Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 45

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Page 45
Sjómannablaðið Víkingur – 45 Í æðum mér vellur veiðimannablóð. Tifandi sporður í vatni örvar hjart- sláttinn og kitlar eðlishvötina. Fátt er yndislegra en að veiða nokkra fiska úti í guðsgrænni náttúrunni og hafa með mér heim í matinn. Íslenskir laxfiskar eru hnossgæti og þegar best lætur er máltíðin sjálf hluti af upplifuninni við veiðarnar. En þótt mér finnist gott að borða laxfiska þá brýst fram í mér verndarhugsun þegar ég skynja að farið sé að ganga á forðann. Mér hrýs hugur við því að einhver dýrategund eigi í vök að verjast eða að framin sé rányrkja og gengið illa um helgidóminn – náttúruna sjálfa. Verndun laxa Um daginn horfði á ég mynd um stang- veiðar á Íslandi og hugsaði um það hversu mikið okkur hafi þó farið fram: menn slepptu löxum í gríð og erg, virt- ust varla vilja hirða sporð og það var eins og trúin á gang náttúrunnar væri aftur að ná yfirhöndinni. Ég hugsaði með mér að kannski væru menn almennt að átta sig á því einfalda lögmáli að það eyðist sem af er tekið: kannski væru þeir farnir að skilja að það þarf ekki að rækta upp laxveiðiár. Aðalmálið er að láta þær vera eins ósnortnar og frekast er kostur, taka með sér fáa fiska heim og sleppa öðrum aftur í ána, leyfa þeim að hrygna og tímgast. Þetta var skemmtilegt að sjá – þótt auðvitað hafi þetta verið missýn hjá mér. Því þegar líða tók á þáttinn, var röðin komin að ám á Austurlandi og síðan Suðurlandi þar sem öll laxveiði, leyfi ég mér að segja, byggist á sleppingum. Sér- staklega er þetta greinilegt í ánum á Suð- urlandi, til dæmis Rangánum, Skógá og Vatnsá í Mýrdal. Þessar ár voru áður sjó- birtingsár eða sjóbleikjuár fyrst og fremst en þar ráða nú laxar ríkjum með manna hjálp. Það er misjafnt hvernig farið hefur verið að en einfaldasta og algengasta að- ferðin er að sleppa tugþúsundum göngu- seiða í árnar, bíða á meðan þau nærast í sjónum og stækka, selja síðan veiði- mönnum leyfi til að veiða þessa hafbeit- arfiska þegar þeir ganga aftur í árnar. Markmið „ræktenda“ nást yfirleitt: löxunum fjölgar en silungarnir hverfa smám saman. Veiðimenn koma sælir heim úr Rangánum með 10–20 laxa og finnst eins og þeir hafi verið úti í nátt- úrunni að veiða – en það er ekkert nátt- úrulegt við þetta. Þessir menn hefðu alveg eins getað farið í einhverja eldis- tjörn að veiða. Enda skynja þeir það og skilja að þeir komast í náttúrulega veiði síðar, því það er ekki sama lax og lax. Einu sinni veiddi ég tvo hafbeitarlaxa á Rangárflúðum í Ytri–Rangá en man ekkert eftir því. Dröslaði bara einhverj- um þokkalegum fiskum upp á bakkann og kættist mjög en svo var það búið. Ég setti aftur á móti einu sinni í rosalegan lax, rammvilltan, í Sveinsskeri á svæði III í Stóru–Laxá, lét hann slíta hjá mér og mun aldrei gleyma því. Munurinn á náttúrulegri laxveiði og hinni tilbúnu er nefnilega eins og munurinn á peningum og vísakorti, kynlífi og klámmyndum, málverki og eftirprentun. Villtur lax er framtíðin. Í honum fel- ast verðmætin og sífellt stækkandi hópur veiðimanna lítur ekki við öðru og gefur hafbeitaránum langt nef. Þess vegna þarf að ganga vel um stofna villtra laxa, vernda heimkynni þeirra, veiða hóflega, veiða og sleppa, og tryggja vöxt þeirra og viðgang með eðlilegum hætti, helst án þess að mannshöndin komi þar nokkurs staðar nærri. Unga kynslóðin Þannig hugsaði ég um laxveiðina á Ís- landi á meðan veiðimyndin gekk áfram. Þarna bar ýmislegt misjafnt fyrir augu en sérstaklega varð ég hrifinn af senu þar sem ungur strákur, á að giska 12 ára, þurfti talsverðan tíma til að ákveða hvort hann ætti að sleppa aftur fallegri hrygnu sem hann hafði landað í Hvolsá vestur í Dölum. Guðmundur Ármann Sigurjónsson býr sig undir að sleppa fallegri sjóbleikju í Hörgá síðasta sumar. Ragnar Hólm Ragnarsson Blessuð ljósnálin

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.