Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 6

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 6
6 – Sjómannablaðið Víkingur dánir núna? Og hvað voru þeir margir? Var ekkert hægt að gera til að bjarga þeim? Var ekki hægt að komast á báti út að strandstaðnum? Eða var veðrið svo vont, að alls ekki væri hægt að komast neitt? Og hvernig var með björgunar- bátana, höfðu engir komist í þá? Spurn- ingarnar, sem leituðu á hugann voru margar, en það var fátt um svör í bili. Fréttir af því, hvað þarna væri að ger- ast, var aðeins að fá í gegnum símann. Símalína var til bæjanna Laxárholts og Vogs frá miðstöð, sem var á bænum Hundastapa. Fólki þar var þó ekki skylt að sinna símsvörun nema ákveðna tíma kvölds og morgna, en þegar svo mikil tíðindi lágu í loftinu sem nú virtist vera, var þó oftast svarað. Við hringdum nokkrum sinnum frá Laxárholti til að forvitnast og hlustuðum svo að sjálf- sögðu einnig, þegar hringt var frá Vogi eða þangað. Útvarp var þá ekki í gangi allan daginn eins og nú er orðið, aðeins um tíma að kvöldinu. En smám saman skýrðist málið. Fljótlega varð ljóst, að aðeins gat verið um eitt skip að ræða, franskt segl- skip, sem farið hafði frá Reykjavík daginn áður og ætlað áleiðis til Frakklands, en hefði lent í miklu hvassviðri um nótt- ina og hrakið undan veðrinu upp í skerja- garðinn við Mýrar. Þá upplýstist einnig að þetta var frægt hafrannsóknaskip og leiðangursstjórinn heimsfrægur vísinda- maður, en eitthvað vafðist nafnið á skip- inu fyrir fólki að svo stöddu. Smám saman bárust fréttir af því, að lík skipverja væri farið að reka á land, fyrst heyrðum við að þrjú væru fundin, síðan fimm og loks 17, þegar líða tók á daginn. En þá hafði líka einn skipverja rekið að landi lif- andi. Um kvöldið komu svo fréttir í útvarpi og síðar í blöðun- um. Það var franska rannsóknaskipið Pourquoi pas? sem strandaði á skerinu Hnokka undan Straumfirði um fimmleytið aðfaranótt 16. september 1936. Um borð voru 40 skipverjar og fórust 39 þeirra, en einn rak lifandi til lands og ungur maður í Straumfirði, Kristján Þórólfsson, bjargaði honum í flæðarmálinu. Leiðangursstjórinn hét dr. Charcot, víðkunnur vísindamaður. Skip- ið hafði verið í Reykjavík nokkra daga vegna viðgerða, en haldið á brott þaðan eftir hádegi daginn áður. Þegar reynt var að setja björgunarbáta á flot eftir strand- ið brotnuðu þeir jafnharðan í illviðrinu og þegar björgunarsveit frá Akranesi kom á vettvang var allt um garð gengið. Alls rak 22 skipverja til lands, þar á meðal lík dr. Charcot. Nokkrum dögum áður hafði hann hitt vesturíslenska land- könnuðinn Vilhjálm Stefánsson í Reykja- vík. Sjálfsagt hafa þeir tveir verið flestum fróðari um eitt og annað í norðurhöfum jarðar og ekki skort umræðuefni. En hvað kemur til, að ég skuli muna svo vel eftir þessum atburði og hann láta svo oft á sér kræla í huga mínum? Vissu- lega var þetta stórslys og margir létu lífið. Það voru þó menn, sem ég þekkti ekkert og ekki einu sinni samlandar mínir. Ekki var heldur einsdæmi að sjó- slys yrðu við Ísland. Þau hafa því miður orðið mörg á þeim áratugum, sem ég hefi lifað og margir sjómen látið lífið í harðri baráttu við hafið. Hversvegna man ég ekki eins vel eftir neinu af þeim slys- um? Hversvegna er ég búinn að gleyma þeim mörgum? Ég held að skýringin sé ein og aðeins ein: Menn muna hverskonar atburði, góða og illa, því betur sem þeir gerast nær þeim, og skiptir þá ekki öllu máli hvort viðkomandi sér atburðina eða ekki, þó að vitaskuld skerpi það minnið að sjá það sem gerist. Ég sá ekki franska skipið strandað á skerinu Hnokka. Ég sá ekki heldur líkum sjómannanna raðað upp í fjöruborðinu. Ég sá ekki neitt af því, sem gerðist í fjörunni við Straum- fjörð 16. september 1936. Samt man ég einkennilega vel eftir þessu. Það hlýtur að vera vegna þess hve nálægt mér þetta gerðist. Ef Pourquoi pas? hefði farist við Skeiðarársand væri ég líklega búinn að gleyma því og örugglega, ef það hefði farist við Noreg. Þau eru orðin mörg skipin, sem hafa farist við sandana í Skaftafellssýslum. Ég man ekki nafn á neinu þeirra. Fyrir mér er þetta sönnun þess, að menn muna það sem gerist því betur, sem það gerist nær þeim, nema annað komi til, sem heldur minninu vakandi. Á ég þá einkum við það, sem snertir við- komandi persónulega, nákomna ættingja eða ástvini. Þá verður, eftir því sem við á, gleði eða sorg til að örva minnið og festa atburðina þar til lengri tíma, og skiptir þá nánd eða fjarlægð minna máli. Einhverjir kunna að segja, að vegna þess hve ungur ég var, þegar slysið við Straumfjörð varð og hversu stórt í snið- um það var, hafi það skotið óslítandi rót- um í huga mér. Ég held, að því sé ekki þannig farið. Ég var á þessum tíma far- inn að fylgjast mjög vel með fréttum, innlendum og erlendum, og nægar voru þar slysafréttir og af mannskæðum at- burðum. Og ekki fækkaði slíkum frétt- um, þegar heimsstyrjöldin hófst, en fátt festist þá mér í minni. En nándin réði, þegar Pourqoui pas? fórst. En meðan ég man, það varð minna úr kartöfluupptektinni þann 16. september 1936, en ég hafði áformað, enda var veðrið ekki gott og fleira um að hugsa. En ég lauk við að taka upp næstu daga og kartöflurnar fóru til kaupfélagsins skömmu síðar og ég varð reikningseig- andi þar. Fyrsta úttektin var Stafsetning- arorðabók Freysteins Gunnarssonar, sem kostaði kr. 3.50. Bókin sú hefur oft kom- ið mér að gagni og skipar enn heiðurs- sess í minni bókahillu. Siglingaleið Charcot 1931.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.