Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 54

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 54
54 – Sjómannablaðið Víkingur plaggi en hvað gerðist svo. Ráðherrann lagði fram frumvarp sem virtist undir- strika að hann hefði varla haft fyrir því að opna plaggið frá sáttanefndinni, hvað þá að lesa það. Sævari varð tíðrætt um þetta vinnulag og þyrluvonir sínar en vék síðan að þriðja málefninu, verðmyndun á sjávar- fangi sem hann sagði í þokkalegu standi hvað varðaði fjórar fisktegundir en óásættanlegt þegar litið væri til annarra. Hvaða firra væri það til dæmis að kaup- verð uppsjávaraflans væri einhliða ákveðið af kaupendum? Og afleiðingin? Ætli mætti ekki best dæma um hana með því að fara til Færeyja eða Noregs þar sem verksmiðjurnar greiddu helm- ingi hærra verð fyrir sama afla. „Nei, þetta getur ekki gengið svona áfram,“ var niðurstaða Sævars. * Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda, var ómyrkur í máli. Góðu fréttirnar eru þær, sagði hann, að í vist- kerfi sjávarútvegs á Íslandi vinna allir vel saman. Þó með einni mjög alvarlegri undantekningu. Sá sem ætti að fara á undan, brjóta ísinn og marka leiðina, er genginn úr skaftinu. Sjálf ríkisstjórnin og sjávarútvegsráðherrann hafa skorist úr leik og eru – tæpitungulaust – fjarri allri samvinnu við greinina. Þetta gerir okkur ákaflega erfitt um vik, vægast sagt. Stóra frumvarpið í vor fékk stóran mínus hjá öllum – enda „skelfileg horror lesn- ing“ – og núna berast fréttir af nákvæm- lega sömu vinnubrögðum. Höfum hugfast að ef við sáum gulrót- um, fáum við upp gulrætur. Allt þetta vesen og öll þessi orrahríð er þó að mati Eggert algerlega óþörf. Hann benti á að sáttanefndin hefði verið einhuga. Staðreyndin er nefnilega sú að mikil sátt ríkir um markmiðin sem við verðum að setja okkur og þá hlýtur að vera einfalt að leysa málið, ályktaði Eggert. Ríkisstjórnin sjálf hefur sett fram þessi markmið sem lítill ágreiningur er um. Þessu næst vatt Eggert sér að nánari umfjöllun um markmiðin; verndun fiskistofna, hagkvæmni veiða, atvinnu- sköpun, byggðamál, sátt um greinina, fyrningu og nýliðun sem Eggert sagði reyndar ekki að finna í stjórnarsáttmál- anum en væri engu að síður mikið í um- ræðunni. Við skulum staldra ögn við tvennt er Eggert velti fyrir sér í þessari ítarlegu og um margt merkilegu umfjöllun. Hann spurði: „Hafa einhverjir hag af ósætti í greininni?“ Sjálfur svaraði hann ekki spurningunni beint en sagði: „Mér dettur það í hug því okkur sem í greininni störfum er umhugað um að starfa í sátt.“ Í framhaldinu tók Eggert dæmi af skötuselsmálinu. Sáttanefndin hefði setið að störfum þegar ráðherrann þóttist skera á skötuselshnútinn með þeim orð- um að lausnin hefði ekki fordæmisgildi en hann „sagði ósatt,“ fullyrti Eggert. Síðar, við lausn annarra mála, vísaði ráð- herrann í skötuselsmálið og hafði sem skjöld gegn gagnrýnisröddum. Til að bæta gráu ofan á svart gengur ríkisstjórnin þvert gegn markmiðum sín- um. Lítum á strandveiðarnar. Ríkis- stjórnin vill gefa þær frjálsar. Þarna fá frístundaveiðimenn kvóta, sumir þeirra hafa meira að segja selt hann frá sér áður og vilja nú inn í kerfið aftur. Hvernig kemur þetta heim og saman við mark- miðin um vernd fiskistofna, hagkvæmni veiða og atvinnusköpun sem hlýtur að byggja á raunverulegri verðmætasköpun, ef atvinnusköpunin á að vera eitthvað annað en tilfærsla innan kerfisins? Nei, nú er mál til komið að ríkis- stjórnin komi úr helli sínum og verði þátttakandi í samvinnu allra annarra í greininni. Samvinna er og verður mál málanna. * Eftir ræðu Eggerts spunnust nokkrar umræður. Árni forseti gat ekki á sér setið að spyrja forstjórann hvort hann kynni ný ráð til að verðmeta uppsjávarfisk? Eggert kvaðst ekki vera með neina töfralausn á vandanum. Grandi miðaði við afurðaverðmæti, því hefði megin- áherslan legið á að auka verðmæti af- urðanna. Harald Holsvik velti fyrir sér hvort ekki ætti að efla skyndilokunarkerfið svo taka mætti þann kaleik frá Hafró að ákvarða aflamagn til ársins. Í því sambandi sló Harald fram þeirri hugsun sinni að miklu minna álag væri nú á miðum landsins en forðum, snemma á 7. áratugnum þegar hann var að hefja sjómennsku, en þá voru inn- lendir og erlendir flotar allt í kringum landið. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafró, sté nú í pontu og sagðist hafa tafist á fundi með erindrekum Marks og Spencer. Þeir hefðu viljað kynna sér stöðu mála á Íslandi. Hvort veiðarnar væru sjálfbærar? Er hlustað á vísinda- menn? Hvað um langtímanýtingarsjón- armið? Umhverfissjónarmið skipta neyt- andann sífellt meira máli og stóru verslunarkeðjurnar taka vaxandi mið af þeim. Þess vegna er það stækkandi þátt- ur í starfi okkar að svara fyrir þessa þætti. Vilhjálmur Sigurðsson kvaðst aldrei hafa alið með sér jafn miklar áhyggjur og nú. Ekki væri hægt að hirða allt og koma með að landi. Það væri heldur ekki eins og það yrði ónýtt sem sjómenn hentu í sjóinn. Þvert á móti, fiskurinn gerði sér úrganginn að góðu og fúlsaði ekki við til dæmis lifur. Eggert brást við orðum Vilhjálms. Menn hefðu starað sig blinda á hámörk- un aflaverðmætis. Það yrði afar erfitt að hirða alla lifur og fyrir því mætti færa góð rök að lifrar-ákvæðið gæti hreinlega skaðað aðal-afurðina þar sem menn hefðu fyrir vikið minni tíma til að sinna flökunum. * Næstur ræðupúlt var Ásgrímur L. Ás- grímsson, yfirmaður vaktstöðva siglinga hjá Landhelgisgæslunni. Ásgrímur flutti fróðlegt erindi um starfsemi Gæslunnar frá 2008 með sérstakri áherslu á skip og flugvélar. Hann útskýrði samninga Gæsl- unnar við Landamærastofnun Evrópu- bandalagsins (Frontex) og við ESB um fiskveiðieftirlit. Samið var 2010 við Frontex um að senda Ægi í Miðjarðar- hafið. Samningurinn gaf ekki beinar tekjur en Gæslan bar engan kostnað af Feðgarnir og lögmennirnir, Jónas Haraldsson og Jónas Þór Jónasson. Lengst til hægri er Guðjón Einarsson, einn fyrsti sjónvarpsfréttamaður Rúv og núverandi ritstjóri Fiskifrétta.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.