Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 30.08.2022, Qupperneq 31
Við stöndum nær kúnnunum okkar með því að þjónusta þá bæði á Íslandi og á Spáni. Það er íslenskumælandi starfsmaður alla leið í ferlinu. Við sinnum öllu og öllum. Bjarni Sigurðsson alla leið í ferlinu. Við sinnum öllu og öllum. Það eru ekki bara kaupin á fasteign. Við aðstoðum fólk við að kaupa og leigja bíla, fylla út skatt- skýrslu eða erfðaskrá og hjálpum fólki að komast í ferðir og í golf. Snertiflöturinn við viðskiptavin- ina er svo mikill hjá okkur og þjón- ustusviðið er breitt. Við viljum halda utan um kúnnana okkar alla leið og það kunna þeir að meta,“ segir Bjarni en ellefu manns starfa hjá Spánarheimilum. „Hjá okkur starfa eingöngu Íslendingar að undanskildum spænskum lögfræðifulltrúa sem sinnir pappírsmálunum. Þó svo að söludeildin sé okkar hjarta og sé sú deild sem mest snýst um þá er þjónustudeildin okkar mjög öflug sem sér um alla þjónustu gagnvart fasteignaeigendunum. Við erum með fasteignaumsjón og eftirlit með eignum, við erum að leigja út eignir, við erum með okkar eigin deilibíla og bílaleigu, golfklúbb og öflugan vildarklúbb þar sem viðskiptavinir njóta vildarkjara á hinu og þessu eins og golfi, f lugi og bílum.“ Paradís fyrir kylfinga Costa Blanca svæðið er svo sannar- lega draumastaður fyrir kylfinga en fjölmargir glæsilegir golfvellir eru þar til staðar. „Svæðið er ofsalega stórt sem fólk áttar sig ekki oft á þegar það kemur í fyrsta skipti. Vinnu- svæði okkar er mjög stórt, alveg frá Valencia til Murcia, sem eru aðal orlofshúsasvæðin í kringum Alicante. Golfið er orðið ansi mikilvægur þáttur í lífi fólks og þetta svæði er algjör paradís fyrir kylfinga. Það er varla hægt að þverfóta fyrir golfvöllum og það er gaman að segja frá því að við nýttum Covid-tímann í að stofna GÍS – golfklúbb fyrir Íslendinga á Spáni. Við höfum þegar samið við þrettán golfklúbba þar sem okkar vildarvinir njóta góðra kjara og geta spilað ódýrara golf. Golfið er orðið ansi stórt sport og það kemur alltaf á óvart hversu margir eru komnir í það,“ segir Bjarni. Hefur eftirspurnin aukist eftir heimsfaraldurinn? „Það má alveg segja að hún sé komin á sama stað og fyrir Covid. Við sjáum það á sölutölunum að við erum í svipuðum gír og fyrir Covid og einkennandi nú hvað mörg spennandi orlofshúsasvæði eru í uppbyggingu á kannski áður óþekktum svæðum fyrir Íslendinginn. Þó við séum að höfða til Íslendinga þá erum við líka að vinna á Evrópumarkaðnum. Salan á svæðinu er nokkuð góð og hefur tekið við sér eftir Covid. Markaðurinn er líflegur. Fasteigna- verð er í hækkunarfasa en þó ekki eins og geðveikin á Íslandi þegar allt rauk upp um 20-30 prósent á milli mánaða. Verðið stóð í stað Spáni í Covid en er aðeins að stíga upp núna.“ Sinna pólska markaðnum Bjarni segir að Spánarheimili bryddi upp á nýjungum í starf- semi sinni. „Fyrir einum mánuði síðan réðum við pólska konu sem er íslenskur ríkisborgari og talar íslensku og starfar nú sem söluráð- gjafi gagnvart pólska markaðnum. Með þessu erum við að sinna pólska markaðnum á Íslandi og í Póllandi. Við fundum fyrir því að Pólverjarnir eru almennt mikið að kaupa á Spáni og núna erum við byrjuð að sinna þessum hópi frá Íslandi. Það verður gaman að sjá hvernig þetta gengur.“ Eins og flestir vita er verðlag almennt talsvert lægra á Spáni en á Íslandi og á það við um flesta hluti. Að sögn Bjarna er fasteigna- verðið, framfærslan, maturinn og allar nauðsynjar svo miklu lægra á Spáni. Hann segir að fasteigna- verðið sé mjög gott miðað við Ísland og rekstrarkostnaðurinn miklu minni. Bjarni segir að það séu ekki lengur bara eldri borgarar sem fjárfesta í eignum á Spáni. „Það hefur breyst á undan- förnum misserum. Þegar ég var að byrja í þessu fyrst þá voru þetta mestmegnis eldri borgarar og þeir sem voru að komast á lífeyri sem voru að kaupa. Núna er aldurinn að færast mun neðar. Maður finnur mynstrið hjá mörgum. Þeir eru kannski að spá í að kaupa sér sumarhús í Grímsnesi. Það kostar kannski á bilinu 40–60 milljónir króna en þá ertu kominn í einbýlishúsaverð á Spáni. Þú getur keypt þér íbúð á Spáni fyrir 25-30 milljónir, f lotta nýja íbúð á besta stað við ströndina. Yngra fólk og fjölskyldufólk er að kaupa íverustað á Spáni. Markaðurinn hefur verið að stækka. Þetta er ekki lengur bara 67 plús sem er að kaupa þótt sá hópur sé enn til staðar. Fasteignakaupendur eru að færast neðar í aldri.“ Nýjar og notaðar eignir Bjarni segir að framboðið sé nóg. „Það sem hefur breyst er að fólk vill meira fá nýlegar eignir og það sækist eftir eignum í norður-evr- ópskum stöðlum. Við bjóðum til sölu bæði nýjar og notaðar eignir. Það eru margir aðilar á markaðn- um sem eru bara í því að selja nýjar eignir en við erum með hvoru- tveggja og erum í samstarfsneti erlendra fasteignasala. Við höfum því aðgang að öllum eignum sem eru á markaði á hverjum tíma. Það er ekki skortur á eignunum. Þetta er ákveðinn kaupendamarkaður en ekki seljendamarkaður eins og hefur kannski verið á Íslandi,“ segir Bjarni en þess má geta að Spánarheimili bjóða áhugasömum kaupendum í 5-7 daga skoðunar- ferð þar sem kostnaður fyrir allt að tvo einstaklinga er endurgreiddur ef af kaupum verður. n Nánari upplýsingar um Spánar- heimili og þjónustuna sem fyrirtækið býður upp á má finna á heimasíðunni spanarheimili.is og á þjónustuyfirlitssíðunni spann.is. Santa Rosalia lake & life resort er einstakt nýtt íbúðasvæði við stærsta afþreyingarlón Evrópu. MYNDIR/AÐSENDAR Í boði eru allar gerðir hágæða fasteigna þar sem kristaltært lónið er fyrir miðju svæðis- ins. kynningarblað 7ÞRIÐJUDAGUR 30. ágúst 2022 FASTEIGNIR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.