Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Qupperneq 11

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Qupperneq 11
Sjómannablaðið Víkingur – 11 Skipið heitir Juvel, er norskt, og stendur sannarlega undir hinni heldur neikvæðu nafngift að vera verksmiðjutogari en slík skip hafa Íslendingar sannarlega aldrei átt, aðeins þjóðir sem hingað hafa sótt. En að slepptu öllu gamni þá er Juvel án efa dýrasta fiskveiðiskip í heimi en það kostaði Norð- mennina rúman milljarð norskra króna og getur hver sem vill reiknað það yfir í flöktandi gengi íslensku krónunnar. En um Juvel má segja ýkjulaust að skipið er fljótandi efnaverk- smiðja. Um borð er – eða öllu heldur var – einn Íslend- ingur. Stærsta skipið, minnsta kvikindið Íslendingurinn heitir Gunnar Ingi Halldórsson og hefur verið til sjós síðan hann var drengur. Fyrst um borð í Reyni GK-177 þar sem faðir hans, Dóri sterki (Halldór Halldórsson) var skip- stjóri. Eftir að hafa verið á snurvoð í fjöldamörg ár fór Gunnar á frystitogara og var lengst af á Haraldi Kristjánssyni – nú Helga María – og síðan á Pétri Jónssyni. Eftir nám í Danmörku 2005 hefur hann verið til sjós við Afríkustrendur og síðast í Suður- íshafinu um borð í hinu fullkomna, áðurnefnda, norska verksmiðjuskipi, Juvel. Skipið er um 100 metra langt, búið á flottrollsveiðar en þrátt fyrir stærðina er leitun að skipi sem gerir út á jafnsmáa lífveru og Juvel. Sótt er í krill sem er ekkert annað en – furðulegt nokk – áta. Enska orðið krill, upp á latinu, Euphausiacea, er eins og fyrr segir það sem við köllum átu á íslensku, svo það sé nú tuggið upp aftur, jafn ótrúlegt og það hljómar. Vísindamenn áætla að í Suðurhöfum séu um 500 miljónir tonna af átunni sem gerir hana að fjölmennustu dýrategund á jörðinni og jafn- framt að stærsta lífræna massa kúlunnar sem við lifum á, eða um tíu sinnum þyngri en allt mannkyn. Skipið veiðir með stóru flottrolli ekki ósvipað Gloríu en með belg sem er með 6 mm innri möskva sem gerir dráttinn mjög þungan. Oftar en ekki er jöfn veiði og er miðað við að hífa ekki meira en 50 tonn í einu sem gefur um það bil 4-6 tíma vinnslu. Veiðin gæti þó verið miklu meiri þar sem oft er ekki togað lengur en í 15 mínútur. „Ég hef aldrei séð svona lóð eins og þarna niður frá – frá 200 metrum alveg uppá yfirborð er kökkur – alveg eins langt og mælirinn dregur,“ segir Gunnar. Vinnsluferlið, sem Gunnar hafði umsjón með, er flókið en verksmiðjan er mikil völundarsmíð og margbrotin en sem betur fer tölvustýrð að mestu. Krillið er fyrst keyrt í tanka þar sem það er leyst upp með ensímum. Þaðan fer massinn í skilvindu er tekur skelina frá. Áfram fer átan í tanka til að drepa virkni ensímanna og svo aftur í skilvindu þar sem fasta efnið er skilið frá olíu og öðrum vökva. Fasta efnið fer í þurrkara og þaðan í pökkun. Vökvinn fer hins vegar í aðrar skilvindur til frekari vinnslu en tvenns konar olía kemur úr átunni – önnur ótrúlega verðmæt. Meðal aflaverðmæti skipsins í túr á árinu 2011 er um milljarður. Verksmiðjan er síðan hreinsuð á 2-4 daga fresti með lút og brennisteinssýru en um 13 tonn af sýru er um borð. „Okkur finnst það sannast sagna ekkert svakalega spennandi að vita af henni þarna um borð, sérstaklega í vondum veðrum,“ segir Gunnar. Rúm 50 tonn af Krill í pokanum. Krill Gunnar ræðir málin í „control“ herberginu.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.