Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Side 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Side 12
12 – Sjómannablaðið Víkingur Þessi túr var farinn að mig minnir í mars 1960 eða ´61. Ég man þetta ekki alveg fyrir víst en þetta var þó áður en Surtsey reis úr sjó. Nánast hringinn um landið Við byrjuðum veiðar fyrir norðan Kollnál. Þar var þá fyrir Sig- urfarinn frá Akranesi en Þórður Guðjónsson var með hann. Við vorum góðkunningjar, bekkjarfélagar úr Stýrimannaskólanum. Í samvinnu við Þórð dró ég nálægt trossunum hans. Það kom fiskinum á hreyfingu og jókst aflinn hjá honum og við fengum líka góðan afla. Þegar við vorum búnir að vera þarna í tæpa tvo sólarhringa og búnir að fá um það bil 100 tonn af góðum þorski byrjaði að bræla af suðvestri svo ekki var lengur tog- veður. Á sama tíma var einn kódafélagi okkar, Hafliði, að fá mokafla suðaustur af Grímsey. Ég ákvað að nota bræluna og kippa til Hafliða. Þegar komið var á Strandagrunn var aflinn orðinn tregur hjá Hafliða svo ég hafði eitt hol á Strandagrunni en hafði ekki annað upp úr krafsinu en einn poka af grásleppu. Það gerði lítið gagn því að tjallinn át ekki grásleppu en við áttum að landa í Bretlandi. Eftir holið var haldið áfram austur með Norð- urlandi. Rétt þegar við vorum komnir í Reykjafjarðarál skall á norðan stormur með miklu frosti. Áfram héldum við. Þegar við komumst loks í var við Grímsey var dallurinn orðinn einn ísklumpur. Þarna lágum við í sex klukkutíma við að berja ísinn af skipinu. Síðan var haldið áfram austur með Norðurlandi og enn hlóðst ísinn á skipið enda sama norðan rokið og frostið. Þegar við komum fyrir Langanes var komið lens og þá var hægt að berja ísinn af án þess að stoppa. Þegar við komum suð- ur í Lónsdýpi var enn sami norðan stormur en munurinn sá að við vorum komnir í landvar. Gallinn var hins vegar sá að þarna var engan fisk að hafa. Þá var haldið áfram vestur með landi og ekki stoppað fyrr en við vorum komnir suðvestur af Geirfuglaskeri á svipuðum stað og Surtsey reis úr hafi. Þarna voru hörsl (harðir blettir) og þar fengum við góðan afla af stórri ýsu. Örlög fyrsta gúmmíbjörgunarbáts íslenska flotans Níu dögum frá því að við fórum að heiman lögðum við af stað til Englands með viðkomu í Vestmannaeyjum. Þar komu um borð þrír Englendingar sem farþegar. Yfir hafið gekk allt tíðindalaust en þegar við áttum um 10 sjómílur í Spurn-vitaskipið ákvað ég að hafa bátaæfingu. Það stóð svoleiðis á flóði að það var tími til þess. Eftir Nýfundna- landsveðrið var settur einn plastbátur á Mánann og stór bóma á bátaþilfarið til þess að sjósetja hann. Nú gerðu menn sig klára en veðrið gat varla verið betra, nær logn en dálítil undiralda. Bretarnir fylgdust spenntir með. Nú er báturinn hífður upp úr festingum og gekk vel. Næst er bómunni snúið út til stjórnborða og gekk það líka vel. Báturinn HDS 10/20-4 M 30-200 bör 500-1000 ltr/klst HDS 8/17-4 M 30-170 bör 400-800 ltr/klst HDS 5/11 U/UX 110 bör 450 ltr/klst 1x230 volt Gufudælur Aflmiklir vinnuþjarkar Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · Fax 568-0215 · www.rafver.is K Ä R C H E R S Ö L U M E N N F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð Texti og myndir: Ragnar Franzson með Þorkeli Mána Þorkell Máni á leið úr Reykjavíkurhöfn. Staðið í aðgerð um borð í Þorkeli Mána.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.