Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.2011, Side 47
Sjómannablaðið Víkingur – 47
Afreksviðurkenning
Árlega veitir Alþjóðasiglingastofnunin (IMO) afreksviðurkenn-
ingu til sjómanna sem hafa af hugrekki bjargað lífi annarra sjó-
farenda. Fyrir skömmu veitti aðalritari IMO Efthimios Mitro-
poulos sjómanninum James Fanifau frá Fijieyjum afreks-
viðurkenninguna fyrir árið 2010. Við það tilefni sagði Mitro-
poulos að James væri hvatning til þeirra sem standa frammi
fyrir þeirri ákvörðun hvort þeir skuli taka áhættu eða ekki.
Einnig að hann væri góð fyrirmynd fyrir ungt fólk. James var
fjórði vélstjóri á tæplega 4.000 tonna flutningaskipinu Scar-
lett Lucy frá Singapúr í maí 2009. Þar sem skipið var statt á
Tasmanhafi í slæmu veðri barst neyðarkall frá skútunni
Sumatra II sem var í nauðum stödd með tvo skipverja um borð.
Scarlett Lucy sigldi upp að skútunni og tókst öðrum skipverj-
anum að stökkva í klifurnet sem hékk niður síðuna en hinn, 72
ára læknir að nafni Jerome Morgan, náði ekki netinu og lenti í
sjónum. Ítrekaðar tilraunir voru gerðar til að ná til Jerome þar
sem hann var í sjónum en eftir um þrjú korter ákvað James að
fara út fyrir síðu skipsins. Náði hann taki á Jerome, sem þá var
aðframkominn, dró hann upp úr sjónum og lyfti honum inn
fyrir borðstokkinn. Hjá IMO er nefnd sem tekur við tillögum
frá aðildarríkjum stofnunarinnar til afreksviðurkenningarinnar
og var James tilnefndur af Áströlum.
Tilnefningar
Margar tilnefningar bárust frá þjóðríkjum til afreksviðurkennin-
gar IMO að þessu sinni. Þar á meðal var áhöfn kínversks fiski-
skips, Zhe Ping Yu 2325, tilnefnd af Kínverjum en þeim tókst
að finna og bjarga fjórum skipverjum úr gúmmíbjörgunarbát
eftir að flutningaskip þeirra Dong Hai 1818 fórst. Frá Filipps-
eyjum voru fjórir löggæslumenn um borð í ferjunni Super
Ferry 9 tilnefndir fyrir aðgerðir sínar eftir að skipið strandaði
og sökk. Suður-Afríka tilnefndi skipstjóra og tvo skipverja
björgunarskipsins Spirit of Ratary-Blouberg fyrir björgun þeirra
á 25 skipverjum af stórflutningaskipinu Seli 1. Bandaríkjamenn
tilnefndu björgunarmann og sjúkraliða frá þyrlusveit strand-
gæslunnar fyrir björgun á sjúklingi sem verið var að hífa frá
fiskiskipinu Andy II þegar hífingarvírinn fór í sundur.
Sjúkrabörur, með slasaða skipverjanum, lentu í sjónum og varð
björgunarmaður þyrlunnar eftir í sjónum hjá hinum slasaða og
hélt honum á floti þar til þyrlan kom aftur til baka eftir bráða-
birgðaviðgerð á vírnum. Þá bárust tilnefningar um yfirmenn á
eftirlitsskipi sem í 20 tíma vann að björgun fimm skipverja af
flutningaskipinu YoLuoHe 1111 sem hafði hvolft í slæmu veðri.
Björgunarmenn frá ísraelska hernum voru tilnefndir fyrir björg-
un sex skipverja af flutningaskipinu Salla 2 sem hafði sokkið.
Skipstjóri og skipverjar gámaskipsins Dorian voru tilnefndir
fyrir björgun 77 manna af farþega- og flutningaskipinu Lle
D‘Anjouan. Áttatíu slökkviliðsmenn frá Malasíu voru tilnefndir
fyrir slökkvistörf, leit og björgun eftir að eldur kom upp í olíu-
skipinu MT Formosa Product Brick. Að lokum voru tveir
strandgæslumenn frá Uruguay tilnefndir fyrir björgun þriggja
barna og tveggja fullorðinna eftir að skúta þeirra hafði farist.
Ætli Siglingastofnun hafi einhvern tíma tilnefnt til þessarar
afreksviðurkenningar?
Svarti listinn
Til að tryggja að þjóðríki fylgi lágmarkskröfum um menntun og
þjálfun, skírteini og varðstöðu um borð í skipum var komið á
eftirliti þjóðríkja með skipum þriðja ríkis eða svokölluðu hafn-
arríkiseftirliti (PSC). Hér á landi annast Siglingastofnun þetta
eftirlit. Nýlega var birtur listi yfir þau þjóðríki sem eru á hinum
svokallaða svarta lista PSC en sá listi hefur tekið eftirtektarverð-
um breytingum. Mörg ríki hafa bætt sig svo um munar í skoð-
unum á skipum undir fána sínum. Sex þjóðfánar höfðu engar
neikvæðar athugasemdir á árinu 2010. Útgerðarmenn eru
hvattir til að hugsa sig vel um áður en þeir skrá skip sín undir
þjóðfánum sem eru á svörtum lista PSC. Þau ríki sem skipa
svarta listann eru: Albanía, Bolivía, Cambodia, Colombia, Costa
Rica, Fílabeinsströndin, Lýðveldið Kongó, Georgia, Honduras,
Líbanon, St Kitts and Nevis, Sao Tome and Principe og Sierra
Leone.
Landgönguleyfi
Með tilkomu ISPS urðu sjómenn fyrir verulegum vandræðum
með að komast í land í bandarískum höfnum vegna krafna um
öryggismál á hafnarsvæðum. Það sama átti við um starfsmenn
velferðarþjónustu sjómanna, sjómannapresta, hafnsögumenn og
fulltrúa stéttarfélaga þar sem þeim var meinaður aðgangur að
skipunum sökum strangra krafna um öryggi hafnarsvæða. Sam-
Utan úr heimi
Hilmar Snorrason, skipstjóri:
Efthimios Mitropoulos afhendir James Fanifau afreksviðurkenningu
Alþjóðasiglingastofnunarinnar.
Sjómenn eiga nú að fá auðveldara aðgengi í gegnum hafnarsvæði með nýjum
lögum Obama.