Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Qupperneq 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Qupperneq 31
Sjómannablaðið Víkingur – 31 Gripið var til þess ráðs að skilja Erhard eftir í Grátufirði til að gera vist- arverur íbúðarhæfar. Fyrsta verkið hans var að fjarlægja snjóinn úr húsinu, negla hlera fyrir gluggann og koma hita á húsið. Eftir að hafa hreinsað húsið að mestu fór Erhard, að kvöldi annars dags, í heimsókn til vermanna í Suðurhöfn og naut gestrisni þeirra. Vermenn hvöttu hann til að gista nóttina sem í hönd fór í stað þess að híma einn og yfirgefinn í Norðurhöfn. Engu tauti var þó við karl komið, sem tölti heim þessa 20 mínútna gönguleið. Skömmu eftir heimkomuna var barið að dyrum. Erhard kallaði út og bauð gesti inn að ganga en því boði var í engu ansaði. Aftur er bankað og snarast Er- hard þá út með vasaljós til að góma þann sem úti var. Taldi hann víst að einhver vermanna Suðurhafnar hefði elt hann til Norðurhafnar í því augnamiði að hrekkja hann duglega. Er út var komið var enga lifandi veru að sjá og engin spor í snjón- um nema hans eigin. Fór nú að fara um karl og ljóst að svefnsamt yrði ekki um nóttina héldi þessum reimleikum fram til morguns. Nú var að duga eða drepast. Ganga skyldi hann úr skugga um hvort þarna væru mennskir menn á ferð, villi- dýr, landvættir eða hreinlega grænlensk- ir draugar. Stillti karl sér því upp við gluggann og beið þess er verða vildi. Að liðinni langri og spennuþrunginni stundu er bankað í hið þriðja sinni. Létti karli mjög þegar hann bæði heyrði og sá bankið koma frá glamrandi glugga þá vindur lék við glerið. Sofandi þorsktorfur Samskipti Færeyinga við Grænlendinga voru öllu jöfnu á jákvæðu nótunum. Þó vildu þeir síðarnefndu meina að slógið, sem fór í sjóinn við fiskverkunarhúsin í Norðurhöfn trufluðu laxagöngur í ána, sem rann rétt við verstöðina. Eftir nokk- urt þref samþykktu Grænlendingar að henda mætti slóginu við eyjarnar í fjarð- armynninu. Vermenn smíðuðu þá í snatri pramma, sem þeir notuðu til þessara flutninga. Drógu trillurnar prammann út að eyj- unum þegar þær fóru í róður að morgni og komu með hann til hafnar í róðrarlok að kvöldi. Losun slógs úr prammanum var nokkuð óhefðbundin og sýnir að ráð höfðu þessir karlar undir rifi hverju. Þungur steinn var bundinn við endann á sleftógi prammans og þegar komið var á losunarstað var honum hent fyrir borð á fullri ferð. Þegar steinninn skall í botni strekktist snöggt á tóginu, vegna fram- skriðs prammans, og honum hvolfdi. Einföld en áhrifarík aðferð til að afferma bát. Pramminn lá síðan á hvolfi fyrir stjóra yfir róðrartímann. Á leið sinni til lands réttu karlarnir prammann við og slefuðu til lands þar sem hann var fermdur af úrgangi dagsaflans. Erhard segir dvölina á Grænlandi hafa verið lærdómsríkan og skemmtilegan tíma. Þar sá hann meðal annars sofandi þorsktorfur. Segi og skrifa sofandi. Hafði orð á þessu háttalagi þorsksins við íslenskan skipsstjóra með 40 ára sjó- mannsferil að baki og hristi sá hausinn ógurlega og sagði tóma lygi. En lygi er það ekki því að fjölmargir sjómenn, aðrir en Erhard, hafa séð þetta fyrirbæri. Um nokkurskonar hópsvefn er að ræða hjá þorskinum, sem safnast í stórar torfur á grunnsævi og heldur sig nokkru neðan sjávarborðs. Fiskurinn stendur upp á endann og snýr hausinn niður og sporðurinn upp. Þannig liggur hann hlið við hlið og hreyfir sig hvergi. Ekki er nokkur vegur að veiða fiskinn á hand- færi í þessu ástandi. Eitt sinn er trilla Erhards renndi inn lítinn vog við Hvarf reyndist vogurinn fullur af sofandi þorski. Þar sem þorsk- urinn var óveiðanlegur í þessu ástandi var lagst við klappir, sem sköguðu út í voginn, og farið í berjamó. Einn skip- verja stóð vakt á klöppunum og fylgdist með torfunni. Er vaktmaður gaf merki um að þorsk- urinn væri að rumska þustu menn úr berjamónum um borð í bátinn, eltu þorskinn út úr víkinni og að nesi þar fyrir utan þar sem á honum lóðaði. Færum var rennt í kösina og fylltu þeir trilluna þarna á skömmum tíma. Greinilegt er á frásögnum Erhards af þorskinum að hann er ekki eins mikill þorskur og af er látið. Það er til dæmis þekkt fyrirbrigði að hann þyngir sig er hann stingur sér af landgrunninu niður í djúpið. Það gerir hann með því að fylla magann af grjóti. Grjótinu gúlpar hann síðan upp úr sér þegar leið hans liggur upp á landgrunnið aftur. Finnist slípað grjót í maga á þorski þá er næsta víst að hann er að koma úr djúpinu. Komið er að leiðarlokum í rabbi mínu við Færeyinginn Erhard. Veiðimaðurinn sjálfur var fangaður af íslenskri blóma- rós, Hjördísi Ísaksdóttur, 26 ára gamall, stofnaði með henni heimili á Grenivík 1967 og breyttist með tímanum í ís- lenskan skipstjóra. Sjórinn var því áfram hans starfsvettvangur. Erhard og mágar hans tveir, Oddgeir og Vilhjálmur Ísakssynir, stofnuðu út- gerðarfélag, sem rekið var af miklum myndarskap frá 1972 til 2006. Í upphafi var sótt á nýjum 27 tonna eikarbáti en í lokin á 260 tonna tveggja þilfara stál- skipi. Allir bátar fyrirtækisins báru nafnið Sjöfn og í upphafi einkennisstaf- ina ÞH-142 en seinustu árin EA-142. Fyrirtækið eignaðist að vísu eitt sinn trillu, sem fékk nafnið Kópur ÞH-90 en það er önnur saga tengd góðu gengi og æskudraumum. Þegar Elli kerling fór að gera sér full dælt við þessa sjóhunda seldu þeir út- gerðina, settust í helgan stein og sitja þar nú sem fastast.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.