Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Qupperneq 8
8 – Sjómannablaðið Víkingur
Tvennt þarf ég taka fram strax í upp-
hafi greinargerðar um engla. Annað
er það að þeir tiltölulega fáu menn sem
komast til Paradísar verða ekki að engl-
um sjálfir, heldur njóta þeir þjónustu
engla, sem er líka miklu þægilegra. Það
eru einkum tveir afskekktir sértrúar-
söfnuðir sem halda hinu fram. Ekki að
þetta skipti miklu, því á miðöldum var
sagt að einungis einn af hverjum tíu
þúsund yrði hólpinn. Til eru bjartsýnni
spár, til dæmis ein nýleg bandarísk
rannsókn sem heldur því fram, að
53.9 % allra manna komist til himna
eftir dauðann, en varla er mikið mark á
henni takandi, því Bandaríkjamenn eru
þekktir fyrir að ofmeta vinsældir sínar.
Hitt er það, að af öllum ómerkilegum
spurningum um engla, er sú allra
ómerkilegust hvort þeir séu til í raun-
veruleikanum eða ekki. Ef út í það er
farið eru mörg merkilegustu fyrirbæri
heimsins alveg jafn óáþreifanleg eins
og englarnir.
Tilurð engla
– æfing í handverki fyrir sköpun mannsins –
Tvær kenningar eru uppi um tilurð engl-
anna. Önnur er sú að Drottinn hafi skap-
að þá eins og flest annað, nema fáeina
brúkshluti sem menn hafa sjálfir fundið
upp, eins og til dæmis ostaskerann sem
Norðmenn bjuggu til. Guðfræðingar
telja að þetta hafi hann gert strax á fyrsta
sköpunardeginum, um leið og hann bjó
til ljósið, en þrálátur orðrómur er um að
uppistaðan í englunum sé einmitt ljós.
Það rýrir ekki gildi engla, þó þeir séu
ekki gerðir úr varanlegra efni og má
minna á að líka bíómyndir eru aðallega
úr ljósi.
Fyrir liggur samþykkt kirkjuþings í
Róm frá árinu 1215 þess efnis, að með
því að skapa englana hafi Guð verið að
æfa sig undir að búa til mennina, sem
vissulega eru miklu ófullkomnari en
samt skemmtilegri en englar. Mannkynið
skapaði hann ekki fyrr en sjötta og síð-
asta sköpunardaginn, þá orðinn útkeyrð-
ur eftir stranga vinnuviku, sem skýrir
ófullkomleika þess. Mannkynið reyndist
svo ófullkomið að ekki einasta neyddist
hann til að úthýsa því úr Paradís fyrir
óhlýðni og hroka, heldur mátti hann
drekkja því nánast öllu í Syndaflóðinu
1656 árum síðar og byrja mannkyns-
söguna svo til upp á nýtt.
Um fjölda engla
– fuglar himins eiga að minna okkur á engla –
Mjög hafa englafræðingar velt því fyrir
sér, hve marga engla Guð hafi skapað.
Margir hallast að útreikningi kardínálans
í Tusculum, að Guð hafi upphaflega
skapað 399.920.004 engla. Sem kunnugt
er féll þriðjungur engla snemma niður til
Vítis ásamt foringja sínum Lúsifer. Þetta
eru svonefndir fallnir englar og eru síðan
Jón Björnsson
E N G L A R – Fyrri hluti –
Vatikanið í Róm. Þar hafa heilagir feður pælt ómælt í eðli engla. Myndin er tekin frá Sánkti Péturskirkju þar sem Pétur postuli er jarðsettur.
Fuglar eiga tilveru sína englum að þakka.