Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Side 20
Norrænu félögin
og norræn
somvinna
Sigurður Nordal
SJÁLFSAGT VERÐUR því ekki neitað, aS um norrænan samhug og sam-
vinnu séu sögð fleiri orð og stærri við hátíðleg tækifæri en samsvari raun-
verulegum athöfnum eða jafnvel alvarlegri sannfæringu sumra ræðumanna. En
þegar þess er gætt, að elztu Norrænu félögin era ekki eldri en 33 ára, má
hiklaust viðurkenna, að þau hafi unnið gott starf og áhrifamikið. Þessi félög hafa
alltaf kunnað sér hóf. Forgöngumenn þeirra hafa vitað, að við ramman var reip
að draga, svo margt illt sem norrænar þjóðir hafa átzt við fyrr á tímum og svo
sterkur sem vilji þeirra allra er til fulls sjálfstæðis nú á dögum. Þeir hafa minnzt
hins aumkvunarlega skipbrots gamla Skandínavismans, sem hafði fulla samein-
ingu á stefnuskrá sinni og aldrei lét neitt nema vonbrigði af sér leiða. Þeir hafa
leitað verkefna, sem enga tortryggni gátu vakið, einbeitt sér að menningarsam-
bandi og kynnum og fengið þar miklu áorkað. Þessi félög gengu í gegnum meiri
eldraun á styrjaldarárunum og fyrst á eftir en unnt er að gera hér grein fyrir, enda
sumt af því alkunnugt. En út úr þeirri raun komu þau fram þróttmeiri og athafna-
samari en þau höfðu nokkurn tíma áður verið. Því meira tækifæri sem ég hef
haft til þess að kynnast öðrum tilraunum norrænnar samvinnu, því meir hef ég
dáðst að fjölþættri og ötullegri starfsemi þessara félaga.
18