Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Síða 14
Norrœn jól
ríkja, því að á umliðnum öldum, hafa þau tvö, fleiri eða stundum öll lotið einni
stjórn, og það langt fram á þessa öld, en öll hafa þessi tengsl shtnað, og þá ekki
alltaf sársaukalaust. Þegar frá hefur liðið hafa menn þó áttað sig á því, að í
rauninni var aldrei um hvorki slit né rof að ræða, heldur greiningu innan ein-
ingar. Mönnum hefur þá skilist, að það eru hin menningarlegu tengsl landanna,
er bera uppi hin hollu og hagkvæmu tengsl þeirra.
Engum getur dulist, að sama menning ríkir um öll Norðurlönd, enda þótt
hún sé með fullkomlega sjálfstæðum blæ hjá hverri hinna norrænu þjóða, og
það er nú orðið öllum ljóst, að samsviðið þarf að víkka eftir föngum, enda hefur
það þegar verið gert, ekki sízt með samræmingu norrænna laga. Að þessu hefur
Norræna félagið átt geysimikinn hlut á hinum liðnu 30 árum með margháttuðu,
markvísu starfi.
Sem íslending gleður það mig, að á miðri öldinni sem leið, var hið mikla
skáld Grímur Thomsen einn helzti frömuður norrænu hreyfingarinnar, og sem
fulltrúi Finnlands hér á landi, er mér ánægja að því, að vita að Finnland er út-
vörður norrænnar menningar í austri.
Því þakka ég Norræna félaginu þau stórkostlegu og þýðingarmiklu störf, er
það hefur innt af hendi, og óska því gæfu og gengis um alla framtíð.