Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur mig að við höfum spaugað með þessa björgunarbeltaeign úgerð- arinnar svona yfir neyðarútganginum. Þannig var tíðarandinn. En ég held nú samt, að við höfum farið að spá í þetta í fram- haldi af því, að við fengum gusu þarna niður, þegar Gvendur kastaðist á hliðina í vondu veðri á leið frá Austur Grænlandi. Vel að merkja, hann var fljótur á réttan kjöl aftur, gamli kaf- báturinn. En ein eða tvær smurolíutunnur, sem við áttum bundnar við rekkverkið á bátapallinum, fóru í hafið og tóku með sér hluta rekkverksins. Ef matarkistan hefði bara komið upp? Haukur: Félagi minn af Guðmundi Júní, Olav Öyahals, vél- stjóri, settist seinna að á Flateyri og keypti með öðrum bátinn Mumma ÍS 366. Þeir voru að byrja vertíðina frá Flateyri haustið 1964, þegar báturinn fékk á sig hnút í róðri og sökk á 3–4 mínútum. Af sex manna áhöfn fórust 4, fóru niður með bátn- um eða hurfu fljótlega. Uppi á stýrishúsi bátsins höfðu verið tvær kistur, önnur með gummíbjörgunarbátnum og hin með kosti. Þegar Olav og félagi hans, Hannes Oddsson, skipstjóri, svömluðu þarna í köldum sjónum, skaut upp annarri kistunni. Hvor var hún? – hugsaði Olav. Hún reyndist vera sú með björgunarbátnum. Olav er mikið hraustmenni, en þeir tveir hefðu líka farist, ef matarkistan hefði bara komið upp; 30 klst. liðu, þar til brezkur togari (Loch Milford) kom og bjargaði þeim úr bátnum.2 Benedikt: Báturinn fórst út af Kópnum, óþverrastaður, straumrastir. Ólafur: Óvíst, hvort lesendur nú til dags geti sett sig inn í þetta. Til þess er tómlætið um allt nema eigin hag of mikið og getan hjá mörgum til að greina á milli raunverulegrar vinnu og gervistarfa er horfin. Benedikt: Harðbak gamla átti að varðveita. En hann var bara horfinn einn morguninn. Í skjóli nætur var farið með hann. Allt vitlaust út af þessu. Málið var komið í hendur bæjarstjórnarinn- ar á Akureyri og búið að gera bás fyrir hann utan við Slippinn. Hann var dreginn eða honum siglt eitthvert suðureftir og rifinn; hann var í siglingarhæfu ástandi. Og þar fór síðasti nýsköpunar- togarinn og sá bezt umgengni, var alltaf vel við haldið. Í síðasta tölublaði var spurt á bls. 7, hvaðan myndin væri af Harðbak. Hún er tekin á Fáskrúðsfirði. Á bls. 10 er talað um gott hal af blönduðum fiski, en líklegra er, að það sé mest karfi, belgurinn flýtur svo hátt uppi. Haukur: Það er ófyrirgefanlegur aumingjaskapur, að við skulum ekki eiga varðveittan einn síðutogara. Ég hef verið að Þar til annað kemur í ljós ætlar ritstjórinn – ekki mjög skipaglöggur maður, vel að merkja – að halda því fram að myndin sýni Kaldbak EA á Íslandsmiðum. Ljósmynd: Ásgrímur Ágústsson. 2 Bátur frá Flateyri ferst – annars saknað. Morgun- blaðið, 1963, 51. árg., 239. tbl., bls. 1 og 12; — Gúmbátnum skaut upp 10 mín. eftir að Mummi sökk. Morgunblaðið, 1963, 51. árg., 239. tbl., bls. 1 og — Steinar J. Lúðvíksson. Þrautgóðir á raunastund. Rvk. 1984, 16. bd, bls. 58–63. spyrjast fyrir um, hvort hugsanlegt sé að ná upp afturhlutanum af Guðmundi Júní, með vélarrúmi, fýrplássi og tilheyr- andi búnaði. Koma þessu fyrir á safna- svæðinu á Ísafirði. Held, að það væri mjög áhugavert. Mestu skiptir, hvernig gengið var frá skipinu, þegar mokað var yfir það. Mér skilst, að skrokkurinn hafi verið fylltur af möl. En var allt inni í skipinu molað niður? Enn hef ég ekki fengið alveg klár svör við þessu, bíð eftir frekari upplýsingum og held í þá von, að hægt verði að bjarga þarna sögulegum verðmætum. Skipið er grafið í Suður- tanganum á Ísafirði eins og áður hefur komið fram.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.