Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Qupperneq 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Qupperneq 10
Smiðjuvegi 66 • 200 Kópavogi Sími 580 5800 • www.landvelar.is Slönguhjól og kefli Fjaður inndraganleg - plast, stál eða ryðfrí umgjörð Ýmsar slönguútfærslur fyrir vatn, loft og olíur Skipstjórnarmenn í Félagi skipstjórnarmanna Fundur í Félagi skipstjórnarmanna verður haldinn að Strikinu, Skipagötu 14. 5. hæð, fimmtudaginn 27. desember kl. 14.00 Farið verður yfir stöðu kjaramála Léttar veitingar. Félagsmenn hvattir til að mæta. Stjórnin. Fundur í Félagi skipstjórnarmanna verður haldinn að Háteigi A, sal á 4. hæð Grand Hótels, Reykjavík föstudaginn 28. desember kl. 14.00. Kjaramálin rædd. Léttar veitingar. Félagsmenn hvattir til að mæta. Stjórnin. Helgi Laxdal Á meðan stöngullinn stendur Í Höfðahverfi hafa verið ræktaðar kartöflur svo lengi sem ég man, fyrst nánast eingöngu til eigin brúks en með árunum hefur ræktunin aukist og orðið stór hluti af lifibrauði margra. Sömuleiðis færðist það í vöxt með árunum að börn og hjú bænda áttu sína eigin garða og seldu uppskeruna í kaupfélagið og höfðu af því einhverjar tekjur. Hér var þó galli á gjöf Njarðar þar sem það henti stundum að það komu næturfrost, síðari hluta júlí, sem ollu því að kartöflugrasið féll með þeim afleiðingum að kartöflurnar hættu að spretta. Þetta gerðist í júlí 1963. Þá var Sverrir Guðmundsson á Lómatjörn orðinn ekkjumaður með þrjár dætur og hafði ráðið til sín sem ráðs- konu, Steinunni Bjarnadóttur, landsfræga leik- konu sem skvaldrað var um í sveitinni enda talið að hennar hlutverk á Lómatjörn væri öllu um- fangsmeira en almennt gerist um ráðskonustörf. Um leið og ljóst var að kartöflugrösin höfðu fallið á flestum bæjum í sveitinni byrjuðu bænd- urnir að ræða málið í sveitasímanum en sveita- síminn var eins og margir þekkja þannig úr garði gerður að það gátu allir hlustað á alla sem í hann töluðu og að mínu mati fyrsti fjöl- miðillinn í sveitum landsins. Eins og alkunna er þá eru bændur þekktir fyrir að barma sér ef á móti blæs og á því var engin undantekning að þessu sinni. Flestir töldu að nú lægi það fyrir að þetta árið yrði engin uppskera, ekkert nema tap á kartöfluræktinni. Steinunn, eins og önnur hjú þessa tíma, átti sinn einkagarð á Lómatjörn og hún eins og aðrir kartöfluræktendur í sveitinni lét í sér heyra, en var bjartsýnni en hinir. Steinunn sagði ástandið nú ekki eins slæmt hjá sér og hinum, þar sem stöngullinn stæði nú enn hjá sér. Af því tilefni setti faðir minn, Magnús Snæbjarnarson á Syðri Grund, saman þessa vísu: Þótt kali um kartöflulendur og kreppi að íslenskum konum. Á meðan stöngullinn stendur á Steinunn ávöxt í vonum. 10 – Sjómannablaðið Víkingur

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.