Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Qupperneq 46

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Qupperneq 46
46 – Sjómannablaðið Víkingur Það braust um í stráknum löngun til að drepa fiskinn en síðan hafði yfirhönd- ina löngun hans til að gera náttúrunni gagn og mig grunar að drengurinn hafi séð í gegnum hégómann. Til hvers að drepa þennan fisk? Það var fallegt að sjá hann fara með þessa vinkonu sína aftur niður að ánni og strjúka henni á meðan hún jafnaði sig ofan í vatninu. Alveg er ég sannfærð- ur um að eftir á var strákurinn mjög ánægður með þessa ákvörðun sína. Hann á eftir að gera þetta aftur og aftur. Hins vegar er ekki loku fyrir það skotið að hann hefði nagað sig í handarbökin að máltíð lokinni ef hann hefði drepið hrygnuna fögru. Yngri kynslóð íslenskra veiðimanna er án efa á réttri leið og hefur lært af næstu kynslóð á undan að blind græðgi er sjaldnast besta leiðar- ljósið. Verndun silunga Þegar myndin um stangveiði á Íslandi var búin, fór ég að velta því fyrir mér hvers vegna hafi verið svona lítið fjallað um silungsveiði í henni. Kannski vildu höfundar myndarinnar að hún fjallaði fyrst og fremst um laxveiði? Sennilega en samt sem áður var stuttum köflum um silungsveiði skotið inn á milli og það sem stakk mig var að öllum silungi virt- ist slátrað umsvifalaust. Í fínu laxveiði- ánum var löxunum sleppt en sjóbirting- urinn drepinn ef hann villtist á færið. Í minna þekktum ám virtist það vera lög- málið að beita ormi, láta urriðann eða bleikjuna kokgleypa og drepa silunginn vafningalaust. Nú er það kunnara en frá þurfi að segja að sjógenginn silungur á mjög undir högg að sækja á Íslandi. Sjóbirt- ingsárnar fornfrægu á Suðurlandi eru ekki svipur hjá sjón miðað við það sem áður var og reyndir veiðimenn halda því fram að þar eigi laxaræktin mikla sök. Sjógengin bleikja hefur einnig átt mjög erfitt uppdráttar hin síðari ár og er nær- tækt að nefna nýlega frétt um sjóbleikju- veiðina í Hvítá í Borgarfirði sem hefur á fáeinum árum hrunið úr um 4.000 fisk- um á sumri í um 400 fiska á sumri. Nú veiðist þar aðeins um 10% af því sem var fyrir rúmum áratug. Og þá veltir maður því fyrir sér hvort veiðiréttarhöfum og veiðimönnum hafi aldrei dottið í hug að ef til vill þurfi ekki síður að vernda sjógengna silunga en sjógenginn lax? Þetta eru skyldar fisk- tegundir sem lúta að mörgu leyti sömu lögmálum náttúrunnar og eiga sér sam- eiginlega óvini. Skýtur það kannski ekki skökku við að í mynd um stangveiði á Íslandi árið 2010 sleppi veiðimenn flest- um löxum með bros á vör en drepi alla silunga miskunnarlaust eins og ekkert sé sjálfsagðara jafnvel þótt allir sjógengnir laxfiskar á Íslandi virðist eiga jafnerfitt uppdráttar nú um stundir? Spyr sá sem ekki veit. Blessuð ljósnálin Vel hefur gengið að vernda laxastofna í nokkrum íslenskum ám með því að ganga vel um auðlindina, drepa fáa eða enga fiska, raska ekki búsvæðum þeirra eða hrygningarstöðum og búa þannig í haginn að náttúran geti séð um sína. Þetta mætti gera með góðum árangri í miklu fleiri laxveiðiám og einnig þar sem silungurinn hefur átt sín gósenlönd. Mér segir svo hugur að verðmæti hreinna og ómengaðra straumvatna með hreinum og ómenguðum stofnum sil- unga og laxa eigi eftir að aukast stór- kostlega á komandi árum. Þetta vita til dæmis þeir sem stýra veiði í sjóbirtings- ánni Rio Grande í Argentínu og lax- veiðiánni Kharlovka í Rússlandi. Á þessum stöðum, og mörgum öðrum sem lúta ámóta veiðistjórn, er enginn fiskur drepinn og árnar fyllast af fiski á hverju sumri. Þannig gætum við umgengist sjó- birtingsárnar okkar á Suðurlandi sem nú drabbast niður þannig að óvíst er hvort sjóbirtingurinn hreinlega haldi velli. Þannig gætum við líka gengið um ís- lenskar sjóbleikjuár sem nú eru óðum að glata sinni fornu frægð. Tifandi sporðar blessaðrar ljósnálar- innar yrðu þá til þess að örva hjartslátt- inn og kitla eðlishvötina enn á ný og það sem meira er – um ókomna framtíð komandi kynslóðum til ánægju og heilla. Ljósnálin tifar. Björgvin Ólafsson glímir við sjóbleikju í Hofsá í Vesturdal í Skagafirði.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.