Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Page 33
Sjómannablaðið Víkingur – 33
á meðan þau voru skráð hér á landi eða
að meðaltali 4,14 nöfn pr/skip sem tæp-
ast telst til frétta sé litið til eigendaskipta
í íslenska fiskiskipaflotanum.
Örlög skipanna
Búið er að úrelda bæði Ögra og Vigra.
Vigri hét síðast Haukur ÍS-847 þegar
hann var úreltur og seldur í brotajárn til
Danmerkur. Tekinn af íslenskri skipaskrá
í apríl ´07. Ögri hét síðast Bravo SH-163
þegar hann fór í úreldingu og seldur til
Póllands. Tekinn af íslenskri skipaskrá í
ágúst ´03.
Engey RE-1 er enn á skrá og ber nafn-
ið Kleifarberg ÓF-2, gerð út af Brimi h/f
Reykjavík.
Hrönn RE-10. Skipið heitir núna Yaisa
og er flutningaskip skráð á Belize. Sem
stendur er skipið verkefnalaust. Skipið
var tekið af íslenskri skipaskrá í okt.
1999.
Baldur EA-124 var seldur til útgerðar-
félagsins Reyktal A/S í Eistlandi í des.
´03 og tekinn af íslenskri skipaskrá. Hét
þá Eldborg RE-13. Skipið er enn á skrá í
Eistlandi og í fullum
rekstri; heitir núna
Eldborg EK og er
gert út af sama
félagi og keypti það
Reyktal A/S. Sam-
kvæmt gögnum
Siglingastofnunar Ís-
lands var skipið í
eigu ríkissjóðs allt
þar til í janúar 1991
að það var skráð
undir nafninu Skut-
ull ÍS-180. Í nóv.
1975 varð Hafrann-
sóknastofnunin
formlegur eigandi
skipsins. Var þá
strax hafist handa við að breyta því í sam-
ræmi við nýtt hlutverk. Á þessum breyt-
ingum varð nokkuð hlé í upphafi árs
1976 en þá var skipið tekið til landhelgis-
gæslu í síðasta þorskastríðinu við Breta
sem lauk formlega í júní sama ár. Á með-
an skipið var í eigu Hafrannsóknastofn-
unarinnar hét það Hafþór RE-40.
Ver AK-200. Rétt er að geta þess að
um vorið 1976 þegar landhelgisstríðið
við Breta var í algleymingi tók ríkið tog-
arann trausta taki til þess að taka þátt í
landhelgisstríðinu. Í sinni fyrstu ferð
lenti skipið í árekstri við breska freigátu
og laskaðist svo illa að það varð að fara
beint í viðgerð. Að viðgerð lokinni var
búið að ná sátt í deilunni við Breta. Skip-
ið var selt til Noregs og hét þá Víðir
EA- 910. Tekinn af íslenskri skipaskrá í
okt. ´08.
Guðsteinn GK-140 varð í maí 1983
hið fræga skip Akureyrin EA-10, eða
fyrsta skipið sem Samherji á Akureyri
eignaðist sem má trúlega segja að hafi
lagt grunninn að Samherjaveldinu. Í maí
2005 var það skýrt Norma Mary og fékk
einkennisstafina EA-12 Í framhaldinu var
það selt til Englands og tekið af íslenskri
skipaskrá. Í dag siglir það með ýmsar
nauðsynjar til fiskiskipa sem eru að
veiðum við vestur Afríku og heitir Yaiza
og er skráð í Belize.
Í skipunum voru aðalvélar frá tveimur
framleiðendum, Blacstone og Zcoda
Zulser. Aðalvélarnar í Ögra og Vigra voru
frá Mirrleess Blacstone en í hinum fimm
frá Zcoda Zulser.
Í töflunni hér að neðan koma fram
helstu tæknilegar stærðir vélanna:
Í línu 1 og 2 koma fram helstu upp-
lýsingar um aðalvélarnar sem settar voru
í Ögra og Vigra á sínum tíma. Í línu 1
eru tæknilegar upplýsingar um vélarnar
eins og þær voru útfærðar þar um borð.
Í línu 2 koma fram tæknilegar upplýs-
ingar um vélarnar miðað við það há-
marks stöðugt álag sem þær voru fram-
leiddar til að skila.
Eins og fram kemur í töflunni þá voru
vélarnar um borð í Ögra og Vigra keyrð-
ar á um 55% álagi miðað við það há-
marks stöðugt álag sem vélarnar voru
framleiddar til að skila. Það var gert með
því að færa snúningshraðann niður úr
600 sn/mín í 450 sn/mín. Af því leiddi
að meðalþrýstingurinn fór úr 19,01 kg/
cm² í 13,88 kg/cm²
Í línu 3 og 4 koma fram helstu upp-
lýsingar um aðalvélarnar sem settar voru
í síðari fimm skipin á sínum tíma. Í línu
3 eru tæknilegar upplýsingar um vél-
arnar eins og þær voru útfærðar þar um
borð. Í línu 4 koma fram tæknilegar
upplýsingar um vélarnar miðað við það
hámarks stöðugt álag sem þær voru
framleiddar til að skila.
Eins og fram kemur í töflunni þá voru
vélarnar, í seinni fimm skipunum, keyrð-
ar á um 67% álagi miðað við það hámarks
stöðugt álag sem þær voru framleiddar til
að skila. Það var gert með því að færa
snúningshraðann niður úr 560 sn/mín í
485 sn/mín. Af því leiddi að meðalþrýst-
ingurinn fór úr 19,99 kg/cm² í 15,39 kg/
cm².
Í einu skipanna sem nú heitir Yaiza
sem í upphafi hét Guðsteinn GK-140 og
síðan Akureyrin EA-10 hefur aðalvélin
Vigri/Ögri Hinir 5 Ein. Br. í %
Rúmlestir ............................ 726,00 742,00 brl 2,20
Mesta lengd ....................... 59,50 60,60 m 1,85
Lengd milli lóðlína .............. 52,45 53,00 m 1,05
Breidd ................................ 11,30 11,30 m 0,00
Dýpt að efra þilfari ............. 7,30 7,30 m 0,00
Dýpt að neðra þilfari .......... 5,00 5,00 m 0,00
Djúprista (KVL) ................... 4,60 4,60 m 0,00
Lestarrými ........................... 475,00 530,00 m³ 11,58
Brennsluolíugeymar ............ 107,00 145,00 m³ 35,51
Brennsuolíu/kjölfestugeymar 133,00 137,00 m³ 3,01
Ferskvatnsgeymar ............... 56,00 57,00 m³ 1,79
Ganghraði reynslusigling .... 14,90 16,20 sml 8,72
Aðalvél ............................... 1596,00 2208,00 kW 38,35
Mirleess K6 Major
Stöðugt Snúnings- Virkur.m Meðal
álag hraði þrýst. bulluhraði
kW sn/mín kp/cm² m/sek
1 1.596 450 13,88 6,86
2 2.915 600 19,01 9,14
Sulzer 6zL 40/60
3 2.208 485 15,39 7,76
4 3.312 560 19,99 8,96
Upphaf Samherja voru frændurnir þrír í brúnni – og þetta skip; Guðsteinn GK, seinna Akureyrin EA en nú
skráð í Mið-Ameríku-ríkinu Belize þar sem Elísabet 2. er enn drottning. Ljósmynd: Hilmar Snorrason.