Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 20

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 20
20 – Sjómannablaðið Víkingur bollann í borðsalnum. Fylgdi sögunni að hann þyldi það uppnefni ákaflega illa. Hélt hann greinilega af einhverjum ástæðum, að ég unglingurinn væri að storka honum, sem var heldur betur ekki. Eftir að hafa verið að veiðum í nokkr- ar vikur var haldið til Færeyingahafnar til þess að taka þar olíu og kost. Á staðn- um var ein verslun, sem rekin var af fyrirtæki í eigu Norðmanna, Dana og Færeyinga og hét eftir fyrstu stöfunum í nafni þessara þjóða, Nordafar. Þetta var svona ekta krambúð miðuð við þarfir sjómanna og þeirra sem unnu þarna í landi. Ekkert áfengt var þarna á boðstól- um, sem sumum um borð, sem flokkaðir voru blautir, fannst það ótækt með öllu. Urðu því þeir hinir sömu að reyna að bjarga sér um lífsvökvann með öðrum leiðum. Fórnaði minni hagsmunum fyrir meiri Ekki voru það eingöngu íslenzkir togar- ar, sem komu þangað, heldur einnig þýzkir og lá einn þeirra utan á Þorsteini Ingólfs. Einhverjir fóru þangað um borð til að kanna stöðu mála, en menn þóttust vita, að þar væri áfengi að hafa, sem reyndist rétt vera. Kom í ljós að þeir þýzku voru tilbúnir að skipta á þremur brennivínsflöskum og nýjum klofstígvél- um. Einn skipsfélaga minna, sem kall- aður var Bóbó og var all blautur á þess- um tíma, kom að máli við mig og spurði, hvort ég væri ekki tilbúinn að taka út í mínu nafni stígvél hjá 1. stýrimanni, sem hann skyldi greiða mér til baka, þegar í land væri komið eftir túrinn. Féllst ég á það. Tíðkaðist það, a.m.k í saltfisktúrum, að um borð væru til vinnuvettlingar, stakkar, stígvél o.fl, sem hægt var að fá upp á krít hjá 1. stýrimanni. Kom það sér vel fyrir marga, ekki sízt þá, sem voru sjanghæjaðir um borð allslausir, sem var reyndar var tilvikið í þessum túr varðandi a.m.k einn skipsfélagann. Staðan var sem sé þessi. Fyrsti stýri- maður vildi ekki láta Bóbó fá stígvél, þar sem hann þóttist vita fyrir víst og það alveg með réttu, til hvers kaupin voru ætluð. Aftur á móti hafnaði hann ekki beiðni minni, enda þótt því væri ekki leynt hver fengi þau og í hvaða skyni kaup mín á stígvélunum ættu sér stað. Ekki beið Bóbó boðanna komin með stígvélin í hendur og fékk sínar þrjár brennivínsflöskur hjá Þjóðverjunum. Með í huga gamla slagorðið, með bokk- una í beltinu, og til þess að taka sig nógu vel út við komu sína til baka, þá raðaði hann flöskunum í buxnastrenginn, enda vissi hann að beðið væri eftir sér með óþreyju. Ekki tókst þó betur til en svo, að þegar hann ætlaði að stökkva milli hvalbaka skipanna, féll hann lóðrétt í sjóinn og hvarf mönnum sjónum. Mun þar hafa spilað inn í, að Bóbó hafði mis- reiknað fjarlægðina og þyngslin af flösk- Fundir milli hátíða Akureyri: Miðvikudaginn 28. desember kl. 14.00 á Strikinu, efstu hæð að Skipagötu 14. Reykjavík: Föstudaginn 30. desember kl. 14.00 á Grand Hotel Reykjavík að Háteigi B-sal á 4. hæð. Félagar fjölmennið! Með bestu jólakveðjum. Stjórnin Skipstjórnarmenn í Félagi skipstjórnarmanna Pétur Halldórsson RE 207 í Færeyingahöfn. Ljósmynd: Guðmundur Daníelsson. Staðið í aðgerð. Ljósmynd: Guðmundur Daníelsson.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.