Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur henda þeim fyrir borð, ef þeir sam- þykktu ekki þessa aðferð. Gundel sagði síðar: „Það er ekki svo slæmt að horfast í augu við dauðann, ef maður veit að maður er að deyja, en það er hræðilegt að vera ýtt í djúpið, þegar maður heldur að björgunin sé á næsta leiti.“ Það var ekki fyrr en 5. júlí að þýskt gufuskip fann bátinn og setti skipbrots- mennina á land á Stornoway á Hjalt- landseyjum. Sjóprófin Sjópróf hófust í Þórshöfn og Kaup- mannahöfn 10 dögum eftir slysið. Að þau skyldu einnig haldin í Færeyjum á rót sína að rekja til þess, að nokkrir af þeim, sem björguðust, voru fluttir þang- að. Alls voru 727 farþegar í þessari ferð, af þeim voru 223 börn svo og 68 manna áhöfn. Farþegarnir voru af sjö þjóðern- um, Danir voru aðeins um 10%. Kristiansand var síðasta höfnin og þar var gefið út siglingaleyfi af sýslumanni sem ekki hafði sérþekkingu á skipum og sjómennsku. Eftir að hafa farið um Pentilinn lá leiðin í áttina að Rockall, en venjulega var siglt norðan við klettinn, en skip- stjórinn ákvað að fara suður fyrin hann, Nyrðri leiðin var hin venjulega, en „Norge“ ætlaði syðri leiðina, en sökk við Rockall. Kvenhetjan Laura Petersen Blöðin hrósuðu sjómönnunum í björgunarbátunum fyrir karlmennsku. Aðeins einni konu var hrósað. Það var Laura Petersen, 18 ára stúlka frá Kaupmannahöfn. Politiken birtir frásögn Mathiasen háseta 7. júlí: „Einn allra duglegasti farþeginn var ungfrú Laura Petersen (18 ára) frá Holte (augu hásetans ljóma af aðdáun þegar hann talar um hana). Hún sat frammi í stafni þar sem öldurnar skoluðust inn, bak hennar var sem öldubrjótur. Hvernig haldið þið að hún hafi verið klædd? Hún var í þunnum, ljósum sumarbol, stuttu pilsi, hvorki í buxum, sokkum né skóm! Hálfnakin sat hún þarna eins og stafnstytta klukkustund eftir klukku- stund. En þetta var stafnstytta, sem gat hreyft sig. Hún jós í sífellu og tók sér aðeins andartakshlé annað slagið. Svo hrópaði hún til hinna: „Gefist ekki upp! Haldið áfram að ausa! Þetta tekst! Upp með góða skapið!“ Þetta var stórkostleg sjón og við eigum þessari ungu stúlku að þakka. Gæfist hún ekki upp, ættum við ekki að þreytast! Nokkrir þeirra, sem í bátnum voru urðu frekar máttlitlir er á kvöldið leið.“ Hún jós með sjóstígvélum 3. stýrimanns. Eftir að þeim hafði verið bjargað fór hún beint til síns heima í Holte og þetta hafði ekki skotið henni meiri skelk í bringu en svo, að hún fór skömmu síðar til Ameríku. Ári síðar var hún kjörin heiðursfélagi Félags danskra skipstjórnarmanna, sem er mesti heiður, sem félagið gat sýnt konu og einnig fékk hún heiðursmerki félagsins úr gulli með áletruðu nafni skipsins og orðunum, „For Bravory“, fyrir þrekvirkið.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.