi fyrir þróun þessara mála hér á landi. Það er innan við eitt ár síðan íslensk kona valdi að fæða án aðstoðar og var mikið rætt um það víða í samfélaginu. Sjaldnast er ein báran stök og því má velta því fyrir sér hvort fleiri konur fylgi fordæmi þessarar konu í kjölfarið. Niðurstöður nýlegra rannsókna benda til þess að þær ástæður sem liggja að baki þeirri ákvörðun að fæða án aðstoðar séu fjórar talsins. Þær eru sjálfræði kvenna, höfnun á sjúkdómsvæðingu fæðinga, ósk um lífeðlis- lega fæðingu og slæm fyrri fæðingarreynsla. Með ákvörðun sinni veita konur sem fæða án aðstoðar heilbrigðisstarfsfólki óbeint aðhald varðandi sjúk- dómsvæðingu, stuðning við lífeðlislegar fæðingar og virðingu fyrir sjálfræði barnshafandi kvenna. Konur sem fæða án aðstoðar eru með ákvörðun sinni að senda skilaboð um afstöðu sína til fæðinga. Það er í verkahring ljósmæðra að hlusta á raddir kvenna og vera talsmenn þeirra í barneignarferlinu. Séu ljósmæður meðvit- aðar um að hafa ávallt siðareglur, hugmyndafræði, hugsjónir og eigið ljós- móður¬hjarta að leiðarljósi geta þær sannarlega veitt konum framtíðar þá þjónustu sem þær óska eftir. HEIMILDASKRÁ Björkin. (e.d.). Fæðing. Sótt af https://www.bjorkin.is/faeding Cheyney, M. J. (2008). Homebirth as systems-challenging praxis: Knowledge, power, and intimacy in the birthplace. Qualitative Health Research, 18(2), 254–267. doi:10.1177/1049732307312393 Dahlen, H. (2010). Undone by fear? Deluded by trust? Midwifery, 26(2), 156–162. doi:10.1016/j. midw.2009.11.008 Dahlen, H., Jackson, M. og Stevens, J. (2011). Homebirth, freebirth and doulas: Casualty and consequences of a broken maternity system. Women and Birth, 24(1), 47–50. doi:10.1016/j. wombi.2010.11.002 Feeley, C. og Thomson, G. (2016a). Tensions and conflicts in ‘choice’: Womens’ experiences of freebirthing in the UK. Midwifery, 41, 16–21. doi:10.1016/j.midw.2016.07.014 Feeley, C. og Thomson, G. (2016b). Why do some women choose to freebirth in the UK? An interpretative phenomenological study. BMC Pregnancy and Childbirth, 16. doi:10.1186/ s12884-016-0847-6 Feeley, C., Thomson, G. og Downe, S. (2019). Caring for women making unconventional birth choices: A meta-ethnography exploring the views, attitudes, and experiences of midwives. Midwifery, 72, 50–59. doi:10.1016/j.midw.2019.02.009 Feeley, C., Burns, E., Adams, E. og Thomson, G. (2015). Why do some women choose to freebirth? A meta-thematic synthesis, part one. Evidence Based Midwifery, 13(1), 4–9. Sótt af https:// search.proquest.com/docview/1679254081?accountid=135943 Freeze, R. (2008). Born free: Unassisted childbirth in North America (óbirt doktorsritgerð). Uni- versity of Iowa. Sótt af http://ir.uiowa.edu/cgi/viewcontent.cgi?article=1387&context=etd- Friedman, S., Heneghan, A. og Rosenthal, M. (2007). Characteristics of women who deny or conceal pregnancy. Psychosomatics, 48, 117–122. doi: 10.1176/appi.psy.48.2.117. Helga Gottfreðsdóttir. (2016). Betri fræðsla og fæðing. Sótt af https://www.hi.is/visindin/betri_ fraedsla_og_faeding Hildingsson, I. M., Lindgren, H. E., Haglund, B. og Rådestad, I. J. (2006). Characteristics of women giving birth at home in Sweden: A national register study. American Journal of Obstetrics and Gynecology, 195(5), 1366–1372. doi:10.1016/j.ajog.2006.03.050 Hollander, M., de Miranda, E., van Dillen, J., de Graaf, I. Vandenbussche, F. og Holten, L. (2017). Women’s motivations for choosing a high risk birth setting against medical advice in the Netherlands: A qualitative analysis. BMC Pregnancy Childbirth, 17(1), 423. doi:10.1186/ s12884-017-1621-0 Holten, L. og de Miranda, E. (2016). Women׳s motivations for having unassisted childbirth or high-risk homebirth: An exploration of the literature on “birthing outside the system. Midwifery, 38, 55–62. doi:10.1016/j.midw.2016.03.010 ICM. (2017). Core Document Bill of Rights for Women and Midwives. Sótt af https://international- midwives.org/assets/files/definitions-files/2018/06/eng-bill_of_rights.pdf Jackson, M., Dahlen, H. og Schmied, V. (2012). Birthing outside the system: Perceptions of risk amongst Australian women who have freebirths and high risk homebirths. Midwifery, 28(5), 561–567. https://doi.org/10.1016/j.midw.2011.11.002. Kristlín Dís Ingilínardóttir. (2019, 10. ágúst). Tók á móti eigin barni í baðkarinu heima. Vísir. Sótt af https://www.visir.is/g/2019190819998 Landlæknisembættið. (2008). Meðgönguvernd heilbrigðra kvenna í eðlilegri meðgöngu. Sótt af https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item2548/4407.pdf Lars, K. (2020). Total number of live births in the Netherlands 2008-2018. Sótt af https://www. statista.com/statistics/519994/total-number-of-live-births-in-the-netherlands/ Lindgren, H., Nässén, K. og Lundgren, I. (2017). Taking the matter into one’s own hands – Women’s experiences of unassisted homebirths in Sweden. Sexual and reproductive healthcare,11, 31–35. doi:10.1016/j.srhc.2016.09.005. Lindgren, H., Rådestad, I, Christensson, K. og Hildingsson, I. (2010). Perceptions of risk and risk management among 735 women who opted for a home birth. Midwifery, 26, 163–172. doi:10.1016/j.midw.2008 Ljósmæðrafélag Íslands. (e.d.). Alþjóðasiðareglur ljósmæðra. Sótt af https://www.ljosmaedrafelag.is/ ljosmodir/althjodasidareglur#II.Starf%20lj%C3%B3sm%C3%A6%C3%B0ra Lög um réttindi sjúklinga nr. 74/1997. McAra-Couper, J., Jones, M. og Smythe, L. (2011). Caesarean-section, my body, my choice: The construction of ‘informed choice’ in relation to intervention in childbirth: Feminism and Psychology, 22(1), 81–97. doi:10.1177/0959353511424369 Miller, A. C. (2009). “Midwife to Myself”: Birth Narratives among Women Choosing Unassisted Homebirth. Sociological Inquiry, 79(1), 51–74. doi:10.1111/j.1475-682x.2008.00272.x Murphy, M. (2016). Maternal autonomy. British Journal of Midwifery, 24(5), 371–373. doi:10.12968/bjom.2016.24.5.371 NHS. (2018). Where to give birth: The options. Sótt af https://www.nhs.uk/conditions/pregnancy- -and-baby/where-can-i-give-birth/ Plested, M. og Kirkham, M. (2016). Risk and fear in the lived experience of birth without a midwife. Midwifery, 38, 29-34. doi:10.1016/j.midw.2016.02.009 Registrar of the European Court of Human Rights. (2010, 14. desember). Chamber Judgment Ternovszky v. Hungary 14.12.2010: Legal uncertainty prevented mother from giving birth at home. Sótt af https://www.womenslinkworldwide.org/en/files/1250/offcial-press-release.pdf Sjúkratryggingar Íslands. (e.d.). Sjúkradagpeningar. Sótt af https://www.sjukra.is/heilbrigdisthjon- usta/sjukradagpeningar/nanar-um-skilyrdi-sjukradagpeninga/ Stevens, J., Dahlen, H., Peters, K. og Jackson, D. (2011). Midwives’ and doulas’ perspectives of the role of the doula in Australia: A qualitative study. Midwifery, 27(4), 509–516. doi:10.1016/j. midw.2010.04.002 Steinunn H. Blöndal. (2010). Stuðningur og yfirseta í fæðingu. Bæklingaröð Ljósmæðrafélags Íslands. Sótt af http://www.ljosmodir.is/asset/332/yfirseta_studningur_faeding.pdf Symon, A., Winter, C., Donnan, P. T. og Kirkham, M. (2010). Examining autonomy’s boundaries: A follow-up review of perinatal mortality cases in UK independent midwifery. Birth, 37(4), 280–287. doi:10.1111/j.1523-536X.2010.00422.x Thompson, A. (2013). Midwives’ experiences of caring for women whose requests are not within clinical policies and guidelines. British Journal of Midwifery, 21(8), 564–570. Wickham, S. (2016). Unassisted birth: listening and learning from the minority. Sótt af https://www. sarawickham.com/articles-2/unassisted-birth-listening-and-learning-from-the-minority/ Zadrozny, B. (2020, 21. febrúar ). She wanted a ‘freebirth’ with no doctors. Online groups convinced her it would be OK. NBS News. Sótt af https://www.nbcnews.com/news/us-news/she-wanted- -freebirth-no-doctors-online-groups-convinced-her-it-n1140096?fbclid=IwAR2mcckUSdyU- 23vYmSSMjKR0afGDef0fXN7Bp6y0-DH8EcZ6ooS9lpEa3dk

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.