Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 15
anna, því sjálfur var hann ekki vel stöð- ugur. Víst hafði hann mátt þola augna- gotur hásetanna, og stöku fliss hafði hann líka heyrt utan að sér, allt útaf þessum helvítis bresku hrosstönnum, en þetta var ósvífni utan allra marka, og mest langaði hann til að taka pokamann- inn og fleygja honum í dokkina. En það yrði nú líka utan marka, svo hann varð að láta sér nægja að stilla fókusinn á Bensa og segja í sínum dimmasta rómi: „Ég vil ekki hafa þig svona drukkinn hérna frammá, snáfaðu aftur í gang að taka inn fríholtin.“ Þetta var klár skipun, svo Bensi mátti rölta afturá og hjálpa viðvaningunum með fríholtin. Þeir voru enn að basla við hnút á keðju, þegar skipið var komið út á fljót og stýrimann bar þar að á leið sinni aftur dekkið. Bensi hampaði þá keðjunni og sagði: „Helvítis rembihnútur er þetta, hvar er nú stýrimaðurinn með nýju tennurnar?“ Þarna var farið alveg yfir strikið, og Karl brá við hart, þreif í pokamanninn, keyrði hann upp að keisnum og lét hann ekki lausan, fyrr en að loknum fyrirlestri um skylduga kurteisi við yfirmenn skipsins ásamt góðum ráðum um þá framkomu, sem stuðlað gæti að velfarnaði pokamannsins þar um borð í framtíðinni. Svo var hald- ið út í Norðursjóinn. Ekki er staðfest, hvað varð um brezku tennurnar, en um það bil sem stefni var stungið í Atlantshafið, sást Karl stýri- maður koma á vaktina dálítið mjósleginn í framan með djúpar hrukkur niður frá báðum munnvikum, en afslappaður og góðlegur á svipinn. Mönnum var ljóst, að nú voru íslenzku tennurnar aftur í notkun. Soðningarpramminn Haukur: Veturinn 1961-62, fór ég tvo eða þrjá túra á Agli Skallagrímssyni. Meðal háseta um borð var Sigurður, hæglátur eldri maður. Við vorum á sömu vakt, tókum oft tal saman og urðum ágætir kunningjar. En hann var að hætta, sagðist vera farinn í land fyrir fullt og allt eftir túrinn. Það barst í tal meðal nýgræðinga um borð, að nú væri Sigurð- ur að hætta til sjós. Einhver hinna reyndari í áhöfninni taldi það engin tíðindi, – Siggi gamli hættir í hverjum túr, sagði hann. Og mikið rétt; meðal fyrstu manna um borð með pokann sinn, næst þegar farið var út, var einmitt Sig- urður kunningi minn. Það var í þeim túr, sem við sáum soðningarprammann. Við vorum að hífa í þokkalegu veðri, en nærri okkur var breskur togari að kasta. Þegar hann setti á ferð og beygði kom á hann hnútur, sem brotnaði þvert yfir skipið og fyllti dekkið. Gusurnar stóðu hátt í loft upp, þegar sjórinn valt yfir uppstillinguna og skall á innanverðri lunningunni hlé- megin. Við horfðum á þetta, þar sem við stóðum í ganginum á Agli gamla og bið- um þess, að hlerarnir kæmu upp. Og Sigurður var alveg yfir sig hneykslaður. Hann sagði með djúpri fyrirlitningu: „Hverslags bölvaður soðningarprammi er þetta?“ Mér þótti þetta skondið og skemmti- legt, bæði orðið soðningarprammi, sem ég hafði ekki heyrt áður, en ekki síður sú megna fyrirlitning, sem Sigurði gamla tókst að leggja í ummæli sín. Sjálfir vor- um við nefnilega ekki staddir um borð í neinni sjóborg. Egill Skallagrímsson átti það einmitt til að taka inn á sig sak- leysislegustu öldur; stinga sér á kaf og gangafyllast svo að menn flutu um bölv- andi. Síðan gat hann lyft sér og varist fimlega hnútum, sem virtust ætla að koma innfyrir. Ekki gott að reikna hann út, sem var e.t.v. skýringin á því, að ég man ekki til þess, að nokkurn tíman hafi verið kallað úr brúnni á Agli til að vara menn á dekki við aðvífandi gusum. Í mokfiskiríi og gaf alltaf upp QRU Benedikt: Á siglingu á milli landa eða á fjarlæg mið var hásetunum skipt þannig, að 6 skiptu með sér stýrisvöktum í brúnni, tveir í senn í 4 tíma í einu, og skiptu skipstjóri og stýrimenn með sér samskonar vöktum. Restin var á svokall- aðri dagvakt, vann við veiðarfæri frá kl. 8 að morgni til kl. 17 síðdegis. Á fiskiríi var dekkið á 6 tíma vöktum. Í vél skiptu 2. og 3. vélstjóri og tveir kyndarar með sér samskonar vöktum, nema að 1. vél- stjóri tók yfirleitt vakt í vél frá kl. 8 að morgni til hádegis. Skipstjóri og 1. stýri- maður skiptu með sér sólarhringnum í brúnni, skipstjóri var að degi til, en 1. stýrimaður frá miðnætti og framundir hádegi. Loftskeytamaðurinn var í klefa aftan við brúna innan um sín tæki. Hann tók veðrið, hlustaði á aflafréttir, hafði Hafliði Magnússon, togarasjómaður og rithöfundur, gerði teikninguna sem er hér birt með hans leyfi. Sjómannablaðið Víkingur – 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.