Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 30
30 – Sjómannablaðið Víkingur I. Fyrsti túrinn minn sem 1. stýrimaður Þegar Þorkell Máni kom nýr til lands- ins var Hannes Pálsson skipstjóri á honum og Hallgrímur Guðmundsson 1. stýrimaður, en Hannes sótti þrjú skip Bæjarútgerðar Reykjavíkur til Englands. Þá Ingólf Arnarson, Þorstein Ingólfsson og Þorkel Mána. Ég fylgdi honum á öllum þessum skipum. Í salt og frystingu Vorið 1952 var Máninn búinn til Græn- landsveiða og átti að veiða í salt, fryst- ingu og mjölvinnslu. Hann þótti víst svo stórt skip, Máninn, að þessu var öllu hrúgað í hann. Fjórar fremstu stíurnar í lestinni voru einangraðar fyrir frysti- geymslur. Þar skyldi geyma frosinn fisk en fjórar öftustu voru mjölgeymsla. Svo var hlaðið salti, olíu og vatni eins og komst í skipið. Hannes Pálsson fór í frí þennan túr. Hallgrímur – sem við köll- uðum venjulega Grím – var því skip- stjóri en ég 1. stýrimaður sem hafði ekki gerst áður. Það gekk allt tíðindalaust á miðin og ekki slegið af fyrr en við komum norður á Fyllasbanka. Þá var þar fyrir b/v Ólaf- ur Jóhannesson frá Patró og hafði fengið góðan afla í fyrsta holi. Bjartar vonir kviknuðu því strax. Þegar ég kom upp fyrsta kvöldið var Grímur skipstjóri búinn að hafa tvö hol sem voru eitthvað misheppnuð og lá illa á karli þegar ég kom í brúna. Allt í einu segir hann við mig, hálfgert í fússi: „Við skulum skælast hérna.“ Síðan fór hann inn til sín og skellti hurðinni á eftir sér og var þó rétt byrjaður að kasta í þriðja sinnið er ég kom upp. Sjón að sjá Það var kolsvarta þoka og þegar ég leit á radarinn sá ég allt í kringum okkur punkta eins og berjaskyr. Ég gerði mér enga grein fyrir því hvort þetta voru skip eða jakar, nú eða kannski eitthvað allt annað. Ég gerði mér heldur enga grein fyrir því í hvaða átt væri réttast að kasta eða hvernig kanturinn lá. Mér var þó ljóst að nú varð að skvera trollið, ég setti því á ferð og var búinn að fara hálfan annan hring í vandræðum mínum – og eflaust búinn að galopna trollið – þegar Grímur kemur aftur framm í brú og nú heldur léttari á brún. Leiðbeindi hann mér við að kasta og gekk allt vel. Skömmu síðar siglum við framm á færeyska skútu sem var á trolli. Ég hug- leiddi það ekkert frekar en klukkutíma síðar þegar við byrjum að hífa kalla strákarnir á dekkinu upp til mín: „Það er Færeyingur við skutinn á okkur að kalla eitthvað.“ Og mikið rétt, þarna voru þeir, pat- andi öllum öngum. Ég áttaði mig ekkert á látunum í þeim en þegar forhlerinn hjá okkur kom upp í gálgann gat á að líta. Þar blasti við troll Færeyinganna í einum haug. Við vorum búnir að draga skútuna á eftir okkur í klukkustund án þess að taka eftir því. Þetta var fyrsta holið sem Ragnar Franzson Við Grænland Færeysk skúta, eða kútter; kannski eitthvað lík þeirri er Ragnar veiddi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.