Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Side 22
22 – Sjómannablaðið Víkingur
Á leiðinni heim af Grænlandsmiðum
var mjög gengið á kostinn og ekki allt
kræsilegt, sem mönnum stóð orðið til
boða og í raun ekki mannamatur. Eftir
að ég hafði lokið erindum mínum á
kontórnum, fór ég niður að skipi til að
ná í eitthvað af dótinu mínu. Var mér þá
orðið mjög illt í maganum og ljóst að
mikill „sjór var kominn í afturlestina,“ ef
svo mætti orða það. Stóð það á endum,
að mér rétt tókst að skjótast inn á
klósettið aftur á, áður en flóðbylgjan hóf.
Hrósaði ég happi en ekki lengi, því að ég
sá að það var enginn klósettpappír til,
engin blöð, alls ekkert brúklegt til nauð-
synlegra þrifaverka. Neyðarbrauðið var
að seilast í veskið og nota peningaseðl-
ana, sem ég hafði fengið góðan slatta af
hjá gjaldkeranum. Um annað var bara
ekki að ræða. Vafalaust hef ég setið
þarna með tárin streymandi niður kinn-
arnar, veltandi hverjum peningaseðli á
milli handanna, eins og fátæklingur,
ákallandi himnaföður, að þessari orra-
hríð færi senn að ljúka, enda farin að
missa heyrn á öðru eyranu í látunum.
Stóð það á endum að síðasti peninga-
seðillinn dugði til að klára verkið. Veit
það sem allt veit, að aldrei hef ég fyrr
eða síðar gernýtt peningana mína, eins
og þarna. Á þessum aldri var maður eðli-
lega ekki kominn með ávísanahefti.
Maður getur nú líka velt því fyrir sér
eftir á, hvernig staðan hefði verið, hefðu
greiðslukortin verið komin til sögunnar
og er ég þá ekki í í þessu samhengi að
gera greinarmun á debetkortum og
kreditkortum.
Það var ekki upplitsdjarfur maður,
sem stóð þarna á dekkinu, þegar allt
var yfirstaðið. Tilhugsunin um það, að
fara á klósettið með fullar hendur fjár og
koma svo aftur út skítblankur var nánast
óbærileg. Í fyrsta skipti og það eina hafði
ég skilning á þeim, sem drukku út hýr-
una. Það var þó skárra, en þetta helvíti
að skeina af sér hýruna.
Seinna reyndi ég þó að sjá jákvæðu
hliðina á þessu og velti því fyrir mér,
hvort maður gæti ekki notað sér þessa
upplifun í samskiptum við hitt kynið sér
til framdráttar í ástarmálunum. Maður
hafði heyrði um manninn á barnum í
Klúbbnum, sem skrifaði háa fjárhæð á
ávísunareyðublað og brenndi það síðan
fyrir framan dömurnar, sem göptu af
aðdáun yfir ríkidæmi mannsins. Eftir
það átti hann þær með húð og hári.
Hugmynd mín stoppaði þarna. Ekki gat
ég í mínu tilviki verið með sýningu á
meintri auðlegð minni. Ekki færi ég að
leysa niður um mig, draga upp peninga-
seðil o.s.frv. Maður bara sá fyrir sér
blaðafyrirsagnirnar næstu daga á eftir
hefði maður gleymt sér augnablik vegna
greddu. Það eina sem maður gat gert var
að öfunda manninn með ávísunareyðu-
blaðið. Reyndar veit ég ekki um neinn,
sem hefur vaðið svo í peningum, að
hann hafi skeint sér á þeim. Ekki einu
sinni útrásarvíkingarnir. Vitið þið
kannski um einhvern? Það er ekki að
spyrja að því, það er alltaf sama keppnis-
skapið í manni!
Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga
Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
5
60
08
0
8/
11
fær í flestan sjó
Þjónustum allar tegundir af skipskistum
og sjúkrakössum í farartæki af öllu tagi.
Mætum á staðinn ef þess er óskað.
Snögg og góð þjónusta.
Komdu við í næstu Lyfju og fáðu
nánari upplýsingar eða hafðu
samband í síma 555 2306.
– Lifið heil