Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur þegar troll fór á hvolf og snerist svo marga hringi á leiðinni upp að tugir faðma af togvírunum voru snúnir saman. Slíkir stórat- burðir og viðbrögð við þeim – rétt eða röng – urðu gjarnan umræðuefni, þegar beztu menn skipsins höfðu fengið sér í glas. Í skáldsögu Njarðar P. Njarðvík, Hafborg1, er lýsing á tog- aralífi. Þar er flott og raunsönn lýsing á því, þegar togara er haldið til í vitlausu veðri. Það er tilkomumikið að standa í brúnni og horfa fram eftir skipinu, þegar það hrapar í öldu- dalinn, fær yfir sig fylluna, fer á kaf, en byrjar svo að lyfta sér titrandi af átökunum undir sjófarginu, unz það rífur sig upp á næsta ölduhrygg, og sjórinn fossar út af dekkinu. Og þannig aftur og aftur, þar til veðrið hefur gengið niður. Göntuðumst með öryggismálin Benedikt: Þetta var svona með öryggismálin. Ég man, þegar við vorum eitt sinn að landa, þá átti að sjósetja björgunarbát. Það tók heilan dag að koma bakborðsbátnum út, koma honum í sjóinn. Þótti ekki taka því að eyða tíma á hinn bátinn. Hugsum um það, ef þurft hefði að nota þessa báta. Norðlendingur var þó ein undantekning, allt hjólliðugt hjá þeim. Þau voru mjög fá skipin, þar sem eitthvað var hugsað um þetta. Haukur: Setustofa eða káeta var aftur í á Guðmundi Júní. Þar voru lokrekkjur fyrir kyndarana. Umhverfis setustofuna voru þrír klefar. Í þeim voru vélstjórarnir, kokkar og fyrsti stýrimaður, alls bjuggu átta manns þarna niðri. Vel hafði verið vandað til innréttinga í upphafi, harðviður og fínerí. En ein- ungis ein aðkomuleið var að þessum vistarverum; stigi niður úr ganginum stjórnborðsmegin. Það hefði því orðið harðsótt að komast þaðan og upp á dekk í því neyðartilfelli, að skipið hefði legið á stjórnborða. Við þessu höfðu menn séð, þegar skipið var smíðað, því yfir stóru borði í setustofunni var lúga, mannop upp á bátapall, og hefur augljóslega átt að vera neyðarútgangur. 1 Njörður P. Njarðvík. Hafborg. Rvk. 1993. Þetta var stórt kýrauga lokað með boltum, sennilega ¾”, með vængjaróm. En rærnar voru óhreyfanlegar, því búið var að mála þetta allt saman ótal sinnum með olíumálningu. Og þótt menn hefðu nú haft slípirokk með skurðarskífu við hendina og kúttað boltana, þá hefði það engu breytt, því stór kista var boltuð í bátapallinn, beint yfir mannopinu. Hún var full af björgunar- beltum þessara tíma; gerðum úr striga með korkflotum. Þarna hefur áreiðanlega verið geymdur lögboðinn fjöldi björgunar- belta fyrir skipið. Ekki misstum við sægarparnir svefn vegna ónothæfs neyðar- útgangs, heldur gerðum við grín að öllu saman. Einkum minnir Olav Öyahals, vélstjóri, með konu sinni Huldu og börnum á Flateyri við heim- komuna. - Ljósmynd: Ól. K. M. Breskur togari á Íslandsmiðum, svipaðrar gerðar og Loch Milford. Ljósmynd: Ragnar Franzson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.