Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 36

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Blaðsíða 36
36 – Sjómannablaðið Víkingur Það var um haust árið 1979. Ég var þá skipstjóri á Guðfi nnu Steinsdótt- ur ÁR-10. Við höfðum lokið síldveiðum sem höfðu gengið nokkuð vel þetta árið og var að þeim loknum ákveðið að fi ska í net. Fyrst var landað heima en seinni- part nóvember var byrjað að fi ska fyrir Þýskalands markað. Haldið á Brjálaða Eins og flestir vita er reynt að fá ufsa og karfa fyrir þýska markaðinn frekar en þorsk og ýsu. Það var nokkur reynsla komin á að fiska ufsa á haustin á hrygg sem er skammt sunna Víkuráls á land- grunnsbrúninni. Hryggur þessi er um það bil 20 sjómílur að lengd. Á þessum slóðum eru haust og vetrarveðrin hörð og oftar en ekki fengu bátar sem þangað sóttu á sig vond veður. Sjómenn hafa í gegnum tíðina gefið veiðislóðum hin ýmsu nöfn og fékk hryggurinn eitt slíkt nafn og gekk manna á meðal undir nafn- inu Brjálaði hryggurinn eða bara Brjálaði vegna hinna vondu veðra. Ég ákvað að reyna á Brjálaða en það var kominn tími á að ufsi gæfi sig til þar samkvæmt reynslu undanfarinna ára. Síðasta löndunin fyrir siglingatúrinn var í Reykjavík og að hafnarfríi loknu var lagt af stað undir miðnætti á fimmtu- dagskvöldi. Flestir undirmennirnir voru ungir og frískir strákar og höfðu notað tækifærið og hellt aðeins upp á sig og voru sumir talsvert íðí þegar lagt var af stað. Þetta ástand hafði enga eftirmála, enda sautján klukkutíma stím á miðin og menn sváfu úr sér á leiðinni. Þarf ekki að orðlengja það frekar að netin voru lögð á föstudeginum og dregin í fyrsta skipti á laugardeginum. Ég man ekki lengur hvernig aflinn var en eitthvað hefur fengist því aftur voru netin lögð. Úti á Brjálaða voru fleiri með netin sín en við, ég er ekki viss um hverjir voru á svæðinu en þó man ég að tveir bátar úr Vestmannaeyjum voru þarna, þeir Gull- berg og Gjafar og Jóhannes Gunnar úr Grindavík. Ég held að ég muni rétt að Búrfell KE hafi verið þarna líka. Það voru þó aðeins við og Jóhannes Gunn- ar sem voru að fiska fyrir erlendan markað. Veiðarnar gengu vel nema afli hefði mátt vera meiri, þetta fimm til níu tonn á dag. Þegar búið var að draga netin á þriðjudeginum var haldið til Reykjavíkur að ná í net til endurnýjunar og eitthvað fleira sem vantaði og síðan fyllt upp með ís sem átti að duga túrinn. Á miðviku- dagsmorgninum kom fyrsta stormspáin. Ég hafði lesið viðtal við Tryggva Ófeigsson þekktan togaraskipstjóra, sem meðal annars stundaði veiðar á þessum slóðum á árum áður, að þegar veður gekk upp og útlit fyrir vont veður, færðu þeir sig alltaf tuttugu til þrjátíu sjómílur inn á Látragrunnið vegna þess að straumar eru slæmir á þessum slóðum og þegar norðaustan stórviðri ganga yfir og straumurinn stendur upp í vindinn þá verður sjólag mjög vont. Ég gerði eins og Tryggvi og við færðum okkur að drætti loknum grynnra á kvöldin vegna hinnar slæmu spár. Þetta endurtók sig í 2 eða 3 daga og enginn kom stormurinn og þar kom að ekki var tekið mark á spánni lengur og hætti ég að eyða tíma í að sigla í tvo tíma kvölds og morgna. Á þessum veiðum tíðkast að staðnar eru vaktir á nóttunni og skipta hásetarnir gjarnan á milli sín vöktum og ýmist látið reka ef gott er veður eða haldið upp í sjó og vind í brælum. Veðurspáin rætist - loksins Það átti að byrja að draga klukkan sjö þennan morgun en þá var orðið talsvert hvasst og ekki fært til að draga. Ég ákvað að bíða eftir veðurspánni klukkan tíu mínútur yfir tíu og fór aftur í koju. María Júlía BA 36 liggur við bryggju á Patreksfirði þangað sem átti að koma Þórði undir læknishendur. Gísli Jónsson MAÐUR FYRIR BORÐ!

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.