Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 6
Útgerðarfyrirtækið Síldarvinnslan
hf. hlaut í ár Varðbergið, forvarna-
verðlaun Tryggingamiðstöðvarinnar
(TM). Fulltrúar TM heimsóttu Síldar-
vinnsluna hf. 3 júní síðast liðinn og af-
hentu verðlaunin.
Varðbergið forvarnaverðlaun TM, hafa
verið veitt frá 1999. Þau hlýtur árlega sá
viðskiptavinur TM sem þykir skara fram
úr á sviði forvarna gegn óhöppum og
slysum. TM veitti jafnframt fyrirtækinu
Aðföngum sérstaka viðurkenningu fyrir
starf í þágu forvarna.
Síldarvinnslan hf. er í dag eitt af
stærstu og öflugustu sjávarútvegsfyrir-
tækjum landsins og byggir starfsemin á
yfir 50 ára reynslu í fiskvinnslu og út-
gerð. Fyrirtækið er það stærsta á Íslandi í
veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski og
einnig stærsti framleiðandi á fiskimjöli
og lýsi. Höfuðstöðvar Síldarvinnslunnar
eru á Neskaupstað.
Um Síldarvinnsluna segja sérfræðing-
ar TM í forvörnum að félagið sé leiðandi
í öryggis og forvarnamálum. Fyrirtækið
býr að öflugri liðsheild starfsmanna sem
leggjast á eitt um að fullnægja öllum
framleiðslu, gæða- og öryggisstuðlum.
Tekið er skipulega á móti nýju starfsfólki
með góðri fræðslu þannig að starfsmenn
nái sem fyrst tökum á verkefnum sínum,
fái jákvæða mynd af fyrirtækinu, kynnist
helstu samstarfsmönnum sínum og þekki
rétt sinn og skyldur.
Undanfarin ár hefur Síldarvinnslan hf.
verið með skýra sýn á öryggis- og for-
varnamál sem er nauðsynlegt fyrir rekst-
ur sem felur í sér áhættusama þætti.
Unnið er markvisst forvarnastarf sem
hefur falið í sér bætta öryggishegðun
og heilsuvernd starfsmanna. Forvarna-
starfið hefur skilað þeim árangri að
slysum og veikindum hefur fækkað
umtalsvert. Síldarvinnslan á því mikið
hrós skilið fyrir að vinna markvisst,
jákvætt og af mikilli festu að forvörn-
um.
hann hélt það nú. Hann tók samt upp
lykilinn og skipti yfir á hinn tankinn.
Ekki komu fleiri stórbrot en siglingin
var mjög erfið og nú var land í nánd.
Ekki heyrðist nema brak í talstöð, loftnet
höfðu gengið úr lagi. Ástvinir í landi
höfðu áhyggjur, ekkert hafði heyrst frá
bátnum. Þegar komið var inn í fjarðar-
mynni sást til þeirra frá öðru skipi er
sendi gleðitíðindin í land. Þeir eru enn
ofansjávar, hljómaði í landi. Ekki voru
allir svo lánsamir. Einn bátanna úr ver-
stöðinni kom aldrei aftur til hafnar,
náttúruöflin höfðu þar sigur.
Olían var sjór
Þegar báturinn hafði verið bundinn
við bryggju og löndun lokið fór vél-
stjórinn að skoða skemmdir. Öll lunn-
ingin áveðurs hafði lagst inn, fyrir miðju
höfðu járnfestingar rifnað upp úr dekk-
inu. Og hvað var nú þetta, afloftunar-
rörið frá olíutanknum hafði brotnað við
dekk.
Leifturhugsun fór um huga hans
þegar hann áttaði sig á að olíutankurinn
var fullur af sjó. Ef ekki hefði verið skipt
yfir hefði báturinn breyst í stjórnlaust
rekald og ljósavélin, sem tók eldsneyti úr
sama tanki, hefði dáið drottni sínum.
Eftir áramót hófust róðrar aftur. Ef
spá var slæm og dökkur bakki til hafs
var snúið við og hætt við róður. Sjálfs-
traustið var brostið og menn treystu ekki
bátnum heldur.
Enginn talaði um þessa sjóferð, eng-
inn orð fóru á milli manna. En þegar öl
vertíðarlokanna tók að streyma var talað
og talað.
Á þessu tíma var ekki búið að skil-
greina orðið áfallahjálp.
Forvarnaverðlaun TM
Frá afhendingu Varðbergsins, forvarnaverðlauna TM á árshátíð Síldarvinnslunnar þann 3. júní á þessu ári.
Frá vinstri; Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, Sonja Sif Jóhannsdóttir, forvarna-
fulltrúi TM, Jón Hlífar Aðalsteinsson, skipstjóri á Bjarti NK, Freysteinn Bjarnason, umboðsmaður TM á
Neskaupstað, og Hjálmar Sigurþórsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjaþjónustu TM.
6 – Sjómannablaðið Víkingur