Fréttablaðið - 30.08.2022, Page 36
Litfögur Hallgrímskirkja á síðustu
Vetrarhátíð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
starri@frettabladid.is
Fyrsta Vetrarhátíð í Reykjavík var
haldin 2002 en markmiðið með
henni er að lýsa upp skammdegið
og bjóða borgarbúum og öðrum
landsmönnum að njóta lista og
afþreyingu í vetrarmyrkrinu.
Hátíðin var haldin síðast 3. til
6. febrúar síðastliðinn. Þar var
Ljósaslóð Vetrarhátíðar í lykil-
hlutverki en það var gönguleið frá
Hallgrímskirkju niður Skólavörðu-
stíg og þaðan á Austurvöll sem var
vörðuð ljóslistaverkum. Listaverk-
in lýstu upp miðbæinn frá 18.30 til
22 þá daga sem hátíðin fór fram og
vakti mikla athygli og gleði gesta
sem upplifðu fegurðina með sínum
nánustu á eigin hraða.
Reykjavíkurborg stóð einnig
fyrir samkeppni um ljóslistaverk á
síðustu Vetrarhátíð í samstarfi við
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs.
Verkið fólst í vörpun á stafrænu
verki á Hallgrímskirkju en undan-
farin ár hefur kirkjan verið eitt
helsta kennileiti hátíðarinnar. Sig-
urverkinu var varpað á framhlið
Hallgrímskirkju á meðan hátíðin
stóð yfir og lýsti svo sannarlega
upp svartasta skammdegið.
Næsta Vetrarhátíð í Reykjavík
verður haldin í febrúar á næsta
ári. n
Skammdegið lýst
upp með litum
Lý s i n g
thordisg@frettabladid.is
Er alltaf umhverfisvænna að
slökkva ljósin? Meginreglan er sú
að best sé að slökkva á ljósum þegar
rými eru ekki í notkun. Hins vegar
skiptir máli hvaða tegund af ljósa-
perum er í notkun.
Ljós með glóperum á alltaf að
slökkva þegar ekki í notkun. Gló-
perur eru óhagkvæmasti ljósgjaf-
inn og nýta orkuna verst af þeim
ljósgjöfum sem eru í boði. Best er
því að skipta þeim út fyrir orku-
sparandi perur.
Halógenperur eru hagkvæmari
en glóperur, en þar sem tæknin er
sú sama eru þær ekki jafn hag-
kvæmar og flúorljós eða LED-perur.
Best er því að slökkva alltaf á haló-
genperum.
Þar sem flúorperur og sparperur
nýta orkuna mjög vel er aðeins
flóknara að segja til um hvenær
best er að slökkva á slíkum ljósum.
Þumalputtareglan er að sé aftur
komið í rýmið innan 15 mínútna
eigi að vera kveikt.
Það hefur engin áhrif á líftíma
LED-ljósa hversu oft er slökkt og
kveikt á þeim. LED-ljós hafa nokkra
kosti umfram aðra ljósgjafa. Sem
dæmi er hagkvæmara að nota LED-
ljós þar sem eru sjálfvirkir slökkv-
arar eða ljós eru tímastillt. LED-ljós
verða björt án tafar. Þau þola einnig
hristing eins og skapast þar sem
hurðir skellast. n
HEIMILD: GRAENSKREF.REYKJAVIK.IS
Best að slökkva á ljósum þegar rými eru ekki í notkun
www.lysingoghonnun.is
sandragudrun@frettabladid.is
Lýsing á heimilinu skiptir miklu
máli fyrir líðan þeirra sem þar
dvelja. Því ætti að hugsa vand-
lega um ljósahönnunina þegar
heimili er innréttað, rétt eins og
þegar gluggatjöld og húsgögn eru
valin. Björt ljós kveikja á sterkari
tilfinningum og auka orku á meðan
dempaðri lýsing hefur róandi áhrif.
Rauðleit eða gulleit ljós skapa hlýja
birtu sem myndar notalegt and-
rúmsloft. Slík birta er því tilvalin
í rýmum þar sem mestur tími fer í
að slaka á eftir langan dag og njóta
rólegra samverustunda. Bjartari
ljós í kaldari litum henta betur í
rýmum þar sem er unnið, til dæmis
við skrifborðið eða í eldhúsinu.
Núna eru komnar á markað alls
kyns snjallperur sem bjóða upp á
þann möguleika að breyta lýsingu
sama rýmis eftir hentugleika. Ef
stofan er notuð sem skrifstofa á
daginn er hægt að hafa lýsinguna
bjarta og kalda og breyta henni
svo í hlýlega dempaða birtu á
kvöldin. n
Lýstu upp heimilið
Lýsingin á heimilinu hefur mikil áhrif
á líðan fólks. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Perur hafa mismunandi orkunotkun.
8 kynningarblað A L LT 30. ágúst 2022 ÞRIÐJUDAGUR