Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur
Okkar bestu jóla-
og nýárskveðjur
Langir túrar
Útgerð Juvel byrjaði ekki vel enda var um
hreina tilraunastarfsemi að ræða þar sem
svona verksmiðja hafði aldrei áður verið
send á haf út. Skipið var að veiðum í eitt
og hálft ár áður en tókst að skila afla – eða
við ættum frekar að segja afurðum – á
land. En þær eru til manneldis og fara í
frekari vinnslu hjá lyfja- og efnaframleið-
endum sem borga vel fyrir. Svo vel að von-
ast er til að skipið fiski fyrir um milljarð
norskra króna á næsta ári en sem stendur
er skipið í slipp í Uruguay.
Um borð eru um 50 manns frá 15 þjóð-
löndum en skipið er úti í 60 daga í einu
en um viku tekur að sigla á miðin frá
löndunarhöfninni Montevideo í
Uruguay.
„Túrinn gæti tekið skemmri tíma ef
verksmiðjan gengi eins og hún er hönnuð
til – en þá er miðað við verksmiðju í landi
– það gengur bara öðruvísi fyrir sig þegar
maður er 1000 km frá siðmenningu þar
sem sjólag er stundum vont og um langan
veg að sækja varahluti þegar þeir finnast
ekki í skipinu sjálfu,“ segir Gunnar. „Síðar þegar búið er að
skera hnökrana í burtu, má vel búast við að þjónustuskip
sigli með olíu, vistir og mannskap og taki aflann í land –
þannig að skipið geti verið við veiðar og vinnslu eins lengi og
mögulegt er – enda er vinnudagurinn ansi drjúgur þarna um
borð.“
Hvalir og mörgæsir
Gunnar viðurkennir að það er stundum erfitt að vera 14.000
km frá heimaslóðum en á móti kemur að þetta er mikið
ævintýri og þegar hlutaskipti verða sett á – getur ævintýrið
orðið enn stærra. Það er ótrúlegt dýralíf þarna niður frá. Selir
og hvalir eru algjörlega óteljandi. Þegar skyggni er gott og
veiðin mikil eru hvalirnir í þúsundatali og blásturinn frá þeim
skyggir jafnvel á sjóndeildarhringinn og allt í kring vaða
mörgæsir í stórum torfum. Á litlum ísjökum liggja selir á melt-
unni enda æti ríkulegt.
Vissulega freistandi mynd en í bili, að minnsta kosti, finnst
Gunnari nóg komið af ævintýrum á heimshöfunum og hefur
hafið störf sem markaðsfulltrúi hjá Nano-Ice Europe en fyrir-
tækið markaðssetur bakteríu eyðandi efni fyrir uppsjávar-
flot-ann og vinnslur í landi, að ógleymdum nýjum krapavél-
um sem framleiddar eru í Bandaríkjunum, vel að merkja að
íslenskri uppskrift, en þær munu hefja innreið á markað um
áramótin.
Gott ef Víkingurinn á ekki eftir að færa ykkur nánari fréttir
af þessari nýjung og ræða þá öðru sinni við ævintýramanninn
Gunnar Inga Halldórsson.
Gunnar með sverðfisk í Afríku.
Juvel.