Fréttablaðið - 30.08.2022, Síða 2
Blásið í hávaðaroki
Vallarstarfsmönnum Golfklúbbs Ness fannst suðaustanrokið ekki nægur blástur til að losna við sand þannig að þeir bættu aðeins í. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Atli Jónasson stóð í marki
Leiknis á sunnudag, þrettán
árum eftir síðasta leik í efstu
deild. Þrátt fyrir tap gegn
Blikum varði Atli víti. „Ég vissi
hvar hann myndi skjóta,“
segir Atli sem neitar þó að
gefa upp hvert sé leyndar-
málið á bak við að verja víti.
benediktboas@frettabladid.is
FÓTBOLTI „Ég vissi hvert Höskuldur
var að fara að skjóta um leið og
hann setti boltann niður á víta-
punktinn. Ég get reyndar ekki sagt
þér hvernig því ég gæti spilað annan
leik eftir þrettán ár,“ segir Atli Jónas-
son, markvörður Leiknis, en hann
stóð á milli stanganna gegn topp-
liði Breiðabliks á sunnudag í Bestu
deildinni.
Leiknir tapaði leiknum 4-0 en
Atli varði víti frá Höskuldi Gunn-
laugssyni og fær hrós frá þeim
fjölmiðlum sem fjalla um Bestu
deildina.
Alls eru þrettán ár síðan Atli
spilaði síðast í efstu deild. Þá spilaði
hann í 4-3 tapi KR gegn Val. Logi
Ólafsson stýrði þá KR.
Atli lék á sínum tíma 20 leiki með
yngri landsliðum Íslands. Hann var
lengst af á mála hjá litla bróður KR,
KV, og átti stóran þátt í að liðið fór
alla leið upp í næstefstu deild árið
2014. Hann hefur lítið spilað síðan
2018.
Hann segir að skrokkurinn hafi
verið fínn eftir leikinn. Hann sé
búinn að æfa eins og maður síðan í
mars og búinn að vera á bekknum
í allt sumar. Hann var í fríi í gær og
ætlaði að hafa það notalegt.
„Ég var helvíti lengi að komast
í gang – viðurkenni það en ég er
alveg í allt í lagi standi.“
Viktor Freyr Sigurðsson er aðal-
mark vörður Leik nis en hann
meiddist gegn KR og Atli hefur
verið honum til halds og trausts.
Varamarkvörður Leiknis var svo
slökkviliðsmaðurinn og Leiknis-
goðsögnin Eyjólfur Tómasson.
„Það var hóað í Eyjó til að vera
á bekknum. Hann æfir ekkert, er
bara í slökkviliðinu, en hann er
mikill Leiknismaður og segir ekki
nei þegar félagið hans er í vanda.
Hann hjólaði beint frá slökkvistöð-
inni og fékk sér sæti á bekknum.“
Leiknir er sem stendur í neðsta
sæti en Atli segir að hjartað í liðinu
og gæðin muni halda klúbbnum
uppi. „Þjálfarinn hefur orðað þetta
ágætlega í viðtölum og bent á að
það sé nánast þráhyggja að halda
Leikni uppi. Mér finnst við ekkert
vera að fara á taugum. Við ætlum
að halda okkur uppi og erum með
lið og hjarta í það,“ segir Atli. ■
Spilaði aftur í deild þeirra
bestu eftir þrettán ára bið
Atli hefur æft með Leikni síðan í mars til að vera hinum unga Viktori Sigurðs-
syni til halds og trausts. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Atli við það að
verja vítið frá
Höskuldi.
MYND/HAUKUR
GUNNARSSON
Frá og með 1 september verður
opnunartími Læknavaktarinnar
Háaleitisbraut 68
frá kl:17:00 til 22:00 virka daga
og frá 9:00 til 22:00 um helgar.
helenaros@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Stefán Ari Guð-
mundsson, framk væmdastjóri
Læknavaktarinnar, segir manneklu
ástæðu þess að opnunartími verður
styttur um eina og hálfa klukku-
stund frá og með 1. september.
Vaktinni verður lokað klukkan
tíu á kvöldin í stað hálf tólf.
Aðspurður segist Stefán Ari telja
að breytt fyrirkomulag sé komið til
að vera og að ákvörðunin sé tekin í
samráði við heilbrigðisráðuneytið,
Landspítala og Heilsugæsluna. „Það
eru allir meðvitaðir um þetta.“ Þá
telur hann að styttingin muni ekki
hafa áhrif á þjónustuna.
„Ég held að þetta hafi þau áhrif
að fólk þurfi að bíða skemur. Okkur
tekst að manna þetta betur af því
við erum að loka fyrr, það eru svona
mínar væntingar,“ segir hann.
Stefán Ari telur að styttingin
muni ekki hafa mikil áhrif á bráða-
móttökuna. Heimavitjanir Lækna-
vaktarinnar verði áfram í boði til
hálf tólf. Fólk geti haft samband í
síma 1770 og hjúkrunarfræðingar
meti hvort þörf sé á vitjun. ■
Læknavaktinni
verður lokað fyrr
Margir leita til vaktarinnar á kvöldin.
benediktarnar@frettabladid.is
SKOTVOPN Rannveig Þórisdóttir,
sviðsstjóri hjá ríkislögreglustjóra,
segir að innflutningur á skotvopn-
um hafi aukist undanfarin ár og
því þurfi að auka eftirlit. Hún hefur
kallað eftir því að heimildir sem
skilgreina hvaða vopn megi f lytja
inn verði þrengdar aftur.
„Sjálfvirk skotvopn og hálfsjálf-
virk vopn eru flutt inn á grundvelli
safnaleyfis og það hefur síðastliðin
fimm, sex ár verið heimilað í aukn-
um mæli. Það hafa verið þröngar
skilgreiningar á hvaða vopn megi
f lytja inn. Þær hafa verið aðeins
víkkaðar út en við höfum kallað
eftir því að það verði sett mjög
þröng skilyrði fyrir innflutningi á
slíkum vopnum,“ segir Rannveig.
Lögreglan fer með eftirlit með
skráðum vopnum, en Rannveig
telur að það sé ekki mikið um ólög-
leg vopn. „Við gætum örugglega gert
betur og viljum gera betur, en það
er alltaf möguleiki að það sé eitt-
hvað af vopnum að koma ólöglega
inn í landið. Við erum ekki að hald-
leggja ólögleg vopn í neinum mæli,
sem er kannski vísbending um að
það sé ekki mikið um ólögleg vopn
á landinu,“ segir Rannveig. ■
Áhyggur af sjálfvirkum skotvopnum
Rannveig
Þórisdóttir,
sviðsstjóri hjá
ríkislögreglu-
stjóra
2 Fréttir 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ