Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Page 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Page 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur utan við borgina Þebu í Grikklandi og lagði sömu gátuna fyrir alla vegfarendur, en át alla þá sem ekki fengu ráðið hana. Svo var gátan erfið að hreinlega engir gestir komu langtímum saman til Þebu, þangað til stálgreindur unglingur sem hét Ödipus fékk ráðið hana og er af hon- um mikil saga sem teygir sig alla leið til Sigmundar Freuds. Um þessar mundir voru sýrenur al- gengar í Grikklandi, en þær voru stórir fuglar með kvenhaus. Sumar þeirra sátu fyrir sjómönnum og ærðu þá með fögr- um söng svo þeir sigldu upp á sker, nema hvað Ódysseifur kunni ráð til þess bæði að heyra sýrenusönginn og komast af. Af sýrenum spratt síðar hið fjölmenna hafmeyjakyn. Svo er að nefna sigurgyðjuna, fjall- myndarlega konu með stóra vængi og slóst í för með sigurvegurum. Viktória hét hún með Rómverjum, en Nike hjá Grikkjum. Það er ekki við Nike að sakast að flest nútímafólk heldur að hún sé ekki gyðja heldur íþróttaskór sem heita Næk. Hermes hét sendiboði grísku guð- anna, og hafði vængi bæði á skóm sér og höfði. Síðast en ekki síst er að nefna ást- arguðinn, Eros hjá Grikkjum, Cupid hjá Rómverjum, en hann var smástrákur sem aldrei fullorðnast en flögrar milli fólks og skýtur örvum af boga í hjarta þess svo það verður ástfangið hvert af öðru, oft þvert ofan í alla skynsemi. Þetta skýrir ýmsan samdrátt fólks og hjónabönd sem maður hreinlega botnar ekkert í. Þessir feitlögnu, berrössuðu englar sem minna helst á fljúgandi lifrapylsukeppi og hvar- vetna mæta manni; á kaffikrúsum, erma- lausum bolum, gjafapappír og servíettum eru komnir í þráðbeinan legg frá Erosi. Allar þessar kynjaverur lögðu til efni í englahugmyndina, sem svo þróaðist áfram, fyrst í meðförum Gyðinga sjálfra, en ekki síst hinna ótrúlega hugkvæmu kirkjufeðra og guðfræðinga allt fram á þennan dag. Jafnvel Fjandanum sjálfum hefur ekki verið hlíft við þessari síma- landi þróunarsögu, því þegar hann birtist fyrst í Gamla testamentinu, t.d. í Jobs- bók, er hann í ráðuneyti Drottins í hárri stöðu og minnir meira á nöldurgjarnan og neikvæðan ráðuneytisstjóra en þann glæsilega málsvara illskunnar sem hann síðar varð. Lesendur geta nú valið milli þessara tveggja sköpunarsagna englanna eftir smekk sínum. Verkefni engla – fitlað við Tindastól – Þó Atvinnuleysistryggingasjóður haldi annað er bókstaflega ekkert verklaust í sköpunarverkinu. Einnig englar hafa verk að vinna og atvinnu þeirra má nokkurnveginn draga saman í fjóra flokka. Langflestir englar hafa það að aðal- starfi, að sveima kringum hásæti Drott- ins sísyngjandi lofgjörðir til hans. Sumir spila á strengjahljóðfæri, aðrir blása í lúðra. Þetta gera þeir Drottni til dýrðar og hann hefur gaman af, en þó er sam- komulag um að þeir þagni eins og í kort- er á morgnana meðan Drottinn hlýðir á bænir Ísraelsmanna. Til er vitnisburður manns sem fór í leiðslu upp í sjöunda himinn til að skoða staðinn. Aftur snú- inn til jarðarinnar sagðist honum svo frá, að allir þar uppi hefðu haft sjötíu þús- und höfuð, hvert með sjötíu þúsund munnum, hver munnur með sjötíu þús- und tungum en hver þeirra söng á sjötíu þúsund tungumálum eintóma lofgjörð til Drottins. Með sönnu má segja að órann- sakanlegir eru vegir hans, að hafa gaman af þessu. Annað verk engla er að sendast með skilaboð, en orðið engill merkir eigin- lega sendiboði. Það er komið úr grísku, angelos, og orðstofninn er sá sami í flestum Evrópumálum. Samanburðar- englafræðingar segja, að allir guðir sem eru hátt yfir þegna sína hafnir, þurfi á þannig sendiboðum að halda, því ekki geta þeir sjálfir snattast út um allar jarðir útaf allskonar smáskít, sem þarf að koma á framfæri við mennina. Sumstaðar gegna andar forfeðranna þessu hlutverki. Skilaboð englanna eru stundum góð, eins og til dæmis þegar Gabríel færði Maríu þungann, sem öllum fannst ánægjulegt nema helst Jósep. Stundum eru þetta slæm skilaboð, eins og þegar Mikael tilkynnti Lot að nú ætti að eyða Sódómu með eldi og brennisteini. Sumir flytja huggun og hughreystingu, eins og sá sem kom til að peppa Jesú upp í gras- garðinum Getsemane, einmitt á skírdags- kvöld meðan postularnir sváfu úr sér offyllina eftir síðustu kvöldmáltíðina. Þriðja verkefni engla er að koma vilja Drottins fram í efnisheiminum. Þannig sendi Drottinn Mikael erkiengil eitt sinn til þess að klekkja á Assýringum og hann felldi 185.000 hermenn á einni nóttu, og er ekki vitað til að einn engill hafi komið meiru í verk á jafnstuttum tíma. Annað dæmi má nefna norðan úr Skagafirði. Eitt sinn rak hval undir Tindastóli. Reyk- strendingar og Laxdælingar deildu um hvalinn. Guðhræddir menn gengust fyrir því að Laxdælir sönnuðu með eiði að landið þar sem hvalinn rak væri eign Hvammskirkju í Laxárdal. Laxdælir voru til í það og gengu upp að hvalnum og sóru að jörðin sem þeir stóðu á væri í eigu kirkjunnar. Reykstrendingar voru þá sem nú hrekklausir menn og vöruðu sig ekki á því að Laxdælingar höfðu áður rist torfþökur í túninu á Hvammi og sett í skóna sína, svo tæknilega séð sögðu þeir satt, þó þeir vissu vel að hvalinn hafði rekið á landi Reykjastrendinga. Þetta var sem sagt nokkurn veginn lög- legt en afar siðlaust, enda gramdist Drottni þetta svo að hann sendi engil norður í Skagafjörð. Engillinn fitlaði með sprota við Tindastól ofanverðan og það féll skriða úr fjallinu yfir bæði hvalinn og Laxdælinga. Skriðan heitir Hvalurð og síðan hefur engum verið fært fyrir Tindastól austanverðan nema fuglinum fljúgandi. En það er ærið verk að koma vilja Drottins fram í efnisheiminum, því lengi fram eftir öldum – meðan ekki var búið að finna upp orsakasamhengið og nátt- úrulögmálin – gerðist bókstaflega ekkert í veröldinni nema fyrir ákvörðun Guðs og tilverknað englanna; þeir ýttu sjónum upp á ströndina á flóði og drógu hann út á fjörunni, þeir kveiktu á morgunstjörn- unni, þeir ýttu grösunum upp úr mold- inni, þeir létu naut kefla kýr, þeir létu snjóa og rigna. Fjórða verkefni engla var síðan að vernda lífið. Hver einasta mannssál hefur verndarengil. Sumir guðfræðingar segja aðeins einn, en ég hef séð tölur allt upp í ellefu þúsund á mann, sem er mikill mý- grútur ef satt er. Verndarenglar verja menn fyrir freistingunum sem lævísir púkar leggja fyrir mannkynið, en það er erfitt verk, því oft er eins og það vilji beinlínis hrasa sem oftast. Þá bægja verndarenglar hættum frá mönnum eftir getu og síðast en ekki síst senda þeir á hverju kvöldi skýrslu í gagnabankann mikla sem heitir Lífsins bók um breytni hvers einasta manns þann daginn. Ödipus ræður gátu svinxins.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.