Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.04.2012, Blaðsíða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur Hilmar Snorrason 1. sæti, Guðmundur Birkir Agnarsson. Þá er hinu ánægjulega en erfiða verki lokið að velja bestu ljósmyndir sjó- manna þetta árið. Við fjórmenningarnir – með Hilmar sem fimmta mann og í viss- um skilningi burðarás þótt hann undir- striki að hann sé aðeins starfsmaður nefndarinnar – sátum drjúga stund með sveittan skallann, pældum og deildum. Það gerði hlutverk okkar ekki auðveld- ara að þátttaka var góð, alls bárust nokkuð á annað hundrað myndir í keppnina, allar á stafrænu formi. Hlutskörpust varð mynd Guðmundar Birkis Agnarssonar. Verðlaun fyrir fyrsta sæti eru ekki af verri endanum, nefnilega ljósmyndanámskeið frá ljósmyndari.is Í öðru sæti varð mynd Daða Ólafssonar og í því þriðja mynd Davíðs Más Sig- urðssonar. Tólf myndir til viðbótar, auk vinnings- myndanna, fara síðan áfram í ljósmynda- keppni sjómanna á Norðurlöndum. Okkar fulltrúar þar verða, auk vinnings- hafanna, Bergþór Gunnlaugsson, Guð- mundur St. Valdimarsson, Jón Kr. Frið- geirsson, Svafar Gestsson og Þorleifur Örn Björnsson. Dómnefndin, Pálmi Guðmundsson, ritstjóri ljósmyndari.is, Árni Bjarnason, Jón Hjaltason, Hilmar Snorrason og Jón Svavarsson ljósmyndari.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.