Ljósmæðrablaðið - 01.07.2021, Side 49
49LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ - JÚLÍ 2021
Það stefnir í metár í fæðingum á Íslandi og
er áætlað að um 15% fleiri börn muni fæðast
í júní og júlí á þessu ári miðað við árið á
undan. Það verður því metfjöldi kvenna
og barna sem þarf að sinna á meðgöngu, í
fæðingu og eftir fæðinguna og er gífurlega
mikilvægt að sinna þessu af kostgæfni og
fagmennsku.
Um tíma hefur verið skortur á ljós-
mæðrum um land allt og mikið rætt um
aðstöðuleysi á sjúkrastofnunum sem sinna
verðandi og nýjum foreldrum í fæðingu og
sængurlegu. Það er því mikilvægt að staldra
við og spyrja sig hvort við séum nógu vel
undirbúin fyrir þessa fjölgun. Þar sem við
vitum með nokkrum fyrirvara um fjölgun
fæðinga, þá höfum við yfirleitt nokkra
mánuði til að bregðast við og undirbúa
okkur vel en það hefur ekki verið gert.
Kvennadeild Landspítala er stærsti
fæðingarstaður landsins en þar fæðast um
75% barna á Íslandi. Starfsemin einkennist
af fagmennsku en einnig af undirmönnun og
aðstöðuleysi. Það segir sig því sjálft að 15% aukning í fæðingum
mun hafa veruleg áhrif á starfsemina nema við grípum fast og
örugglega í taumana. Aðstöðuleysi lýsir sér t.d. í því að stundum
þurfa konur sem ekki geta farið snemma heim og fengið heima-
þjónustu í sængurlegu frá ljósmóður að tvímenna á herbergjum
í sængurlegu. Þá er aðstaðan fyrir maka þannig að honum er
boðinn stóll til að hvíla sig á og nýir foreldrar hafa ekki mikið
pláss til að athafna sig. Á tímum covid- takmarkanna hefur maki
ekki haft tækifæri til að vera á sængurlegudeildinni á nóttunni
á þeim stofum sem tvær konur liggja sængurlegu og því hefur
samvera nýrra foreldra verið rofin. Þetta er alltaf slæmt fyrir nýja
foreldra sem vilja nýta dýrmætan tímann til að kynnast barninu
sínu og fara yfir atburði síðustu klukkutíma saman. En þetta er
sérstaklega slæmt þegar kona hefur verið í erfiðri fæðingu, sem
hugsanlega endaði sem bráðakeisari eða með því að barn þarf að
leggjast inn á Vökudeild. Þá er algerlega ömurlegt að þurfa að
senda maka heim frá konu og barni. Lengi hefur verið þörf á betri
aðstöðu fyrir þessar fjölskyldur sem verður enn brýnni við yfir-
vofandi fjölgun fæðinga. Afar mikilvægt er að bjóða öllum nýjum
foreldrum bestu aðstæður til að hvíla sig eftir fæðingu, kynnast
barninu sínu og fá stuðning og þjónustu frá ljósmæðrum, hjúkr-
unarfólki og læknum.
Oft á tíðum er mikið púsluspil að koma öllum fyrir á meðgöngu-
og sængurlegudeild LSH og einkennist starfið á stundum af því
að útskrifa þurfi konur og börn eins hratt og mögulegt er svo unnt
sé að koma öðrum nýrri foreldrum fyrir á deildinni. Þetta skapar
óþarfa streitu fyrir nýja foreldra og það heilbrigðisstarfsfólk sem
þeim sinnir. Miðað við hversu oft þessar aðstæður koma upp nú
þegar, þá er erfitt að ímynda sér hvernig þetta verður með 15%
fleiri fæðingum á næstu mánuðum.
Kvennadeildin er einnig verulega undirmönnuð og vantar ljós-
mæður og hjúkrunarfræðinga á allar deildir.
Slík undirmönnun gerir það að verkum að
það starfsfólk sem vinnur á deildunum
þarf að hlaupa hraðar á vaktinni og taka
aukavaktir til þess að brúa bil sem annars
myndast. Það er daglegt brauð að finna
þurfi starfsfólk til að manna vaktir og því
mikið álag þegar sífellt er verið að hringja
eða senda skilaboð með bón um að mæta á
aukavaktir. Þetta er hægt að gera í skamman
tíma en getur ekki verið langtímaplan á
eins stórum vinnustað og Landspítali er.
Afleiðingin er úrvinda starfsfólk sem á í
mikilli hættu á því að lenda í kulnun eða
öðrum streitutengdum veikindum.
Ljósmæður og hjúkrunarfræðingar
sem sinna barnshafandi konum og nýjum
foreldrum á kvennadeildinni sinna sínum
skjólstæðingum af mikilli kostgæfni,
fagmennsku og hugsjón og er ekki ólík-
legt að einmitt þess vegna hafi þessi undir-
mönnun og aðstöðuleysi viðgengist eins
lengi og raunin er. En það er óforsvaranlegt
að biðja þetta sama starfsfólk um að hlaupa nú ennþá hraðar, og
ekki er hægt að ætlast til þess að við komumst yfir öll verkefnin á
gleðinni og hugsjóninni einni saman.
Heilsa móður og barns við fæðingu er mikilvægur mælikvarði á
almenna heilsu þjóðar og því til mikils að vinna að allar barnshaf-
andi konur, nýir foreldrar og nýburar fái fyrsta flokks þjónustu í
gegnum allt ferlið innan Landspítala og utan hans.
Ég skora því á heilbrigðisyfirvöld að veita meira fé í þennan
málaflokk.
Ú R Þ J Ó Ð F É L A G S U M R Æ Ð U N N I
METÁR Í FÆÐINGUM Á ÍSLANDI
- Tekur kvennadeild Landspítala endalaust við?
Dr. Emma Marie Swift,
ljósmóðir á meðgöngu- og
sængurlegudeild LSH og
lektor við Háskóla Íslands