Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 50

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Blaðsíða 50
50 – Sjómannablaðið Víkingur Hér skal getið þriggja bóka er koma út nú um jólin. Fyrst ber að telja 100 ára Sögu Fiskifélags Íslands, Undir straumhvörfum, sem þeir skrifa Hjörtur Gíslason, er um langt árabil sá um sjávarútvegsmálin í Morgunblaðinu af mikilli prýði, og Jón Hjaltason, ritstjóri vor, en hvort það eru endilega meðmæli með bókinni verða menn að reyna á eigin lestrar- skinni. Bókaormurinn lofar engu! Að slepptri allri sölu-skrúð-mælgi má fullyrða að í áratugi var nánast ekkert framkvæmt í sjávarútvegi landsmanna án þess Fiskifélagið hefði ekki eitthvað til málanna að leggja. Til þess var beinlínis ætlast. Stórt sem smátt kom inn á borð félagsins, jafnt landhelgismálin sem sker handa varnarliðinu að skjóta á. Sjálft kvótakerfið hefði ekki orðið að veruleika án félagsins. Saga Fiskifélagsins er því einfaldlega grundvallarrit – ýkjulaust – og skyldulesning allra sem áhuga hafa á sjávarútvegi, hvað þá ef þeir eiga einnig hagsmuni að verja í greininni. Svo má ekki gleyma öllum ljósmyndunum er prýða bókina, mönnum til skemmtunar og fróðleiks. Dauðinn í Dumbshafi er eftir Magnús Þór Hafsteinsson. Sannar- lega mögnuð bók um íshafsskipa- lestirnar og sjóhernaðinn í Norð- ur-Íshafi 1940 til 1943. Og ítarleg, á fimmta hundrað síður. Tveir Ís- lendingar tóku þátt í þessum kannski áhættusömustu sigling- um sögunnar. Magnús Þór náði að ræða við báða og þess sér svo sannarlega stað í þessari stór- fróðlegu bók sem bókaormur- inn reyndi að spara sér með þeim ásetningi að gæða sér á yfir hátíðarnar. En freistingin varð of stór og spurt er; verður bókaormi legið á hálsi fyrir fall þegar við blasa kaflar eins og, Hrakfarir og dauði gullskips, Helför um hásumar og Mesta sjóslys Íslandssögunnar. Þá halda bókaormi engin bönd og hann hefur ekki enn orðið fyrir vonbrigðum með þessa stórfróðlegu bók Magnúsar Þórs. Upp á líf og dauða eru þrír þættir af sjónum. Já, já, bókaormurinn veit, þið kannist við efnið en hvað um alla hina sem ekki fá Víkinginn (sem eru allt of margir)? Og er ekki líka gaman að eiga þessa áhrifamiklu þætti í sérstöku riti? Og allar ljós- myndirnar? Jú, bókaormurinn er á því. En áfram um þættina. Sjá fyrsti segir af Nýfundnalandsveðrinu 1959 þegar togarinn Júlí fórst. Harðbakur er í brennipunkti frá- sagnarinnar en höfundurinn, Jón Hjaltason (já, aftur ritstjóri vor, bókaormurinn trúir því helst að rit- stjórinn sé orðinn athyglissjúkur), byggir á viðtölum við sjó- mennina er voru um borð. Þá skrifar séra Sigurður Ægisson á Siglufirði um hinstu sjó- ferð Elliða. Sannarlega átakanleg frásögn en eins og þið munið komust ekki allir af en björgun hinna var sannarlega lyginni líkust. Svo er það aprílveðrið 1963 er kostaði 16 sjómenn lífið. Hér er hið áhrifamikla viðtal Júlíusar Kristjánssonar, netagerðar- manns á Dalvík, við Gylfa Björnsson. Bókaormurinn veit að þetta er klisjukennt en hann fullyrðir að um ræði óvenju hrein- skilið viðtal. Það segir sína sögu að eftir þennan örlagaríka apríldag átti Gylfi í miklum erfiðleikum með sjálfan sig og á endanum lét hann af allri sjómennsku. Frá þessu segir opin- skátt í viðtalinu. Styrkir brjósk og bein HAFKALK www.hafkalk.is Virðist draga úr liðverkjum vegna slitgigtar BÓKAORMURINN Hjörtur Gíslason Jón Hjaltason Völuspá útgáfa Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andl tið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum ndlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Á eftir baksíðutexta, en látnum andlitið sitja fyrir. Undir straum hvörfum Saga F isk ifélags Íslan d s í h u n d rað ár 1911 – 2011 Hjörtur Gíslason - Jón Hjaltason Saga Fiskifélags Íslands í hundrað ár 1911 – 2011 Undir straumhvörfum Sigurður Ægisson - Júlíus Kristjánsson - Jón Hjaltason Harðbakur EA í Nýfundnalandsveðrinu 1959 Elliði SI ferst - Páskaveðrið 1963 á Eyjafirði Upp á líf og dauða
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.