Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2011, Qupperneq 37
Sjómannablaðið Víkingur – 37 Vaktirnar gengu áfram í brúnni og var bátnum haldið upp í vind og sjó. Ég var síðan ræstur aftur rétt fyrir klukkan tíu eins og fyrir var lagt. Ég kom við í borðsalnum og fékk mér kaffi og brauðsneið áður en ég færi að takast á við verkefni dagsins. Fáir af áhöfninni voru í borðsalnum, voru flestir í klefum sínum. Einar Reynisson, annar vélstjóri, var á vakt í vélinni og var hann og Jens Þorsteinsson háseti í borðsaln- um en Jens var að fara á vakt í brúnni og urðum við samferða upp. Þórður Eiríks- son háseti var að enda sína vakt. Þessir menn áttu allir eftir að koma við sögu þennan örlagaríka dag. Það sem við blasti þegar ég leit út um brúargluggann var ekki árennilegt, stóra stormur og mikill sjór, en engir sjáan- legir brotsjóir. Ég hef áður getið þess að á þessum slóðum geta orðið mjög vond veður í norðaustan stórviðrum og vont sjólag ef straumur stendur norður. Þarna voru komnar þær aðstæður. Ég heyrði ávæning af samtali þeirra Þórðar og Jens þar sem þeir töluðu um að keðja á netadreka sem staðsettur var við vantinn bakborðsmegin á efra dekki væri að dragast eftir dekkinu og truflaði svefn þeirra sem sváfu í klef- unum frammí. Þeir félagarnir Jens og Þórður gengu eitthvað niður rétt áður en veðurspáin var lesin klukkan tíu en ég fór að hlusta á veðrið. Ég man enn formálann að veður- spánni: „Nú geysar fárviðri á Vestfjarða- miðum.“ Það var orð að sönnu. Ég öskraði Víkjum nú að þeim Þórði og Jens. Þeir höfðu orðið samferða niður og voru enn að velta fyrir sér með drekakeðjuna og urðu lyktir þær að keðjan skyldi fest. Upphaflega ætluðu þeir að fara báðir en úr varð að Þórður fór einn. Þetta vissi ég ekki fyrr en síðar. Að veðurspánni lokinni fór ég að tala í talstöðina og voru skipstjórarnir að ráða ráðum sínum hvað best væri í stöðunni, hvort ætti að reyna að sigla í var eða að halda sjó. Hvorutveggja var vondur kostur því tæpar sjötíu mílur voru í næsta var og yrði það löng sigling á móti svo miklum vindi. Hitt var líka slæmur kostur þar sem veðrið var enn að versna. Þar sem ég stóð við gluggann sé ég að einhver var að fara fram á dekkið, ég sá ekki hver þar fór en reif upp glugg- ann og öskraði af lífs og sálarkröftum til að stoppa manninn. Ekki gekk það og var sama hvað ég gerði mér tókst ekki að ná sambandi við hann fyrir veðurofs- anum. Þórður, en þetta var hann, skreiddist fram dekkið og yfir að drekahrúgunni á rekkverkinu og ætlaði að fara að festa keðjuna. Þar kom að því, það reis upp eitthvert það stærsta brot sem ég hef séð og stefndi á bátinn þar sem Þórður var að bjástra við keðjuna. Brotið skall á bátnum og fann ég þegar það skall á bátnum að framan og síðan ofaná brúna. Þegar þessi öflugi brotsjór hjaðnaði og þegar ég fór að sjá út var sem mig grunaði, Þórður var horfinn. Um leið hentist ég út í dyrnar fyrir aftan mig og leit aftur fyrir bátinn og þar lá hann í sjónum svona fimmtíu til sjötíu metra fyrir aftan bátinn. Þórður veifaði til mín þar sem hann lá í sjónum og ég kallaði til hans að við myndum bjarga honum. Þeir Einar annar vélstjóri og Jens komu upp í brúna þegar brotið skall á bátnum og man ég ekki hvort fleiri bætt- ust í hópinn. Ég setti vélina í botn og fór að snúa bátnum en gætti þess jafnframt að tapa ekki sjónum af Þórði. Ætlun mín var að komast vindmegin við manninn og láta bátinn síðan reka að honum og reyna að ná til hans þannig. Þegar stutt var eftir í að komast fyrir vind var Þórð- ur orðinn meðvitundarlaus og lá á grúfu í sjónum og mátti nú engan tíma missa því lífslíkurnar minkuðu nú hratt. Það sem mér fannst vera heil eilífð hefur ekki verið nema eitthvað um fimm mínútur frá því brotið reið á og þar til www.ishusid.is S: 566 6000 Smiðjuvegi 70 200 Kópavogi FREON Hágæða Framleiðendur kælikerfa hafa varað við óvönduðum framleiðendum en mikið hefur verið um efni á markaðnum sem geta eyðilagt kerfi vegna lélegra grunnefna og raka í freoninu. Íshúsið býður upp allar gerðir hágæða freons frá Koemans. Skiptiefnið í staðinn fyrir R-22 er væntanlegt. Um þetta snýst íslenskur sjávarútvegur, verkun og útflutning. Þeir á Guðfinnu Steinsdóttur ætluðu að fiska fyrir Þýskalandsmarkað. Aðrir sendu skreið til Afríku.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.