Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2011, Síða 58
skipinu eða áhöfn þann tíma sem það
var í eftirliti ytra, auk þess sem Frontex
keypti tæki í skipið sem einnig hafa nýst
hér við land.
Í byrjun yfirstandandi árs töldum við
að Þór kæmi í vor, útskýrir Ásgrímur,
en sáum engin ráð til að halda tveimur
skipum úti við Íslandsstrendur. Svo æxl-
aðist það þannig að við leigðum Ægi til
Frontex í maí og fram á haust. TF Sif fór
til þeirra líka en Týr var í fiskveiðieftirliti
á vegum ESB, í Smugunni, á Flæmska
hattinum og á Miðjarðarhafi. Þetta gaf
tekjur og við skulum ekki gleyma því að
Ægir tók um borð hátt í 500 manns, þar
af var um að ræða hreina björgun hvorki
fleiri né færri en 250 manns.
Þá gerðist það í ársbyrjun 2011 að
Varnarmálaskrifstofan sameinaðist
Gæslunni sem hafði mikil og góð áhrif á
báðar stofnanir. Samlegðaráhrif voru
mikil. Starfsmannafjöldinn varð líka
töluverður eða um 250 manns nú um
mitt ár.
Framtíðarhorfur eru alls ekki svo
dökkar, sagði Ásgrímur. Leigubissnessinn
gaf tekjur í ár þannig að Gæslan á fyrir
dýrri skoðun er TF Líf þarf í. Þór verður
við Ísland allt næsta ár og góðar líkur á
að við fáum þriðju þyrluna. Týr verður
hins vegar á næsta ári leigður í að
minnsta kosti 2 mánuði, Ægir í þrjá og
Líf einnig.
*
Haraldur Einarsson, frá Hafrannsókna-
stofnun, var næsti ræðumaður. Honum
varð tíðrætt um nýja tækni sem stofn-
unin hefur á undanförnum árum verið
að taka í þjónustu sína. Aðallega neðan-
sjávar myndavélar. Þá benti hann fundar-
mönnum á sömu staðreynd og Jóhann
Sigurjónsson hafði minnst á áður, nefni-
lega vaxandi umfang fyrirspurna er
Hafró þarf að svara og varða háttalag
Íslendinga við veiðarnar. Hversu mikið
tapast af netum á ári? Hvað fer mikið af
fuglum niður með línum?
Um þetta höfum við engar upplýsing-
ar, og reyndar fleira sem spurt er um,
viðurkennir Haraldur fúslega, sem er
verra en að geta þó að minnta kosti sagst
vera á slóðinni. Við erum í samkeppni
um að selja fiskinn og þessi atriði skipta
máli, staðreyndin er sú að umhverfis-
sóðar eiga sífellt erfiðara uppdráttar.
Markaðurinn heimtar með hækkandi
raust umhverfisstefnu og sjálfbærar
veiðar.
*
Seinastur gestaræðumanna var Árni Guð-
mundsson er fjallaði um lífeyrissjóðinn
Gildi og framtíðarhorfur. Markaðurinn
er heldur að lifna, taldi Árni, en staða
sjóðsins er óviss. Við eigum eftir að fá
gjaldmiðlasamninga á hreint en holt og
bolt má segja að lífeyrissjóðirnir hafi
tapað að meðaltali 25% eigna sinna í
hruninu. Vaxandi fjöldi öryrkja stefnir í
að verða þungur baggi á sjóðnum en sem
dæmi má nefna að 10 nýir öryrkjar hafa
bæst á skrá hjá okkur mánaðarlega það
sem af er ári.
Nokkur umræða varð um öryrkjana
en tvö helstu mein þeirra eru stoðkerfis-
sjúkdómar og veiklun á geði. Í þessu
sambandi lagði Harald Holsvik afar at-
hyglisverða hugsun til umræðunnar –
reyndar ekki í fyrsta skiptið sem hann
gerir það enda greindur maður og at-
hugull.
Fyrir hvaða örorku eiga lífeyrissjóðir
að greiða? spurði Harald. Vitaskuld ef
menn slasast og bera þess ekki bætur,
um það þurfum við ekki að deila, en
hvað um þessa sem hér hafa verið nefnd-
ir og eru algengastir meðal örorkuþega,
geðsjúkdómana og þessa almennu stoð-
kerfissjúkdóma? Hljóta þessir endilega
að vera á ábyrgð lífeyrissjóðanna en ekki
ríkisins? Hefur verið látið á það reyna?
spurði Harald að lokum.
Við bíðum svars.
*
Í lokin ræddu þeir Árni forseti og Ægir
Steinn um kjaramál. Engin forsenda til
að hittast, sagði Árni. Allir aðilar sam-
mála um það í þeirri óvissu sem nú ríkir.
Á endanum gæti jafnvel farið svo að nú-
verandi stjórnarherrum tækist að kippa
stoðunum undan því launakerfi sem sjó-
menn hafa búið við meira og minna
síðan róðrar hófust. Óvissan hefur aldrei
verið meiri.
Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda. Ef myndin prentast vel sést að á tjaldið hefur Eggert
varpað fullyrðingunni: Sömu markmið – Sundraðar leiðir.
Sigrún Arna Aradóttir er nú kominn í stað Olgu
sem nú nýtur hins virðulega aldurs og vonandi
góðra kjara hjá lífeyrissjóði.
Félag skipstjórnarmanna
óskar félagsmönnum sínum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári. – Þökkum samstarfið á líðandi ári.
Félag skipstjórnarmanna
Með fagmennsku og færni í fyrirrúmi
Grensásvegi 13 - 108 Reykjavík
Skipagötu 14 - 600 Akureyri
www.officer.is og www.skipstjorn.is
officer@officer.is og skipstjorn@skipstjorn.is