Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 44

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 44
44 – Sjómannablaðið Víkingur Stungu af Saksóknari Frakklands hefur farið fram á 4-5 ára fangelsisdóm yfir skipstjóra og yfirstýrimanni tyrknesks flutningaskips, Ocean Jasper, sem í ágúst 2007 sigldi niður franskt fiskiskip. Auk þess að dæma þá til fangelsisvistar fer saksóknarinn fram á að þeim verði óheimilt að starfa um borð í stærri skipum en 500 tonn- um. Hvorugur mannanna mættu til fyrirtöku málsins en þeir eru báðir frá Azerbaijan en gefin hefur verið út alþjóðleg hand- tökuskipun á hendur þeim. Skip þeirra, sem er 2.800 tonn að stærð, var á siglingu 60 sjómílum norður af Ushant á Brittany skaganum þegar það sigldi á fiskiskipið Sokalique sem sökk og fórst skipstjóri þess. Þeir skipverjar sem komust af kölluðu á neyðartíðnum eftir aðstoð og skutu upp neyðarflugeldum en engin viðbrögð urðu um borð í flutningaskipinu sem hvarf á braut. Eigandi skipsins var einnig ákærður en saksóknarinn ákvað þó að draga hana til baka en óskaði eftir að hann hlyti sekt upp á 300 þúsund evrur. Ekki er búist við að dómur falli í málinu fyrr en 22. janúar á næsta ári. Argentínumenn í vanda Komin er upp sérstök milliríkjadeila milli Ghana og Argentínu sem litlar líkur eru á að lausn finnist á á næstunni. Flaggskip argentínska flotans, seglskipið Libertad, kom í kurteisisheim- sókn til Tama í Ghana í byrjun október s.l. en um borð voru á fjórða hundrað sjóliðar og lærlingar. Áttu skipverjarnir ekki von á öðru en að eiga þar ánægjulegar stundir en brátt dró ský fyrir sólu. Dómari í Ghana hafði fengið beiðni um kyrrsetningu skipsins vegna skulda argentínska ríkisins við lánasjóð sem fjár- magnaður var af Bandaríkjamanninum Paul Singer sem er einn af aðalstyrktaraðilum Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Í meira en áratug höfðu Singer og aðrir lánadrottnar hundelt argentínsk stjórnvöld í dómsölum um allan heim til að inn- heimta skuldirnar en án árangurs. Búðið var að freista þess að kyrrsetja Libertad í Bremerhaven árið 2002 en án árangurs. Þá var einnig reynt nokkrum sinnum að kyrrsetja forsetaflugvél landsins þegar hún lenti í öðrum löndum og sama var um flugvélar ríkisflugfélagsins Aerolineas Argentinas. Argentínsk stjórnvöld mótmæltu kyrrsetningu Ghanadómstólsins á þeim forsendum að um væri að ræða herskip er hefði komið til landsins í hernaðarlegum tilgangi en samþykktir Sameinu þjóð- anna vernda slík skip fyrir kyrrsetningum. Dómstóllinn hafnaði þessum rökum ásamt því að benda á að þarlend lög vernduðu ekki hernaðartól. Var niðurstaða þeirra að skipið skyldi kyrrsett þar til argentínsk stjórnvöld virtu niðurstöður bandarískra dóm- stóla um greiðslu 1,6 milljarða dollara til lánasjóðsins. Dómar- inn benti á að unnt yrði að leysa skipið úr kyrrsetningu gegn 20 milljón dollara tryggingu. Ekki eru miklar líkur á því að skipi eigi eftir að halda úr höfn undir fána Argentínu ef marka má yfirlýsingar forseta landsins, frú Cristina Kirchner, sem segist ekki ætla að borga krónu til að leysa málið og hefur hafnað öll- um samningaviðræðum við lánadrottna sem þröngvuðu dóma- ranum til kyrrsetningarinnar. Því er við að bæta að forseti lands- ins nýtur lítilla vinsælda fyrir þetta sem og aðra stjórnarhætti sína. Um borð í skipinu voru 320 menn og konur auk 15 Síle- búa sem nú hafa því sem næst öll haldið heimleiðis en aðeins er eftir um borð lágmarksáhöfn til að sigla skipinu burtu ef það einhverra hluta vegna losna. Á hinn bóginn er skipið farið að angra hafnaryfirvöld í Tema sem tapa hafnargjöldum daglega á því sem og því bryggjuplássi sem skipið tekur. Handtóku rússneska sjómenn Samskipti Rússlands og Nígeríu hafa versnað hratt að undan- förnu sem rekja má til handtöku fimmtán rússneskra sjómanna sem og ráns á öðrum 15 sjómönnum á innan við viku í október s.l. Fyrra atvikið átti sér stað í Lagos en öryggisskip fyrir olíu- borpalla, Myre Seadiver, kom þar til hafnar og fundu hermenn við leit í skipinu 14 AK-47 vélbyssur, 22 skammbyssur og nokk- ur þúsund skot. Skipið hafði verið við vinnu í Adenflóa en var nýlega fært til Nígeríu og kom til hafnar í Lagos til að taka kost. Hafa skipverjarnir verið ákærðir um vopnasmygl en þeir höfðu haft vopnin til að verjast sjóræningjum í Adenflóa. Síðara atvik- ið var þegar nígerískir sjóræningjar hertóku dráttarbátinn og birgðaskipið Bourbon Liberty 249 og tóku til fanga alla skip- verjanna. Skipið var undir hollensku flaggi en rekið af sama aðila og Myre Seadiver. Rússneskir heimildamenn hafa bent á að stjórnvöld í Nígeríu hafi reynt að fá sjóræningjana til að hækka lausnargjaldið fyrir skipverjanna. Vantar yfirmenn Nú er farið að gæta alvarlega skorts á kínverskum yfirmönnum að sögn formanns sjómannaskóla í Shanghai. Á nokkrum árum hefur vöntunin farið úr 18 þúsund í 23 þúsund yfirmenn og ástandið fer versnandi. Um 54 þúsund stunda yfirmannanám þar í landi en aðeins einn þriðji hluti þeirra mun uppfylla kröf- ur til starfa. Skemmtiferðaskip kyrrsett Í lok maí s.l. lést gríski útgerðarmaðurinn George Potamianos sem átti og rak Classic International Cruises. Það þykir nú ekki fréttnæmt á Íslandi þótt grískur útgerðarmaður falli frá en fráfall hans gæti haft áhrif á túristastreymið hingað til lands á næsta sumri. George hóf afskipti af útgerðum farþegaskipa árið 1976, þá í Portúgal. Hann hafði gengið svo frá málum að við andlát sitt átti sonur hans að taka við útgerðinni en hann hafði líklega ekki gert ráð fyrir því að viðskiptabankar útgerðarinnar hefðu aðra skoðun. Bankarnir drógu til baka alla fjármögnun til út- gerðarinnar með þeim afleiðingum að öll fimm skemmtiferða- skip útgerðarinnar voru kyrrsett og útgerðin varð gjaldþrota. Útgerðin hafði rekið skip sem voru í eldri kantinum, og er þá Utan úr heimi Hilmar Snorrason skipstjóri Athena að koma til hafnar í Reykjavík en ekki er víst hvort skipið muni eiga afturkvæmt hingað í kjölfar gjaldþrots.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.